Heilsuhúsið

Verslanir
  • Laugavegur s. 552 2966
  • Lágmúla s. 578 0300
  • Kringlunni s. 568 9266
  • Smáratorgi s. 564 5666
  • Selfossi s. 482 3915
  • Akureyri s. 462 1889
  • Reykjanesbær s. 578 5560
Heilsumoli vikunnar
Biotta Digestive

Sveskjur og fíkjur eru þekktar fyrir að vera mild en afar áhrifarík áhrif hjálp til að hraða fæðunni í gegnum meltingarfærin. Biotta Digestive er sveskjusafi blandaður fíkjuþykkni ásamt epla- og þrúgu... Meira

Uppskrift mánaðarins
Bragðsterkur engifer-lax

1 kg laxaflak (flök) 1 dl hrásykur 1 dl Maldon hafsalt 4 msk rifinn engifer rifinn börkur af lífrænt ræktaðri sítrónu 1 rauður chili belgur, skorinn í þunna strimla Blandið öllum kryddefnum saman. Le... Meira

Acai ber


 Açaiberin eru næringarríkasta gjöf jarðar
Nú er það orðið ljóst að açaiberin eru næringar- og andoxunarríkasta afurð jarðarinnar. Berin eru frá regnskógum Amazonsvæðisins, en þekkt er að brasilískir fótboltamenn fái sér gjarnan açaiberjaboost til þess að auka orku sína fyrir fótboltaleiki. Nú fást bæði açaiberjasafi og açaiberjabætiefni frá Solaray í Heilsuhúsinu.

Açaiber eru bólgu- og bakteríueyðandi. Einnig hafa rannsóknir staðfest að efni í þessum fágætu berjum geta komið í veg fyrir stökkbreytingar í frumum. Berin hafa mjög góð áhrif á hjarta- og æðakerfið þar sem þau innihalda mikið magn af omega 3, 6 og 9 fitusýrum.
Açaiberin hafa verið þekkt meðal íbúa Mið- og Suður-Ameríku öldum saman, sérstaklega á Amazonsvæðinu. Ábúendur þess hafa lengi vitað um einstakt næringargildi þeirra, þótt vesturlandabúum hafi lengst af verið það hulið. Berin eru þó ekki bara næringarrík heldur líka afbragðsgóð, en segja má að þau bragðist eins og ber með súkkulaðikeim. Leyndardómur açaiberjanna er sá að þau geyma hærra hlutfall af jurtabláma en aðrar fæðutegundir, sem þýðir að þau innihalda afar hátt hlutfall flavóníða. Flavóníðar vinna gegn æðaskemmandi áhrifum sindurefna. Magn andoxunarefnisins ORAC í açaiberjum er 167, samanborið við 32 í bláberjum, sem eru þó sérlega andoxunarrík, og 14 í eplum.
Acaiberin vaxa á pálmatrjám í flæðarmáli Amazon regnskógarins. Þau eru dökkrauð og á stærð við bláber. Nýlega kviknaði mikill áhugi á þeim í Bandaríkjunum og víðar í kjölfar þess að metsöluhöfundurinn Dr. Nicholas Perricone, sérfræðingur í því hvernig fólk getur haldið sé ungu, kallaði þau “ofurfæðu númer eitt í heiminum” í bók sinni The Perrricone Promise. Bókin og efni hennar vakti mikla athygli, einkum eftir að hún var. kynnt í þætti Opruh Winfrey.


Mikilvægi andoxunarefna
Sindurefni (free radicals) eru skaðleg mólikúl sem myndast m.a. vegna skordýraeiturs og sígarettureyks en einnig vegna líkamsræktaræfinga. Þau eru skaðleg frumum líkamans og geta líka verið skaðleg DNA-kjarnasýrum. Sindurefni hafa verið tengd þróun sjúkdóma eins og gigt, Alzheimer og krabbameini.
Náttúrulega leiðin til þess að sporna við sindurefnum felst í neyslu ávaxta og grænmetis, þar sem andoxunarefnin í þeim styrkja frumurnar og vernda okkur gegn sindurefnum. Magn andoxunarefna í fæðu er er skilgreint samkvæmt stuðlinum ORAC, en það stendur fyrir Oxygen Radical Absorbance Capacity Score.

Acaiberin gera líklega út af við krabbameinsfrumurÍ nýlegri grein sem birtist á hinum virta heilsuvef www.naturalnews.com er að finna rannsókn frá Háskólanum í Flórída (University of Florida). Vísindamenn þar uppgötvuðu nýlega að açaiberin ollu því að krabbameinsfrumur eyddust upp í 86% tilfella í tilraunaræktun. Rannsóknin hefur aðeins verið gerð á tilraunastofu, en miklar líkar eru á að þetta reynist einnig raunin þegar açaiberin komast í beina snertingu við mannslíkamann.
Vísindamennirnir hyggjast halda áfram að rannsaka með hvaða hætti açaiberin geti komið í veg fyrir krabbamein. Aðstoðarprófessorinn Dr. Stephan Talcott lét hafa eftir sér: “Við erum rétt að byrja að skilja margbreytileika açaiberjanna og heilsusamlega virkni þeirra. Það er þegar mat okkar að açaiberin séu andoxunarríkasti ávöxtur jarðar.” Vísindamenn við sama háskóla eru komnir vel áleiðis með rannsaka heilsusamlega virkni açaiberjanna á blóðþrýsting, kólesteról, hjartaheilsu og sjúkdóma sem þessu tengjast.
Ekki er enn sannað að açaiberin lækni krabbamein, en rannsóknirnar lofa sannarlega góðu og í besta falli liggur fyrir að þau geta hindrað krabbamein og aðra sjúkdóma. Þessi utan eru þau afar bragðgóð.

Eins og önnur næringarrík fæða eru açaiberin afar viðkvæm í meðförum. Allra mikilvægast er að magn andoxunarefnanna haldist óskert alla leið. Hið heimsþekkta heilsuvörufyrirtæki Solaray er þekkt fyrir vönduð vinnubrögð og býr einnig yfir tækni sem tryggir að næringin skila sér alla leið til neytandans.

Heimildir:
www.naturalnews.com  
www.acaiberrystudies.com  
http://news.ufl.edu/2006/01/12/berries/  


Upplýsingar þessar eru samansafn fróðleiks um náttúrulegar lækningar. Þeim er ekki ætlað að koma í stað tilmæla eða ráðgjafar fagfólks í heilbrigðisþjónustunni. Sjúklingar á lyfjum, einkum séu þeir haldnir alvarlegum sjúkdómum ættu að ráðfæra sig við lækni áður en þeir hefja neyslu bætiefna. Senda á Facebook
Letur A +A
Vildarklúbbur Íbúar Heilsuhússins !