Heilsuhúsið

Verslanir
  • Laugavegur s. 552 2966
  • Lágmúla s. 578 0300
  • Kringlunni s. 568 9266
  • Smáratorgi s. 564 5666
  • Selfossi s. 482 3915
  • Akureyri s. 462 1889
  • Reykjanesbær s. 578 5560
Heilsumoli vikunnar
Biotta Digestive

Sveskjur og fíkjur eru þekktar fyrir að vera mild en afar áhrifarík áhrif hjálp til að hraða fæðunni í gegnum meltingarfærin. Biotta Digestive er sveskjusafi blandaður fíkjuþykkni ásamt epla- og þrúgu... Meira

Uppskrift mánaðarins
Bragðsterkur engifer-lax

1 kg laxaflak (flök) 1 dl hrásykur 1 dl Maldon hafsalt 4 msk rifinn engifer rifinn börkur af lífrænt ræktaðri sítrónu 1 rauður chili belgur, skorinn í þunna strimla Blandið öllum kryddefnum saman. Le... Meira

Andoxunarefni / Antioxidants

Þegar epli er skorið verður það brúnt í sárið. Járn ryðgar. Þessu veldur oxun af völdum súrefnis. Við efnaskipti í líkamanum myndast úrgangsefni (svo nefnd sindurefni) sem geta valdið hliðstæðum skemmdum á frumum líkamans. Ótal aðrir þættir eru síðan samverkandi sindurefnunum í þessari eyðileggingu, svo sem reykingar, áfengi, streita, bakteríur, vírusar og umhverfismengun.

Hver fruma líkamans er varin með himnu sem inniheldur m. a. hátt fituhlutfall. Sindurefnin valda því að þessi fita oxar og veikir það frumuna. Rannsóknir benda til að slíkar frumuskemmdir geti skaðað heilsuna.

Líkaminn getur varist þessum skemmdum með svonefndum andoxunarefnum. Það eru ákveðin bætiefni, vítamín og steinefni sem ráðast til atlögu gegn skaðvöldunum (sindurefnunum) og aðstoða líkamann að losa sig við þá. Jafnframt styrkja þessi andoxunarefni frumurnar og um leið varnir líkamans.

Athyglisvert er að læknavísindin hafa í seinni tíð beint athygli sinni í auknum mæli að rannsóknum á þessu sviði. Niðurstöður þeirra rannsókna hafa síðan orðið til þess að sífellt fleiri læknar ráðleggja andoxunarefni til að fyrirbyggja alvarlega sjúkdóma, ekki síst hjarta og æðasjúkdóma, sem eru ein algengasta dánarorsök hérlendis.



Grein birt í Heilsufréttum í janúar 2008:

Að gera sér grein fyrir mikilvægi andoxunarefna

Andoxunarefni hafa verið mikið í umræðunni að undanförnu en fæstir vita hver þau í raun og veru eru og hvaða mikilvæga hlutverki þau gegna. Og af hverju ættum við að hafa það á hreinu að andoxunarefni eru okkur lífsnauðsynleg? Langskýrustu ummerkin um skort á andoxunarefnum eru öldurn um aldur fram. Það má glögglega sjá hverjir fá nóg af andoxunarefnum og hverjir ekki. Horfið á húð þeirra, andlit, snerpu. Hvernig þeir eru samanborið við aðra á sama aldri. Það er ekki að undra að nær öllum heilsutímaritum veraldar og mörgum af virtustu ljósvaka- og prentmiðlum heims hefur aldrei verið jafn tíðrætt um andoxunarefni og nú. Æ fleiri vísindalegar rannsóknir styðja mikilvægi andoxunarefna.

Hvað eru andoxunarefni?
Andoxunarefni eru undirstaða og kjarni þess að vernda frumuhimnur líkamans fyrir skemmdum af völdum oxunar. Oxun merkir í bókstaflegri merkingu tæring eða ryðmyndun. Þegar einhver eða eitthvað stendur berskjaldað frammi fyrir oxun, án nokkurrar varnar, hefst öldrun/tæring þess. Alveg eins og gamall hjólbarði, byrjar húðin og vefirnir, sem enga vörn hafa gegn oxun, að síga og tapa teygjanleika.
Að skilja andoxunarefni og hvernig á að nota þau er fyrsta skrefið til þess að hægja á öldrunarferlinu og viðhalda líkamanum eins ungum og hraustum og nokkur kostur er.
Best þekktu andoxunarefnin innihalda A, C og E-vítamín ásamt Beta-karótíni. Sum andoxunarefni eru bundin snefilefnum, sinki, seleni, mangan og kopar, svo þau hafa einnig stöðu andoxunarefna. Minna þekkt andoxunarefni innihalda bíóflavónóíða, jurtabláma, tannín, brennisteins-hamlandi efnasambönd og jafnvel MSM inniheldur andoxunarefni. Lang kraftmesta andoxunarefnið sem líkaminn nýtir sér er kóensím, sem flestir þekkja undir Q10.

Hvað eru sindurefni?
Stakeindir eða sindurefni eru einfaldlega sameindir með neikvæða hleðslu sem eru á stöðugri hreyfingu um líkamann ef þau eru ekki snarlega slegin út af laginu af andoxunarefnum. Hugsanlega geta þau valdið óbætanlegu tjóni á frumuhimnum og byggingu frumnanna, þar á meðal DNA eða kjarnasýru þeirra, sem er nauðsynleg nákvæmri endurnýjun frumnanna.
Við verðum á öllum stundum fyrir utanaðkomandi árásum sindurefna, t.d. með sígarettureyk, mengun, geim- og manngerðum geislum og jafnvel frá sólinni. Sindurefna sameindir eru líka lokaframleiðsla efnaskipta líkamans. Við búum jafnvel til eigin sindurefni með því að anda. Góðu fréttirnar eru þær að líkaminn hefur innbyggðan sindurefnavara og hann notar einnig efnin úr matnum sem við neytum með áhrifaríkum hætti. Slæmu fréttirnar eru þær að oftar en ekki mætir staða andoxunarefna í líkamanum ekki að fullu þörf okkar fyrir verndun gegn sindurefnum í þeirri veröld sem við lifum og hrærumst í.

Hver er þörfin fyrir verndun?
Ónóg uppistaða andoxunarefna til verndar líkama okkar kemur til af mörgu, þar á meðal því að við borðum ekki nóg af ávöxtum og grænmeti sem og af öðrum andoxunarríkum mat eða drykkjum. Fæðan sem við neytum sér um að dreifa öllum sameindunum um líkamann svo það er alltaf skynsamlegt að borða hollan mat. En þrátt fyrir að við borðum hollan mat getur líkaminn engu að síður verið uppfullur af sindurefnum. Þar koma til reykingar, mikil mengun, djúpsteiktur eða brenndur matur, samneyti við eiturefni (í mat eða umhverfi), streita og of mikil vera í sól.
Þegar herskara andoxunarefna mistekst að gera áhlaup gegn sindurefnunum geta afleiðingar m.a. verið vagl eða öðru nafni starblinda, liðagigt, hjartasjúkdómar, hækkaður blóðþrýstingur eða jafnvel krabbamein. Allir þessir sjúkdómar geta komið til af skemmdum á frumuhimnum eða öðrum breytingum á byggingu frumnanna, sem er með öðrum orðum að allt það lífsnauðsynlega sem viðheldur eðlilegu heilbrigði líkamans. Langskýrustu ummerkin um skerta virkni andoxunarefna eru þau að eldast um aldur fram. Það er þegar við horfum í spegilinn og sjáum fínar línur og hrukkur og ásamt lýtum og fölnandi húð. Við tökum líka eftir því á líkama okkar þegar liðir stífna og hreyfanleikinn minnkar.


Öflugustu andoxunarefnin

C-vítamín
Á meðan E-vítamínið verndar fituleysanlegu öflin í vefjum líkamans verndar C-vítamínið vatnsleysanlegu öflin í vefjum líkamans. Þannig mynda þau saman öflugasta andoxunarbandalagið. Til þess að fullnægja okkar daglegu þörf fyrir C-vítamín í nútímasamfélagi þyrftum við að borða meira en 80 appelsínur á dag. Líklegt er talið að flestir þeir sjúkdómar sem raktir hafa verið stafi af stórum hluta af skorti á C-vítamíni, þar á meðal háþrýstingur og hátt kólesteról. Margar rannsóknir hafa sýnt að nægt magn af C-vítamíni minnki hættuna á hjartasjúkdómum og lungnakrabbameini í reykingamönnum. Í þekktri rannsókn nóbelsverðlaunahafans Linus Pauling var sýnt fram á að C-vítamín í bland við amínósýruna lýsín getur hjálpað til við að fjarlægja æðakölkun í slagæðum.

E-vítamín
E-vítamín er öflugasta fituleysanlega andoxunarefnið. Það er afar mikilvægt hjarta og blóðrás. Í rannsókn sem gerð var á vegum Cambridge University á karlmönnum með kransæðasjúkdóma kom fram að inntaka á E-vítamíni sýndi marktækan mun við að draga úr hættunni á hjartaáföllum en þetta vítamín er eitt mest rannsakað í tengslum við hjartasjúkdóma og hjartaáföll.Sýnt hefur verið fram á einstakt samband E-vítamíns og selens. Í finnskri rannsókn sem gerð var á 12.000 manns var dregið fram að þeir sem tóku þetta tvennt inn, þ.e. E-vítamín og selen, voru í 91% minni hættu á að fá krabbamein.

A-vítamín /Betakarótín
A-vítamín og undanfari þess, betakarótín, eru öflug andoxunarefni en þar sem A-vítamín safnast fyrir í lifrinni er oft betra að taka inn betakarótín og láta líkamann um að umbreyta því í A-vítamín, eftir þörfum. Lítið magn A-vítamíns fyrirfinnst í fólki með lungnakrabbamein og of lítið magn þess tvöfaldar hættuna á þeim sjúkdómi. Þá hefur verið sýnt fram á að þeir sem þjást af Alzeimer-sjúkdómnum hafa í sér helmingi minna magn betakarotíns og E-vítamíns en aðrir. Einnig hefur verið sýnt fram á það með vísindalegum rannsóknum að öflug neysla á betakarótíni minnkar líkurnar á hjarta- og æðasjúkdómum um helming.

Selen & Sink
Selen notar líkaminn til þess búa til eitt af lykilandoxunar ensímunum sem heitir glutathione peroxtdase og verndar okkur gegn útblæstri bíla, krabbameinsvökum, sýkingum, of mikilli áfengisdrykkju og þungamálmum. Sink kemur líka víða við sögu. Það er nauðsynlegt til þess að líkaminn geti framleitt ensímið SOD (superoxide dismutase) sem hefur jákvæð áhrif á fólk með gigtarsjúkdóma og bólgusjúkdóma.


Kóensím Q10
Kóensím er magnaðasta náttúrulega andoxunarefnið sem líkaminn þarf á að halda. Það verndar okkur gegn krabbameini og sér um að flytja annað andoxunarefni, E-vítamín, þangað sem þess er þörf. Helstu eiginleikar inntöku Q10 eru fólgnir í aukningu frumna líkamans í súrefnisupptöku. Kóensímið Q10 er beintengt þeim efnafræðilega eiginleika sem með tíð og tíma leysir úr læðingi orku í frumum líkamans sem skýrir af hverju það eykur svo orku fólks, jafnvel þótt það þjáist af síþreytu eða vefjagigt (Myalgic Encephalopathy).
Í vísindalegri rannsókn sem gerð var á 61 sjúklingi sem í framhaldi af hjartaáfalli var gefið Q10 og selen í eitt ár, kom í ljós að aðeins einn sjúklingur dó (en þó ekki úr hjartasjúkdómi). Í sambærilegum hópi sem fékk lyfleysu dóu sex manns innan árs úr hjartaáfalli. Í danskri vísindarannsókn var sýnt fram á að konur með brjóstakrabbamein sem tóku inn Q10 og önnur andoxunarefni hlutu hlutfallslega meiri bata en þær sem ekki neyttu þessa bætiefnis. En jafnvel þótt líkaminn framleiði sjálfur Q10 úr fæðu dregur úr framleiðslu þess eftir því sem við eldumst.

Önnur öflug andoxunarefni
Önnur öflug andoxunarefni eru Burdock rót, turmeric, hvítlaukur, Ginkgo Biloba, greipkjarnaolía og sylimarin (í mjólkurþistli).

Margfeldisþáttur andoxunarefna
Það er gott að hafa í huga öll andoxunarefnin vinna vel saman svo vel samsettar andoxunarblöndur frá virtum heilsuvöruframleiðendum gera alltaf mikið gagn, sérstaklega ef þær eru unnar úr matvælum.

Ekki gleyma matnum - súperfæða
Goji berin úr Himalayafjöllunum hafa að geyma mesta magn betakarótins af öllum ávöxtum jarðar og að auki 19 tegundir amínósýra (sem er sex sinnum meira en í blómafræflum) og til viðbótar 8 tegundir lífsnauðsynlegra amínósýra (eins og ísóleusín og trýptófan) sem eru byggingarefni próteins.
Grænt te er einnig afar andoxunarríkt en best geymda leyndarmál Suður-Afríku er rauðrunnateið sem er enn andoxunarríkara en græna teið.
Allt litskrúðugt grænmeti, jurtir og ávextir innihalda gífurlegt magn náttúrulegra andoxunarefna og ganga þau undir nafninu súperfæða. Má þar nefna hindber, jarðarber, brómber, ananas, bláber (þá sérstaklega aðalbláber), mangó, vínber, tómata, gulrætur og paprikur. Andoxunarefnin sem þessi fæða hefur að geyma eru til dæmis betakarotín, lycopene og lútín, auk mikilla vítamína og snefilefna. Þá má geta þess að dökkt súkkulaði (yfir 70%) getur innihaldið talsvert magn andoxunarefnis.
Það eru í raun og veru litarefnin í þessu grænmeti og ávöxtum sem hafa að geyma andoxunarefnin. Það ætti því ekki að vefjast fyrir neinum í hvaða mat öflugustu andoxunarefnin er að finna: Það er sá matur sem skín skærast á matardiskinum.


Upplýsingar þessar eru samansafn fróðleiks um náttúrulegar lækningar. Þeim er ekki ætlað að koma í stað tilmæla eða ráðgjafar fagfólks í heilbrigðisþjónustunni. Sjúklingar á lyfjum, einkum séu þeir haldnir alvarlegum sjúkdómum ættu að ráðfæra sig við lækni áður en þeir hefja neyslu bætiefna.

Senda á Facebook
Letur A +A
Vildarklúbbur Íbúar Heilsuhússins !