Heilsuhúsið

Verslanir
  • Laugavegur s. 552 2966
  • Lágmúla s. 578 0300
  • Kringlunni s. 568 9266
  • Smáratorgi s. 564 5666
  • Selfossi s. 482 3915
  • Akureyri s. 462 1889
  • Reykjanesbær s. 578 5560
Heilsumoli vikunnar
Biotta Digestive

Sveskjur og fíkjur eru þekktar fyrir að vera mild en afar áhrifarík áhrif hjálp til að hraða fæðunni í gegnum meltingarfærin. Biotta Digestive er sveskjusafi blandaður fíkjuþykkni ásamt epla- og þrúgu... Meira

Uppskrift mánaðarins
Bragðsterkur engifer-lax

1 kg laxaflak (flök) 1 dl hrásykur 1 dl Maldon hafsalt 4 msk rifinn engifer rifinn börkur af lífrænt ræktaðri sítrónu 1 rauður chili belgur, skorinn í þunna strimla Blandið öllum kryddefnum saman. Le... Meira

Avena sativa

Flestir ef ekki allir Íslendingar þekkja hafragrautinn og hafa sennilega einhvern tímann á ævinni borðað hann. Margir bera hann sér til munns á hverjum morgni, öðrum finnst lítið til hans koma. Hollustu grautsins getur þó enginn neitað, hann er góður fyrir meltinguna og blóðsykurinn helst í betra jafnvægi við neyslu á grófu korni eins og höfrum (flókin kolvetni).

Minna þekktir eru líklega grænir hafrar. Það eru nákvæmlega sömu hafrarnir en þeir eru tíndir til vinnslu áður en kornið hefur náð fullum þroska. Á þessu ákveðna þroskastigi innihalda hafrar nefnilega efni sem hafa gríðarlega góð áhrif á taugakerfið. Langt aftur í aldir hafa þessir óþroskuðu hafrar verið notaðir við svefnleysi, streitu, kvíða og almennri taugaþreytu. Fór fólk þá gjarnan í hafraböð og reyndust þeir þá einnig hafa góð áhrif á ýmis húðvandamál s.s. exem og brunasár. Te gert úr höfrum var ráðlagt við liðverkjum og gegn bjúgi. Mælt er með tinktúru úr grænum höfrum til að komast yfir fráhvarfseinkenni tóbaks.1

Í hafrakornum er að finna svokallaða alkalóíða og sapónína, efni sem talin eru gefa höfrum þessa virkni. Til þess fyrrnefnda heyra m.a. gramín og avenín en þess síðastnefnda avenakósíðar A og B.2 Kornin sjálf eru rík af járni, mangan og sínki en stráin innihalda mikið af silica (kísil). Rannsókn sem gerð var árið 1974 með tinktúru úr grænum höfrum leiddi í ljós að hún gæti reynst vel við nikótínfráhvarfi og sem aðstoð við að hætta að reykja.4 Fyrst og fremst eru grænir hafrar notaðir við svefnleysi og streitu og er þá gjarnan notuð jurtaveig úr grænum höfrum sem varðveitir virku efnin mjög vel og er því einstaklega góður kostur til að nota gegn streitu og svefntruflunum.

Við húðvandamálum má gera sér eins konar hafraseyði, með því að láta sokk með nokkrum msk. af höfrum hanga í bununni, eða bara leggja hann í baðið, á meðan rennur í karið. Til að laga hafrate eða seyði er soðið upp á grænum höfrum, hafrarnir síðan síaðir frá eftir nokkrar mínútur og teið drukkið ýmist yfir daginn eða rétt fyrir svefninn.5 Notað er sem nemur 1 msk á bolla.


Heimildir:
  • Weiss RF. Herbal Medicine. Gothenburg, Sweden: Ab Arcanum, 1988, 287–8.
  • Mills SY. Out of the Earth: The Essential Book of Herbal Medicine. Middlesex, UK: Viking Arcana, 1991, 510–2.
  • Wichtl M. Herbal Drugs and Phytopharmaceuticals. Boca Raton, FL: CRC Press, 1994, 96–8.
  • Anand CL. Effect of Avena sativa on cigarette smoking. Nature 1974;233:496.
  • Wichtl M. Herbal Drugs and Phytopharmaceuticals. Boca Raton, FL: CRC Press, 1994, 96–8.



Upplýsingar þessar eru samansafn fróðleiks um náttúrulegar lækningar. Þeim er ekki ætlað að koma í stað tilmæla eða ráðgjafar fagfólks í heilbrigðisþjónustunni. Sjúklingar á lyfjum, einkum séu þeir haldnir alvarlegum sjúkdómum ættu að ráðfæra sig við lækni áður en þeir hefja neyslu bætiefna.

Senda á Facebook
Letur A +A
Vildarklúbbur Íbúar Heilsuhússins !