Heilsuhúsið

Verslanir
  • Laugavegur s. 552 2966
  • Lágmúla s. 578 0300
  • Kringlunni s. 568 9266
  • Smáratorgi s. 564 5666
  • Selfossi s. 482 3915
  • Akureyri s. 462 1889
  • Reykjanesbær s. 578 5560
Heilsumoli vikunnar
Biotta Digestive

Sveskjur og fíkjur eru þekktar fyrir að vera mild en afar áhrifarík áhrif hjálp til að hraða fæðunni í gegnum meltingarfærin. Biotta Digestive er sveskjusafi blandaður fíkjuþykkni ásamt epla- og þrúgu... Meira

Uppskrift mánaðarins
Bragðsterkur engifer-lax

1 kg laxaflak (flök) 1 dl hrásykur 1 dl Maldon hafsalt 4 msk rifinn engifer rifinn börkur af lífrænt ræktaðri sítrónu 1 rauður chili belgur, skorinn í þunna strimla Blandið öllum kryddefnum saman. Le... Meira

Basica

Slappur, þreyttur eða þreklaus? Og það án merkjanlegrar ástæðu? Þá er rétt að renna aðeins í huganum í gegnum liðna daga. Var mikil streita og lítill tími fyrir sjálfan sig? Varð skyndibitinn fyrir valinu í stað hollra máltíða? Liðu dagar og kvöld við skrifborðið og í sófanum án fersks lofts? Var lítið um hreyfingu?

Ef “já” er svar við, þó ekki sé nema einni af þessum spurningum, gæti lausn verið í sjónmáli. Líkaminn er yfirsýrður. Mikilvægt jafnvægi millu sýra og basa í líkamanum hefur farið úr jafnvægi. Örsökin gæti verið skortur á basískum fjörefnum sem jafna út sýrurnar. Sé sýru-basa búskapur líkamans ekki í jafnvægi, kvartar líkaminn og verður slappur. Sé samspil sýru og basa í lagi eru efnaskiptin eðlileg, líkaminn í jafnvægi og við erum þá full af þreki, lífsorku og vellíðan.

Við erum stöðugt að taka inn mismunandi magn af sýrum og bösum og líkaminn leitast við að halda þessu í jafnvægi. Svo til öllu ferli lífsins er nauðsyn að hafa ákveðið jafnvægi sýru og basa, til að skila hámarksafköstum. Sem fyrr greinir geta ótal þættir valdið þarna ójafnvægi og aukið myndun íþyngjandi sýra. Ekki veldur allt sýringu sem er súrt á bragðið, t.d. innihalda sítrónur og vínedik basískt virk steinefni sem hafa jákvæð áhrif á sýru-basa búskapinn en sýrurnar úr þessari fæðu jafnar líkaminn auðveldlega. Sýrumyndandi fæðutegundir eru ekki súrar á bragðið en í meltingarferlinu og við frásog fruma á þessari fæðu myndast súr efni. Í hópi þessara fæðutegunda eru mörg algeng næringarefni eins og prótín, einkum og sér í lagi af dýrum. Jurtaprótín veldur líkamanum ekki sama vanda og er því góður kostur.

Auk þess að laga áður upptalda þætti, er nauðsynlegt að nota basísk fjörefni til að gera sýrurnar óvirkar og hjálpa líkamanum að losa sig við þær. Basísk “fjörefni” eru lífrænt bundin stein- og snefilefni. Dæmi um slíkt efni er natríumsítrat sem er natríumsalt sítrónusýru. Natríumsítrat getur gert sýrur í líkamanum óvirkar. Við það ferli myndast sítrónusýra sem breytist í koldíoxíð og vatn án þess að íþyngja líkamanum. Koldíoxíðinu öndum við frá okkur í gegnum lungun. Natríumjónin sem eftir standa stuðla að losun sýra í gegnum nýrun og þar með afsýringu líkamans. Lífræn basísk fjörefni eru því einkar mikilvæg fyrir losun sýra. Langvarandi skortur á basískum fjörefnum getur leitt til skertrar starfsemi efnaskipta.

Basica inniheldur lífræn basísk steinefni eins og natríumsítrat auk fjölda annarra stein- og snefilefna, sem vinna gegn yfirsýringu líkamans. Í Basica er ekkert natríumklóríð og hefur það því engin áhrif á blóðþrýsting. Burðarefni Basica er mjólkursykur sem hefur jákvæð áhrif á frásog steinefna í þörmum. Mjólkursykur örvar auk þess meltinguna og bætir þarmaflóruna. Basica er glútenfrítt.

Basica fæst sem duft til að hræra út í jógúrt, safa, súpur eða hvaða mat eða drykk sem er. Einnig er Basica til í töflum fyrir þá sem heldur kjósa það form. Töflurnar innihalda sáralítinn mjólkursykur og henta því þeim sem hafa mjólkuróþol.

Upplýsingar þessar eru samansafn fróðleiks um náttúrulegar lækningar. Þeim er ekki ætlað að koma í stað tilmæla eða ráðgjafar fagfólks í heilbrigðisþjónustunni. Sjúklingar á lyfjum, einkum séu þeir haldnir alvarlegum sjúkdómum ættu að ráðfæra sig við lækni áður en þeir hefja neyslu bætiefna.
Senda á Facebook
Letur A +A
Vildarklúbbur Íbúar Heilsuhússins !