Heilsuhúsið

Verslanir
  • Laugavegur s. 552 2966
  • Lágmúla s. 578 0300
  • Kringlunni s. 568 9266
  • Smáratorgi s. 564 5666
  • Selfossi s. 482 3915
  • Akureyri s. 462 1889
  • Reykjanesbær s. 578 5560
Heilsumoli vikunnar
Biotta Digestive

Sveskjur og fíkjur eru þekktar fyrir að vera mild en afar áhrifarík áhrif hjálp til að hraða fæðunni í gegnum meltingarfærin. Biotta Digestive er sveskjusafi blandaður fíkjuþykkni ásamt epla- og þrúgu... Meira

Uppskrift mánaðarins
Bragðsterkur engifer-lax

1 kg laxaflak (flök) 1 dl hrásykur 1 dl Maldon hafsalt 4 msk rifinn engifer rifinn börkur af lífrænt ræktaðri sítrónu 1 rauður chili belgur, skorinn í þunna strimla Blandið öllum kryddefnum saman. Le... Meira

Beta karotín

Beta karótín er vatnsleysanlegt andoxunarefni sem breytist eftir þörfum líkamans í A-vítamín (og er stundum kallað for-A-vítamín). Ýmsir þættir hafa áhrif á umbreytinguna, s.s próteinmagn líkamans, virkni skjaldkirtilshormóna, sínk og C-vítamín.1 Sé skortur á einu eða fleirum þessarra hjálparefna á líkaminn mjög erfitt með að búa til A-vítamín úr beta karótíni. Beta karótín er að finna í ýmsum jurtum og grænmeti, s.s. alfalfa, spínati, gulrótum, grænum paprikum, aprikósum og sætum kartöflum. Langmest af beta karótíni í bætefnaformi er ónáttúrulegt og er aðeins úr einni gerð sameinda (trans beta karótín). Náttúrulegt beta karótín er hins vegar úr tveimur gerðum sameinda (trans og 9-cis beta karótín).

Í fyrstu sáu vísindamenn ekki afgerandi mun á þessum gerðum en síðar kom í ljós að aðeins náttúrulega beta karótínið býr yfir andoxunareiginleikum.2,3 Í annarri rannsókn kom í ljós að krabbameinsvefur á frumstigi breyttist í heilbrigðan vef við inntöku á náttúrulegu beta karótíni en ekki við inntöku á ónáttúrulegu.4 Eins hafa áhrif náttúrulegs beta karótíns á áreynsluastma verið rannsökuð.5 Í rannsókn sem gerð var á 38 manns reyndust 20 finna mun minna fyrir astmanum við áreynslu eftir að hafa tekið inn 64 mg á dag í eina viku.

Þar sem beta karótín er vatnsleysanlegt safnast það ekki fyrir í líkamanum og eru stórir skammtar því ekki skaðlegir lifrinni eins og gildir um fituleysanlegt A-vítamín. Hins vegar er ekki mælt með að fólk með vanvirkan skjaldkirtil taki beta karótín þar sem líkaminn gæti átt í erfiðleikum með að breyta því í A-vítamín og því nýtist það ekki sem skyldi.

Fólk sem reykir ætti ekki að taka inn ónáttúrulegt beta karótín því rannsóknir benda til að það geti aukið líkur á lungnakrabbameini hjá reykingafólki.6,7,8 Einungis var notað ónáttúrulegt beta karótín í rannsóknunum en enn hefur ekki verið staðfest hvort náttúrulegt beta karótín hafi þessi sömu áhrif á reykingafólk.

Þungaðar konur og þær sem eru að reyna að verða barnshafandi, ættu ekki að taka meira en 5000 ae af fituleysanlegu A-vítamíni á dag. Sýnt hefur verið fram á að 10.000 ae daglegir skammtar geti valdið skaða á fóstri. Til að fyrirbyggja allar slíkar hættur er æskilegra að taka A-vítamínið inn í formi beta karótíns.


Heimildir:
  • Brubacher BG and Weiser H, The vitamin A activity of beta-carotene. Int J Vit Nutr Res 55, 5-15, 1984.
  • Bitterman N, Melamed Y, Ben-Amotz A. Beta-carotene and CNS oxygen toxicity in rats. J Appl Physiol 1994;76:1073–6.
  • Ben-Amotz A, Levy Y. Bioavailability of a natural isomer mixture compared with synthetic all-trans beta-carotene in human serum. Am J Clin Nutr 1996;63:729–34.
  • Yeum KJ, Azhu S, Xiao S, et al. Beta-carotene intervention trial in premalignant gastric lesions. J Am Coll Nutr 1995;14:536 [abstr #48].
  • Neuman I, Nahum H, Ben-Amotz A. Prevention of exercise-induced asthma by a natural isomer mixture of beta-carotene. Ann Allergy Asthma Immunol 1999;82:549–53.
  • Albanes D, Heinone OP, Taylor PR, et al. Alpha-tocopherol and beta-carotene supplements and lung cancer incidence in the Alpha-Tocopherol, Beta-Carotene Cancer Prevention Study: effects of base-line characteristics and study compliance. J Natl Cancer Inst 1996;88:1560–70.
  • Omenn GS, Goodman GE, Thornquist MD, et al. Effects of a combination of beta carotene and vitamin A on lung cancer and cardiovascular disease. N Engl J Med 1996;334:1150–5.
  • Lee IM, Cook NR, Manson JE, et al. Beta-carotene supplementation and incidence of cancer and cardiovascular disease: the Women’s Health Study. J Natl Cancer Inst 1999;91:2102–6.

Upplýsingar þessar eru samansafn fróðleiks um náttúrulegar lækningar. Þeim er ekki ætlað að koma í stað tilmæla eða ráðgjafar fagfólks í heilbrigðisþjónustunni. Sjúklingar á lyfjum, einkum séu þeir haldnir alvarlegum sjúkdómum ættu að ráðfæra sig við lækni áður en þeir hefja neyslu bætiefna.

Senda á Facebook
Letur A +A
Vildarklúbbur Íbúar Heilsuhússins !