Heilsuhúsið

Verslanir
  • Laugavegur s. 552 2966
  • Lágmúla s. 578 0300
  • Kringlunni s. 568 9266
  • Smáratorgi s. 564 5666
  • Selfossi s. 482 3915
  • Akureyri s. 462 1889
  • Reykjanesbær s. 578 5560
Heilsumoli vikunnar
Biotta Digestive

Sveskjur og fíkjur eru þekktar fyrir að vera mild en afar áhrifarík áhrif hjálp til að hraða fæðunni í gegnum meltingarfærin. Biotta Digestive er sveskjusafi blandaður fíkjuþykkni ásamt epla- og þrúgu... Meira

Uppskrift mánaðarins
Bragðsterkur engifer-lax

1 kg laxaflak (flök) 1 dl hrásykur 1 dl Maldon hafsalt 4 msk rifinn engifer rifinn börkur af lífrænt ræktaðri sítrónu 1 rauður chili belgur, skorinn í þunna strimla Blandið öllum kryddefnum saman. Le... Meira

D vítamín

D-vítamín er stundum kallað sólarvítamín vegna þess að húðin framleiðir það þegar hún verður fyrir áhrifum útfjólublárra geisla sólarljóss. Auk þess fáum við D-vítamín úr fæðunni. D-vítamín er fituleysanlegt þ.e. líkaminn geymir umframmagn af D-vítamíni í lifrinni til betri tíma. D-vítamín er nauðsynlegt til að skjaldkirtill og fleiri kirtlar starfi eðlilega. Það hindrar tannskemmdir og tannrótarbólgur auk þess að koma í veg fyrir beinkröm. Þar sem það gegnir lykilhlutverki í viðhaldi beina, með því að stuðla að upptöku kalks, fosfórs og annarra steinefna verður æ algengara að bætt sé D-vítamíni í kalktöflur. Rannsóknir á beinþéttni hjá eldri borgurum leiða ítrekað í ljós nauðsyn þess að þeir taki inn D-vítamín til að koma í veg fyrir beinþynningu. Fólk á norðlægum slóðum þarfnast aukins D-vítamíns á veturna vegna þess hve stutt dagsbirtu nýtur þá við.

D-vítamín er að finna í feitum fiski eins og laxi, síld og lúðu. Mest er þó af því í þorskalifur, enda er unnið úr henni lýsi sem er auðugt af D-vítamíni. Einnig er nokkuð af D-vítamíni í fræspírum, sveppum, sólblómafræjum, mjólkurafurðum og eggjum. Loftmengun, paraffínolía og laxerolía eru gagnvirk D-vítamíni.

Hjá börnum er helsta einkenni D-vítamínskorts beinkröm, tannskemmdir og kyrkingslegur vöxtur. Einkenni hjá fullorðnum eru m.a. lystarleysi, þróttleysi, vöðvaslappleiki, önuglyndi, ótímabær öldrun og beinþynning. Þegar skorturinn er kominn á alvarlegt stig verða beinin mjúk og aflagast. Skortur á D-vítamíni er talinn gera karla veikari fyrir krabbameini í blöðruhálskirtli og ristli en konur veikari fyrir brjóstakrabbameini.


Ráðlagðir dagsskammtar eru:
  • ungbörn að 12 mánaða aldri: 10 mcg
  • bæði kyn að 18 ára aldri: 10 mcg
  • 19-60 ára: 7 mcg
  • bæði kyn 60 ára og eldri 10 mcg
  • þungaðar konur: 10 mcg
  • konur með barn á brjósti: 10 mcg

Ath.: 10 mcg jafngilda 400 alþjóðaeiningum (ae).


Upplýsingar þessar eru samansafn fróðleiks um náttúrulegar lækningar. Þeim er ekki ætlað að koma í stað tilmæla eða ráðgjafar fagfólks í heilbrigðisþjónustunni. Sjúklingar á lyfjum, einkum séu þeir haldnir alvarlegum sjúkdómum ættu að ráðfæra sig við lækni áður en þeir hefja neyslu bætiefna. Senda á Facebook
Letur A +A
Vildarklúbbur Íbúar Heilsuhússins !