Heilsuhúsið

Verslanir
  • Laugavegur s. 552 2966
  • Lágmúla s. 578 0300
  • Kringlunni s. 568 9266
  • Smáratorgi s. 564 5666
  • Selfossi s. 482 3915
  • Akureyri s. 462 1889
  • Reykjanesbær s. 578 5560
Heilsumoli vikunnar
Biotta Digestive

Sveskjur og fíkjur eru þekktar fyrir að vera mild en afar áhrifarík áhrif hjálp til að hraða fæðunni í gegnum meltingarfærin. Biotta Digestive er sveskjusafi blandaður fíkjuþykkni ásamt epla- og þrúgu... Meira

Uppskrift mánaðarins
Bragðsterkur engifer-lax

1 kg laxaflak (flök) 1 dl hrásykur 1 dl Maldon hafsalt 4 msk rifinn engifer rifinn börkur af lífrænt ræktaðri sítrónu 1 rauður chili belgur, skorinn í þunna strimla Blandið öllum kryddefnum saman. Le... Meira

Efalex

Hvað er Efalex?
Efalex blandan er byltingarkennt bætiefni, sérstaklega framleitt til þess að halda við virkni augna og heila. Efalex er sett saman úr hreinni kvöldvorrósarolíu og túnfiskolíu sem innihalda þrjár mikilvægar fitusýrur: Docosahexaenoic sýru (DHA), arachidonic sýru (AA) og gamma línólsýru (GLA sem líkaminn umbreytir í AA fitusýrur) ásamt tveimur öflugum andoxunarefnum, E-vítamími og tímían olíu, sem vinna saman að verndun fitusýranna.

Vísindalegar rannsóknir undir handleiðslu Dr. Jackie Strody og nokkrar aðrar rannsóknir háskóla- og sjúkrastofnanna hafa sýnt fram á að hin einstaka samsetning Efalex er mikilvæg samhæfingu og virkni augna og heila.

Vel útfærð fæða getur ekki alltaf tryggt nauðsynlega samsetningu fitusýra
Lífsnauðsynlegar fitusýrur leika lykihlutverk í samhæfingu augna og heila, svo það er nauðsynlegt að fá nóg af þeim úr fæðunni til þess að líkamlegum þörfum okkar sé fullnægt. Líkami okkar getur framleitt AA fitusýrur úr línólsýru (LA) sem finnst í mjólk, hnetum og matarolíum og DHA út alfa línólsýru (ALA) sem eru í dökkgrænu laufgrænmeti, og nokkrum tegundum matarolía. Engu að síður getur þessi umbreyting stundum verið ófullnægjandi. Þar spila inn í þættir eins og almennt heilsufar, mataræði, lífsstíll, neysla kólesteróls og óhóflegt magn mettaðra fitusýra.

Efalex getur viðhaldið hæfilegu jafnvægi fitusýra
Hin einstaka Efalex bætiefnablanda tryggir nýtingu DHA og AA fitusýranna. Hún hentar fólki á öllum aldri og getur verið sérlega gagnleg börnum. Efalex blandan er þægileg leið til þess að efla fæðu okkar með réttri næringu sem inniheldur það sem rannsóknir hafa sýnt að viðhaldi heilbrigðri virkni augna og heila.

Hvað um aðrar uppsprettur DHA, GLA og AA?
Olía úr þorskalifur og nokkrar aðrar fiskolíur innihalda DHA en engin eins mikið og vel valin túnfiskolía sem notuð er í Efalex blönduna. Til viðbótar inniheldur þorskalifur oftast mikið magn A og D vítamína sem geta verið skaðleg ef þeirra er neytt í of stórum skömmtun. Efalex blandan inniheldur aðeins örlítinn skammt af þessum vítamínum. Ennfremur tryggir Efamol gæði þar sem einstök uppspretta þess tryggir gæðaolíur sem eru auðugar og ávallt uppfullar af DHA, AA og GLA fitusýrum.

Verndarhlutverk E-vítamíns og timían olíu
Staðreyndin er sú að heilsa okkar almennt og fæða getur með slæmum hætti haft áhrif á efnaframleiðslu líkamans og raskað viðkvæmri byggingu frumnanna. Tengt þessu er oxun eða skemmdir á fitusýrum í frumuhinum sem geta haft þau áhrif að frumuvirkni verður ekki fullnægjandi. Rannsóknir hafa sýnt fram á að andoxunareiginleikar E-vítamíns og timían olíunnar hjálpa til við að hreinsa upp það sem ræðst að frumunum, það sem verndar LPCs í frumunum frá því að skemmast.

Engin rotvarnar- eða litarefni
Efalex blandan er laus við sykur, ger, mjólkurafurðir, kornsterkju, glúten, rotvarnarefni og litarefni.

Hverjir geta neytt Efalex?
Efalex blandan er hugsuð fyrir fólk á öllum aldri, allt fyrir börn frá tveggja ára aldri og upp úr og nú hefur Efamol Ltd. sett á markaðinn ljúffengt Efalex í fljótandi formi til þess að auka valkosti neytenda.

Af hverju ekki að prófa okkar nýja sítrónu- og súraldinbragðbætta Efalex í fljótandi formi?
Það eru margir sem vilja neyta Efalex en hafa verið ófærir um það þar sem þeir eiga í erfiðleikum með það að gleypa töflurnar, þar með talið ung börn og þeir elstu einnig, einnig þeir sem vilja undanskilja gelatín úr fæðu sinni.

Nú má fá Efalex blönduna fyrir alla þá sem vilja fá gómsæta sítrónu- og súraldinbragðbætta olíu sem maður hellir í teskeið og kyngir auðveldlega.

Efalex í hylkjum
Eins og í öllum sínum vörum notar Efamol Ltd. eingöngu hágæðahráefni í framleiðslu á Efalex blöndunni. Lyfafræðilegt gelatín er notað til þess að móta hylkin. Gelatínið er sótt út fyrir Bretland og er viðurkennt af heilbrigðisyfirvöldum.

Sjáið töfluna hér fyrir neðan til þess á átta ykkur á ráðlagri daglegri neyslu:

 

HYLKI

VÖKVI (teskeiðar) 

 

 fyrstu 12 vikurnar

 eftir 12 vikur

  fyrstu 12 vikurnar

  eftir 12 vikur 

Fullorðnir
og börn yfir 5 ára

 8

Börn undir 5 ára

 4-6

2-4 

2



Á fyrstu 12 vikunum er ráðlagt að neytt sé helmings skammtanna á morgnana og hins helmingsins á kvöldin.

Líkt og C-vítamín er líkaminn stöðugt að nýta fitusýrurnar. Ráðlagður skammtur er byggður á niðurstöðum margra rannsókna sem sýna að það tekur um 12 vikur að fylla tanka líkamans af DHA og AA fitusýrum. Eftir þann tíma er mögulegt að minnka skammtinn til þess að viðhalda fullnægjandi þörf.

Er óhætt að taka Efalex með lyfjum?
Á meðan almennt er talið að óhætt sé að að neyta Efalex með lyfjum ættu samt allir sem eru undir eftirliti lækna eða eru að neyta lyfja að ráðfæra sig við lækna áður en þeir hefja inntöku bætiefna.


Gæðaloforð Efamol® framleiðenda Efalex:

Efamol Ltd. eru leiðandi sérfræðingar í heiminum í dag á sviði lífsnauðsynlegra fitusýra.
Efamol Ltd.ábyrgist einstaka vinnsluaðferð og gæði kvöldvorrósarolíunnar sem viðheldur jafnvægi hins dýrmæta GLA.
Gæði Efamols tryggja að túnfiskolían í Efalexinu sé auðug og ávallt uppfull af DHA.
Vísindamenn Efamol hafa haldið úti stærstum hluta rannsókna í þágu lífsnauðsynlegra fitusýra.
Senda á Facebook
Letur A +A
Vildarklúbbur Íbúar Heilsuhússins !