Heilsuhúsið

Verslanir
  • Laugavegur s. 552 2966
  • Lágmúla s. 578 0300
  • Kringlunni s. 568 9266
  • Smáratorgi s. 564 5666
  • Selfossi s. 482 3915
  • Akureyri s. 462 1889
  • Reykjanesbær s. 578 5560
Heilsumoli vikunnar
Biotta Digestive

Sveskjur og fíkjur eru þekktar fyrir að vera mild en afar áhrifarík áhrif hjálp til að hraða fæðunni í gegnum meltingarfærin. Biotta Digestive er sveskjusafi blandaður fíkjuþykkni ásamt epla- og þrúgu... Meira

Uppskrift mánaðarins
Bragðsterkur engifer-lax

1 kg laxaflak (flök) 1 dl hrásykur 1 dl Maldon hafsalt 4 msk rifinn engifer rifinn börkur af lífrænt ræktaðri sítrónu 1 rauður chili belgur, skorinn í þunna strimla Blandið öllum kryddefnum saman. Le... Meira

Ester-C vítamín

Ester-C (kalsíum pólýaskorbat) er einstök, fjölþætt blanda sem inniheldur C-vítamín í margs konar formi og er því talað um það sem fjöl-askorbat (pólýaskorbat). Það inniheldur askorbat, dehydróaskorbat (það form sem C-vítamín þarf að breytast í, áður en frumur líkamans geta tekið við því), og önnur náttúruleg form C-vítamíns sem henta líkamanum.

Dr. Howard Hunt, prófessor emeritus við Kaliforníuháskóla í San Diego og Dr. Thomas Rice hjá Life Management Group stóðu fyrir rannsókn þar sem borið var saman magn af C-vítamíni í blóði sjálfboðaliða eftir neyslu annars vegar venjulegs C-vítamíns og hins vegar Ester-C. Hvít blóðkorn voru einangruð úr blóðinu við inntöku og síðan 1, 2, 4 og 24 tímum eftir neyslu. Leiddi rannsóknin í ljós að allt að 4 sinnum meira var af C-vítamín í blóði þeirra sem neyttu Ester-C en hinna sem fengu venjulegt C-vítamín.

Einkaleyfi er á framleiðslu Ester-C. Það er ekki súrt eins og C-vítamín er annars, hefur svipað sýrustig og eimað vatn og áreitir því meltingarfærin afar lítið. Kostir Ester-C umfram venjulegt C-vítamín eru m.a.:


  • Líkaminn nýtir hærra hlutfall af Ester-C en öðru C-vítamíni
  • Frásogast tvöfalt hraðar en kalsíum askorbat
  • Það helst í líkamanum og nýtist honum tvöfalt lengur en venjuleg askorböt
  • Það hækkar C-vítamín magn í vefjum fjórfalt meira en venjulegt C-vítamín
  • Það hækkar C-vítamín magn í blóði tvöfalt á við kalsíum askorbat


Nýlegar rannsóknir benda til mikilvægis C-vítamíns í sambandi við streitu og sálræna sjúkdóma. Ljóst þykir að streita eyðir C-vítamíni úr líkamanum. C-vítamín er nauðsynlegt fyrir heilbrigða starfsemi kirtla og líffæra, einnig fyrir heilbrigði tanna, góms, beina og bandvefs og til að sár grói eðlilega. Ásamt með seleni, A og E vítamínum veitir það vörn gegn svonefndum sindurefnum, sem og skaðaverkunum eitraðra efna úr umhverfi, fæðu, lyfjum og fleiru. Rannsóknir benda til að reykingar eyði C-vítamíni úr líkamanum og reykingafólk þurfi því sérstaklega á auknu C-vítamíni að halda.


Upplýsingar þessar eru samansafn fróðleiks um náttúrulegar lækningar. Þeim er ekki ætlað að koma í stað tilmæla eða ráðgjafar fagfólks í heilbrigðisþjónustunni. Sjúklingar á lyfjum, einkum séu þeir haldnir alvarlegum sjúkdómum ættu að ráðfæra sig við lækni áður en þeir hefja neyslu bætiefna. Senda á Facebook
Letur A +A
Vildarklúbbur Íbúar Heilsuhússins !