FOS (Fructo- Oligo- Saccarides)
FOS nærir vinalegu bakteríurnar í þörmunum
Á undanförnum hafa vísindamenn uppgötvað uppleysanlegar trefjar í ákveðnum tegundum grænmetis og ávaxta sem kallast FOS. Þetta eru trefjar sem virka sem fæða fyrir vinalegu bakteríurnar í þörmunum en meltast hvorki né frásogast. Vegna þessa einstöku eiginleika FOS( Fructo-Oligo-Saccharides), sem sannað er að bæti eða viðhaldi góðu ástandi þarmana, hefur það afgerandi áhrif á almenna heilsu okkar. FOS, sem er frá hinum virta heilsuvöruframleiðenda Higher Nature, fæst nú í Heilsuhúsinu.
Niðurbrot fæðu og frásög næringarefna á sér stað í okkar óralöngu þörmum. Allur gangur á því er hjá fólki hvernig jafnvægi þarmaflóru þess er. Margir óvelkomnir ferðfélagar laumast með og hafa truflandi áhrif á vinalegu bakteríurnar. Hinir óvelkomnu ferðafélagar eru vírusar, ger, sveppir, sníkjudýr og meinvirkar bakteríur. Þetta eru allt skaðlegar bakteríur. Fyrstu viðbrögð líkamans gegn þessum þeim eru að seyta sýru í maga, sem gerir okkur auðvitað súr.
Þessa óvelkomu gesti er að finna í meira og minna allri fæðu okkar. Þeir setjast að í þörmunum og geta smám saman náð yfirhöndinni. Þegar þeir hafa komið sér vel fyrir verður til ástand sem kallast “gut dysbiosis” og hið lífsnauðsynlega þarmajafnvægi hefur raskast. Svokallaðar þarmafestingar skaðast af sýru og gasi og bólgna upp og jafnvel rifna en það er alvarlegt ástand sem kallast “leaky gut” eða lekar garnir. Göt myndast á þörmunum og skaðlegu bakteríur eiga greiða leið út í blóðið. Þá gengur á næringarupptöku og orku líkamans. Ef ekki tekst að laga þetta ástand fara ýmis alvarleg óþægindi að gera vart við sig, eins og fæðuofnæmi, síþreyta, iðrabólgu (IBS), hægðartregða, niðurgangur og lélegt ónæmiskerfi.
Meira um FOS FOS finnst m.a. í lauk, hvítlauk, kaffífilsrót, blaðlauk, reyrsykri, Jerusalem artichocke og aspas. Og eins og segir fyrr í greininni frásogast FOS hvorki né meltist í maga eða smáþörmum en ferðast engu að síður niður í ristill. Góðu eiginleikar FOS liggja í einstökum gerjunareiginleikum þess.
Rannsóknir hafa sýnt að FOS hreinlega næri vinalegu bakteríurnar í þörmunum, sem við þekkjum sem lactobacillus acidophilus, lactobacillus sporogenes og lactobacillus salivarius og einnig bifido bakteríurnar í ristlinum. Á meðan geta meinvaldar eins og E.coli, clostridida og salmonella með engum hætti nærst á FOS. Með inntöku FOS blómstra góðu bakteríurnar og meinvaldarnir verða undir. Þetta þýðir að afeitrun fer að eiga sér stað; lifrin verður virk sem fyrr og ónæmiskerfið styrkist. Þegar bifido bakteríurnar fá sína næringu í gegnum FOS framleiða þær afurðir eins og B-vítamín, fjölónæmar bakteríur og lífræna sýru sem skapar m.a.gott umhverfi fyrir þarmafestingarnar. Sýnt hefur verið fram með rannsóknum að lífrænar sýrur á borð við butyric sýru verndar fólk gegn krabbameini ristli.
Fleiri rannsóknir á FOS Fjöldi annarra rannsókna hefur sýnt fram frábær áhrif FOS á bifido bakterírunar, sem t.d. auka upptöku kalks, lækka kólesteról og þríglýseról og eykur glúkósaþol. FOS hraðar einnig meltingunni sem dregur úr hægðatregðu og óþægindum. Það leiðir til þess að rúmmál ristilsins eykst og þar með vatnsbúskapur hans. FOS hefur jafnvel verið tengt því að draga úr bakteríum sem valda magasárum, svokölluðum Helicobacter pylori sem grafa um sig í magaveggjum og smáþörmum. Þetta þýðir með öðrum orðum að FOS bætir nær allt meltingarkerfið.
FOS fæst í Heilsuhúsinu í duftformi og er afar bragðgott en því er bæði hægt að blanda saman við mat eða drykk. Líka heitan drykk og mat. En jafnvel þótt FOS sé fremur sætt á bragðið er óþarft að telja það með kaloríunum sem maður neytir dagsdaglega því eins og áður sagði meltist það hvorki né frásogast. Fólki er ráðlagt er að taka inn góðan acidofílus í þrjá daga áður en það hefur neyslu á FOS og halda svo áfram að taka þetta tvennt samana til þess að ná hámarksárangri.
Byggt á grein eftir Susan Perry
Sjá nánari upplýsingar á
www.highernature.co.uk Upplýsingar þessar eru samansafn fróðleiks um náttúrulegar lækningar. Þeim er ekki ætlað að koma í stað tilmæla eða ráðgjafar fagfólks í heilbrigðisþjónustunni. Sjúklingar á lyfjum, einkum séu þeir haldnir alvarlegum sjúkdómum ættu að ráðfæra sig við lækni áður en þeir hefja neyslu bætiefna.
Senda á Facebook