Freyspálmi / e: Saw Palmetto / lat: Sabal serrulata
Freyspálmi er þekktur undir tveimur latneskum nöfnum, Sabal serrulata og Serenoa rebens. Fituleysanlegt þykkni sem búið er til af berjum freyspálma hefur gagnast einstaklega vel við góðkynja stækkun blöðruhálskirtils (GSB). Virkni þess byggist á því, að efni sem í freyspálmanum eru, hemja ensímið sem breytir testósteróni í dihydrótestósterón (DHT)1, auk þess sem þau varna því að DHT bindist við bindistaði sína.1 Margar rannsóknir staðfesta framúrskarandi virkni þessarar jurtar og benda þær til þess að breytingar til hins betra geta komið fram eftir 4-6 vikur hjá 2 af hverjum 3 mönnum sem taka freyspálma inn.2, 3, 4, 5
Þriggja ára þýsk rannsókn leiddi í ljós, að ef tekin voru 160 mg af freyspálma tvisvar á dag fækkaði næturferðum á klósettið hjá 73% sjúklinganna auk þess sem þvagflæði batnaði töluvert.6 Í breskri rannsókn á 250 sjúklingum á aldrinum 35-70 ára, dró úr einkennum hjá 94% sjúklinga við notkun freyspálma.1 Í annarri rannsókn sem 305 sjúklingar tóku þátt í og þeim gefinn 160 mg skammtur tvisvar á dag, fundu 83% þátttakenda fyrir bata eftir 45 daga og eftir 90 daga var hlutfallið komið upp í 88%.7
Freyspálmi virkar á sama hátt og algengustu lyf sem gefin eru við góðkynja stækkun blöðruhálskirtils. Helstu kostir sem hann hefur fram yfir lyfin er að hann er ódýrari, virkar á styttri tíma (4-6 vikum í stað 10-12 mánaða)1 og honum fylgja ekki þær aukaverkanir sem oft fylgja lyfjunum (svimi, getuleysi og minnkandi kynhvöt)6. Algengasti dagsskammtur sem gefinn er af freyspálma eru 320 mg af þykkni sem inniheldur 85-95% fitusýrur og steróla. Óþarft er að fara yfir það magn, þar sem ekki hefur mælst betri árangur þó skammturinn sé stærri.8
Heimildir: - Murray, M og Pizzorno, Joseph. Encyclopedia of Natural Medicine. Prima publishing, 1998.
- E. Emili, M. Lo Signo and U. Perone, “Clinical Trial of a New Drug for Treating Hypertrophy of the Prostate (Permixon),” Urologia 50 (1983): 1042-8.
- S. Boccafoschi and S. Annoscia, “Comparison of Serenoa repens Extract with Placebo by Controlled Clinical Trial in Patients with Prostatic Adenomatosis,” Urologia 50 (1983): 1257-68.
- G. Champlault, J.C. Patel and A.M Bonnard, “A Double-blind Trial of an Extract of the Plant Serenoa repens in Benign Prostatic Hyperplasia,” Br. J Clin Pharmacol 18 (1984): 461-2.
- Marks Ls, Partin AW, Epstein JI, et al. Effects of a saw palmetto herbal blend in men with symptomatic benign prostatic hyperplasia. J Urol. 2000; 163: 1451-1456.
- Bach D. Medikamentose Langzeitbehandlung der BPH. Ergebnisse einer prospektiven 3-Jahres-Studie mit dem Sabalextrakt IDS 89. Urologe (B). 1995; 35:178-183.
- J. Braeckman, “The Extract of Serenoa repens in the Treatment of Benign Prostatic Hyperplasia: A Multicenter Open Study,” Curr Ther Res 55 (1994): 776-85.
- www.consumerlab.com
Upplýsingar þessar eru samansafn fróðleiks um náttúrulegar lækningar. Þeim er ekki ætlað að koma í stað tilmæla eða ráðgjafar fagfólks í heilbrigðisþjónustunni. Sjúklingar á lyfjum, einkum séu þeir haldnir alvarlegum sjúkdómum ættu að ráðfæra sig við lækni áður en þeir hefja neyslu bætiefna.
Senda á Facebook