Heilsuhúsið

Verslanir
  • Laugavegur s. 552 2966
  • Lágmúla s. 578 0300
  • Kringlunni s. 568 9266
  • Smáratorgi s. 564 5666
  • Selfossi s. 482 3915
  • Akureyri s. 462 1889
  • Reykjanesbær s. 578 5560
Heilsumoli vikunnar
Baunir - suðutími

Suðutími bauna Magn miðast við 500 g af þurrum baunum Tegund Magn í dl Tími í bleyti, klst Tími í suðu, mín. Þyngd eftirsuðu í g Aduki baunir 5,5 12 30... Meira

Uppskrift mánaðarins
Linsusalat með sólþurrkuðum tómötum og ætiþistlum

170 g/2 dl linsur, Puy, þurrkaðar 80 g/11/2 dl sólþurrkaðir tómatar í kryddlegi 80 g/11/2 dl ætiþistlar marineraðir í olíu 4 tsk ólífuolía 1/2 dl  Balsamico, edik 1 tsk hvítlaukur eða hvítlauksmauk 1... Meira

GSE/Heilsufréttir 18.tlb.10.árg.2009


 
GSE er áhrifaríkasta sýkla- og sveppadrepandi efnið frá náttúrunnar hendi

-nýtist inn- og útvortis og einnig til heimilisþrifa

Greipaldinkjarnaþykkni (Grapefruit Seed Extract, skammstafað GSE) er eins og nafnið ber með sér gert úr kjörnum greipaldins. GSE hefur fengið viðurnefnið náttúrulegt sýkla- og veirulyf vegna þess hve viðamikla og breiða virkni það hefur. Það verndar ónæmiskerfið gegn innvortis- og útvortis sýkingum, hjálpar líkamanum við að hreinsa sig og sýrujafnar hann. GSE er einstaklega gott gegn candidasveppasýkingu; hefur reynst frábært á frunsur og aðrar herpessýkingar; er gott gegn kvefi og flensu, niðurgangi, vörtum og unglingabólum, svo fátt eitt sé talið. GSE tekur yfir vítt svið. Samkvæmt prentuðum heimildum er efnið virkt gegn yfir 800 tegundum af bakteríum og veirum, 100 tegundum af sveppum og allnokkrum fjölda sníkla. Nýlega kom á markaðinn Maximum GSE, sem er sterkari útgáfa af GSE. Nauðsynlegt er að fara eftir leiðbeiningum um notkun þess. Hér á eftir má sjá nær ótæmandi notkunarmöguleika GSE.


GSE er ríkt af C- og E-vítamínum og bíóflavónóíðum, sem eru andoxunarefni og vernda frumur líkamans. Kjarnarnir geyma einnig lífsnauðsynleg efni eins og kólín sem tilheyrir B-vítamínunum og er nauðsynlegt fyrir heilbrigða starfsemi tauga og efnaskipti fitu. Greipaldinkjarnaþykkni inniheldur einnig svokölluð quaternary efnasambönd sem eru afar virk gegn fjölmörgum tegundum örvera, en þau eru laus við eituráhrif skyldra tilbúinna efnasambanda.


Hvers vegna er GSE kjörinn örveru-vörn?
Í Journal of Orthomolecular Medicine (Vol. 5, No.3 USA, 1990) er greint frá rannsókn alþjóðlegs teymis vísindamanna, þar sem áhrif GSE á 770 tegundir baktería og 93 tegundir sveppa voru könnuð í samanburði við 30 tegundir sýklalyfja og 18 viðurkennd sveppalyf. GSE reyndist ekki síðra en sérhvert lyfjanna. Í því samhengi er mikilvægt að benda á að GSE er hreinræktuð náttúruafurð sem íþyngir ekki ónæmiskerfinu. Þrátt fyrir einstaklega kröftuga virkni hafa til þessa ekki verið skráðar neinar aukaverkanir. Vandamál við flest sýklalyf eru einmitt aukaverkanirnar. Fólk með ofnæmi fyrir sítrusávöxtum ætti þó að byrja meðferð með mjög smáum skömmtum. Ótal læknar hafa gefið GSE afar lofsverða umsögn, sem kristallast í orðum Dr. Klaus Kustermann, M.D. frá Baden Baden í Þýskalandi, en hann segir: “Að mínu áliti er GSE alfarið besta og áhrifaríkasta sýklalyf og sveppaeyðir sem náttúran hefur gefið okkur.”


Sveppasýking (Candida)
Langvarandi sveppasýking hefur verið meðhöndluð með framúrskarandi árangri með GSE, samkvæmt upplýsingum fjölda
sjúkrastofnana og lækna. Dr. David Bayley, læknir í Norður-Vancouver BC, hrósar þykkninu fyrir hversu virkt það er gegn sveppasýkingu. Hann segir: “Virknin er sambærileg við nystatín og GSE er ódýrara”. Dr. Leo Galland M.D. er læknir í N.Y. sem notar GSE mjög mikið gegn sveppasýkingu. Hann segir að þykknið sé “ein merkasta uppgötvun til meðferðar sjúklinga með sníkjudýr og sveppasýkingu”. Dr. Galland hefur einnig greint frá því að hjá 297 sjúklingum hafi þykknið ekki gagnast í aðeins tveimur tilfellum. Hann bætir við: “Það er erfitt að ofmeta gildi GSE í læknisstarfi mínu. Síðastliðið ár hef ég notað GSE við meðhöndlun þarmasníkla og langvarandi sveppasýkingar með frábærum árangri. Við meðhöndlun sveppasýkingar reynist það jafn virkt og nystatín, kaprílsýra og önnur sveppaeyðandi efni fyrir þarmana. Margir einstaklingar sem eru viðkvæmir fyrir lyfjum þola GSE miklu betur en önnur sveppaeyðandi efni og ég er með allnokkurn fjölda sjúklinga þar sem þetta efni eitt og sér lagaði langvarandi sveppasýkingu þegar engin önnur efni dugðu eða að sjúklingurinn þoldi þau ekki.”
Við Autonoma de Nuevo Leon háskólann í Monterrey í Mexikó var GSE prófað á 20 konur við sveppasýkingu í leggöngum. Konurnar þvoðu sér og notuðu þykknið á 12 tíma fresti og fundu fyrir greinilegum bata innan fárra daga.


Kvef og flensa
Alkunna er að kvef og flensa, sem orsakast af ýmsum veiruafbrigðum, eru ónæm fyrir fúkkalyfjum. GSE hefur reynst einstaklega vel við slíku, ekki síst sé það notað ásamt jurtum sem styrkja ónæmiskerfið, eins og Echinacea og ólífulaufsþykkni.

Niðurgangur
Það geta verið margar ástæður fyrir niðurgangi. Sé hann af völdum sýkla, sveppa eða veira, getur GSE komið að góðu gagni. Best er að taka 20 dropa eða 2 töflur á fjögurra tíma fresti og nota ávallt Acidophilus gerla með, til að koma lagi á gerlagróður meltingarfæranna.

Matareitrun
Á ferðalögum um fjarlægar slóðir, þar sem framandi örveruflóra getur gert atlögu að maganum með oft og tíðum afar hvimleiðum afleiðingum, hefur reynst vel að taka GSE inn með morgunmatnum til að verjast óvelkomnum örverum.


Frunsur og annar herpes
Herpes simplex I veira er talin valda hinum ógeðfelldu frunsum, sem einskorða sig ekki alltaf við varirnar. Kynfæra herpes er talin orsakast af öðru afbrigði, Herpes simplex II. Þetta eru einstaklega leiðar veirur og geta valdið heilmiklum óþægindum. GSE hefur gagnast mjög vel, ekki síst sé það notað með lýsinkremi og/eða tetrés-(Tea Tree) olíu.

Sár
GSE er kjörið sótthreinsiefni. Það vinnur ekki aðeins á sýklum heldur örvar það einnig bataferlið, hugsanlega vegna astrigerandi (samandragandi) eiginleika.

Unglingabólur
Unglingabólur geta orsakast af bólgum vegna baktería, skorti á hreinlæti, fæðuofnæmi og hormónaflæði. Sé unglingurinn einnig með candida-sýkingu, getur hún aukið á bólurnar. Hæfilegt er að setja 5 dropa af GSE (eða 2 til 3 dropa af GSE Maximum) saman við daglegan skammt af andlitshreinsi. Einnig er gott í slæmum tilfellum að taka inn 10-15 dropa í glasi af vatni 3 sinnum daglega.

Vörtur
Í almennum upplýsingum um GSE er það m.a. ráðlagt gegn vörtum. Bæði í ritum og á netinu má einnig finna allnokkrar frásagnir þeirra sem notað hafa það með góðum árangri á vörtur. Frekari upplýsinar um GSE má finna á: www.nutribiotic.com  
Áhættulaust er að taka GSE til lengri tíma, en sennilega er þó alltaf best að hvíla inn á milli og taka frekar inn þegar einkenni byrja að sýna sig. Óhætt er fyrir bæði börn og fullorðna að taka GSE og jafnvel hefur dýrum verið gefið það með góðum árangri. Hafa ber í huga að hlutföllin af venjulegu GSE og Maximum GSE eru u.þ.b. einn á móti þremur, þ.e. óhætt er að nota 3 dropa af venjulegu GSE á móti 1 dropa af Maximum GSE í sama magni af vatni.


Hér eru nokkur fleiri dæmi um hvernig nota má Maximum GSE, sem er sterkari útgáfa af GSE:


Innvortis

Munnhreinsun.
Blandið 3 dropum í 150 ml af vatni eða safa, tvisvar til þrisvar á dag. Börn (5 ára og eldri): 1-3 dropar af 150 ml af vatni tvisvar til þrisvar á dag. Aldrei nota óblandað við munnhreinsun.

Hálsskolun.
Blandið 1 dropa af Maximum GSE í hálft glas af vatni. Skolið hálsinn nokkrum sinnum eða eins oft og nauðsynlegt er. Blandið ávallt fyrir notkun.

Eyrnahreinsun.
Blandið vel saman 1-3 dropum af Maximum GSE við botnfylli af glyseról eða hreinu alkahóli. Setjið 1-2 dropa af blöndunni í eyrað einu sinni til tvisvar á dag. Notið eins lengi og þarf. Varist að nota of sterka blöndu í eyrað.

Nefhreinsun (aðeins fyrir fullorðna).
Blandið 1 dropa af Maximum GSE saman við fullt glas af vatni. Notið dropateljara eða Netipot. Hallið til hliðar ef þið notið Netipot eða aftur með hausinn ef þið notið dropateljara. Passið ykkur á að draga ekki andann meðan þið hellið í nefgöngin. Blandið ávallt fyrir notkun.

Við sveppasýkingu í leggöngum.
Blandið 1 til 2 dropum af Maximum GSE saman við fullt glas af vatni. Framkvæmið einu sinni á dag í eina viku til þess að losna við sveppasýkingu, eða jafnvel lengur. Blandið ávallt fyrir notkun.


Útvortis

Andlitshreinsun.
Vætið andlitið með heitu eða köldu vatni. Setið 2 til 3 dropa á fingurgómana og nuddið andlitið með hringlaga hreyfingum. Hreinsið andlitið með köldu vatni og þurrkið. Tilfinning eins og náladofi gæti komið upp í smástund eftir á. Blandið ávallt fyrir notkun.

Húðhreinsun (við minniháttar húðútbrotum)
Blandið GSE í vatn (1-3 dropar í matskeið af vatni). Setjið blönduna beint á viðkvæma svæðið tvisvar á dag. Aldrei nota óblandað á húðina.

Naglameðferð
Blandið GSE í vatn (1-3 dropar í matskeið af vatni). Notið blönduna beint á naglaböndin og undir neglurnar að framanverðu eða vætið allar neglurnar, tvisvar á dag; eins lengi og þörf krefur. Aldrei nota óblandað á neglurnar.

Höfuðhreinsun.
Notið 2 til 4 dropa af Maximum GSE í hvern hárþvott. Blandið saman í lófanum. Nuddið höfuðið vel og leyfið að vera í að minnsta kosti 2 mínútur. Hreinsið vel á eftir með vatni.

Til heimilisnota:
Til að hreinsa tannburstann. Hrærið 2 til 4 dropum af GSE í glas af vatni. Látið tannburstann standa þar í 15 mínútur. Í lagi er að geyma tannburstann í þessari blöndu en skolið hann fyrir notkun. Endurblandið á fimm daga fresti.

Grænmeti, ávextir, kjöt og fuglakjöt:

Þvottur í vaski. Setjið 20 dropa af Maximum GSE í vask fullan af köldu vatni. Dýfið ofan í grænmeti, ávöxtum, kjöti eða fuglakjöti. Tæmið vaskinn og skolið matinn undir vatnsbunu á eftir.

Þvottur með úða. Setjið 10 eða fleiri dropa af Maximum GSE í fullan úðabrúsa af vatni. Úðið á hvaða grænmeti, ávexti eða kjöt sem er. Skolið undir kaldri vatnsbunu á eftir.

Leirtau og hnífapör. Setjið á bilinu 10 til 20 dropa af Maximum GSE í fullan vask af vatni eða 10 til 20 dropa í uppþvottavélina með hreinsiefninu eða undir lokin.

Matarbretti. Berið 5 til 10 dropa af Maximum GSE á matarbretti og vinnið með blautum svampi eða rökum klút. Látið standa í 30 mínútur. Hreinsið síðan af með vatni.

Alhliða hreinsir. Setjið 15-30 dropa af Maximum GSE í hvaða spreybrúsa sem er og fyllið með vatni. Með þessu er hægt að hreinsa alla króka og kima heimilisins.


“Það er erfitt að ofmeta gildi GSE í læknisstarfi mínu.” Dr. Leo Galland M.D. læknir í New York
Senda á Facebook