Heilsuhúsið

Verslanir
  • Laugavegur s. 552 2966
  • Lágmúla s. 578 0300
  • Kringlunni s. 568 9266
  • Smáratorgi s. 564 5666
  • Selfossi s. 482 3915
  • Akureyri s. 462 1889
  • Reykjanesbær s. 578 5560
Heilsumoli vikunnar
Biotta Digestive

Sveskjur og fíkjur eru þekktar fyrir að vera mild en afar áhrifarík áhrif hjálp til að hraða fæðunni í gegnum meltingarfærin. Biotta Digestive er sveskjusafi blandaður fíkjuþykkni ásamt epla- og þrúgu... Meira

Uppskrift mánaðarins
Bragðsterkur engifer-lax

1 kg laxaflak (flök) 1 dl hrásykur 1 dl Maldon hafsalt 4 msk rifinn engifer rifinn börkur af lífrænt ræktaðri sítrónu 1 rauður chili belgur, skorinn í þunna strimla Blandið öllum kryddefnum saman. Le... Meira

Gallexier


 
Hvað gerir Gallexier og hvað er heilsubætandi við beiskar jurtir?
Biturt bragð örvar matarlystina og eykur flæði meltingarsafa frá briskirtli og lifur og heldur þörmunum heilbrigðum. Beiskar jurtir örva líka gallblöðruna og stuðla að nauðsynlegu flæði galls fyrir upptöku fitu og fituleysanlegra vítamína. Þá koma þær í veg fyrir að gallvökvinn þykkni, sá vökvi sem hindrar gallsteinana og ýtir út gallmölinni. Þessar jurtir hjálpa lifrinni að hreinsa sig og brjóta niður feitan og þungan mat. Einnig hafa vísindalegar rannsóknir staðfest að beiskar jurtir létta þeim lífið sem þjást af þindarsliti.Uppistaðan í Gallexier eru beisku jurtirnar þistilhjarta (Artichoke), sem kemur í veg fyrir harðlífi og sníkjudýr, og hin fræga systurjurt hennar,Mjólkurþistill, sem verndar lifrina og blæs nýju lífi í lifrarfrumurnar.

Beiskar jurtir hafa eftirfarandi áhrif á líffærin og líkamann:
  • Þær örva munnvatnsmyndun
  • Slímhimnur verða heilbrigðari og ýta við meltingunni
  • Þær ýta við magahreyfingum og örva gallblöðruna
  • Þær örva sympatíska taugakerfið
  • Lifrin framleiðir meira gall og starfar mun betur

Beiskar jurtir og lifrin
Beiskt bragð hefur afgerandi áhrif á meltinguna, sérstaklega þó lifrina og stendur í raun vörð um efnaskiptajafnvægi líkamans. Starfsemi lifrarinnar felst í því að framleiða vökva svo meltingin verði eins og hún á að vera en líka svo að líkaminn losi sig við hættuleg eiturefni.
Jafnvel þótt margir leggi sig fram um að borða hollan og aukaefnalausan mat er alltaf einhversstaðar að finna einhverjar leifar gervi- eða eiturefna í umhverfinu og í matnum sem við borðum. Mjög mikilvægt er að fólk nái að hreinsa líkamann af þessum óvelkomnu efnum eins hratt og mögulegt er. Lifrin hefur hér gífurlega miklu hlutverki að gegna. Hún þarf á örvun að halda í formi beiskra jurta til þess að gegna hlutverki sínu með sóma.

Hvað gerir lifrin?
  • Lifrin safnar í sig dýrasterkju, kopar og járni til þess að byggja upp frumur líkamans.
  • Lifrin sér um að brjóta niður prótín, kolvetni og fitu.
  • Lifrin fjarlægir eiturefni til þess að halda blóðinu hreinu.
  • Lifrin er efnaverksmiðja líkamans.
  • Lifrin framleiðir gall sem lífsnauðsynlegt til viðhalds góðri meltingu.

Hvernig á að neyta?
Fullorðnir: 20 ml fyrir eða eftir mat. Börn: 10 ml fyrir eða eftir mat.
Nauðsynlegt að geyma í kæli eftir að innsiglið hefur verið rofið.
Senda á Facebook
Letur A +A
Vildarklúbbur Íbúar Heilsuhússins !