Geislablað / e: Butcher´s broom
Butcher´s broom – sem heitir geislablað á íslensku – inniheldur efni sem nefnast ruscogenin og neoruscogenin, en þessi efni styrkja æðaveggi. Jurtin virðist hafa víkkandi áhrif á slagæðar en samandragandi áhrif á bláæðar. Rannsóknir sýna að geislablað ásamt flavonóíðum virðist geta gagnast til að lækka kólesteról.
Upplýsingar þessar eru samansafn fróðleiks um náttúrulegar lækningar. Þeim er ekki ætlað að koma í stað tilmæla eða ráðgjafar fagfólks í heilbrigðisþjónustunni. Sjúklingar á lyfjum, einkum séu þeir haldnir alvarlegum sjúkdómum ættu að ráðfæra sig við lækni áður en þeir hefja neyslu bætiefna.
Senda á Facebook