Glucomannan
Glucomannan eru trefjar unnar úr rótarhnýði jurtar sem m.a. gengur undir nöfnunum djöflatunga og vúdúlilja, latneska: Amorphophallus konjac. Trefjar þessarar jurtar stuðla að jöfnun blóðsykurs og viðhalda tilfinningu mettunar.1 Þar sem oft skortir á að fólk fái nægilegt magn trefja í fæðu sinni notar það gjarnan trefjatöflur. Glucomannan hefur þann kost fram yfir aðrar trefjar, að miklu minna magn þarf af þesssum trefjum en öðrum, þar sem þær geta 17faldast að umfangi þegar þær blandast vökva. Trefjar jurtarinnar verða slím- eða hlaupkenndar þegar þær blandast vökva, þær draga í sig eiturefni og hreinsa þau úr meltingarfærum jafnframt því að stuðla að betri tæmingu þarma. Þessar trefjar binda ekki sink og járn eins og t.d. trefjar hveitiklíðs gera.
Rannsóknir benda til að glucomannan lækki slæmt kólesteról í blóði en stuðli að aukningu góða kólesterólsins. Í tvíblindri rannsókn fengu þáttakendur daglega annað hvort 3 g af glucomannan eða lyfleysu í 8 vikur. Niðurstaðan var sú að hjá þeim sem fengu trefjarnar jókst HDL kólesteról (gott kólesteról) í blóði auk þess sem blóðþrýstingur lækkaði. Þeir lögðu líka af á meðan þeir tóku glucomannan, en hinir sem fengu lyfleysu bættu heldur á sig á sama tíma.2,3,4 Svipaðar niðurstöður annarra rannsókna staðfesta einnig að yfirleitt leggur fólk af á meðan það er að nota þessar trefjar. Jafnframt virðist glucomannan hafa jafnandi áhrif á blóðsykur og getur því gagnast við sykursýki. Hópi sykursjúklinga var gefið kex sem innihélt glucomannan í ákveðinn tíma og síðar sams konar kex en án trefjanna. Niðurstaðan var sú að á meðan þeir fengu kexið með glucomannan var blóðsykurinn í betra jafnvægi, þó svo að þeir fengu að öðru leyti samskonar fæðu.5,6 Auk þess sem hér hefur verið nefnt er glucomanna með albestu trefjum til að laga hægðatregðu.
Heimildir:
- Med Hypotheses 2002 jun;58(6).
- Arvill A, Bodin L. Effect of short-term ingestion of konjac glucomannan on serum cholesterol in healthy men. Am J Clin Nutr. 1995;61:585–589.
- Chen HL, Sheu WH, Tai TS, et al. Konjac supplement alleviated hypercholesterolemia and hyperglycemia in type 2 diabetic subjects-a randomized double-blind trial. J Am Coll Nutr. 2003;22:36–42.
- Reffo GC, Ghirardi PE, Forattani C. Double-blind evaluation of glucomannan versus placebo in postinfarcted patients after cardiac rehabilitation. Curr Res Ther. 1990;47:753–758.
- Walsh DE, Yaghoubian V, Behforooz A. Effect of glucomannan on obese patients: a clinical study. Int J Obes. 1984;8:289–293.
- Vuksan V, Jenkins DJ, Spadafora P, et al. Konjac-mannan (glucomannan) improves glycemia and other associated risk factors for coronary heart disease in type 2 diabetes. A randomized controlled metabolic trial. Diabetes Care. 1999;22:913–919.
Upplýsingar þessar eru samansafn fróðleiks um náttúrulegar lækningar. Þeim er ekki ætlað að koma í stað tilmæla eða ráðgjafar fagfólks í heilbrigðisþjónustunni. Sjúklingar á lyfjum, einkum séu þeir haldnir alvarlegum sjúkdómum ættu að ráðfæra sig við lækni áður en þeir hefja neyslu bætiefna.
Senda á Facebook