Jaminz
Jaminz er notað á mar, meiðsli, vöðvabólgur, taugabólgur, þursa-bit og gigtarverki. Er olíunni þá nuddað vandlega á auma bletti. Við höfuðverk getur reynst vel að nudda litlu einu af Jaminz á enni, gagnaugu og hnakka. Þetta hefur líka reynst vel ef syfja sækir á bílstjóra við stýrið.
Við kvefi, hósta og hæsi er gott að setja nokkra dropa í skál með heitu vatni, halda andlitinu yfir skálinni, setja handklæði eða stóran klút yfir höfuðið og skálina og anda gufunni djúpt að sér. Við hálsbólgu, einnig andremmu, setja 10-15 dropa í svolítið af volgu vatni og skola munn og háls.
Jaminz inniheldur eftirfarandi hreinar kjarnaolíur:
| Ol. Menthae piperitae |
51 ml |
| Ol. Eucalypti |
16 ml |
| Ol. Cajeputi |
8 ml |
| Ol. Melaleicae viridiflorae |
8 ml |
| Ol. Rosmarini |
8 ml |
| Ol. Juniperi |
5 ml |
| Ol. Pini Pumilionis |
4 ml |
VARÚÐ: Gætið þess að olían komist ekki í snertingu við augun. Ef það gerist, þarf að skola augun strax með volgu vatni.
Upplýsingar þessar eru samansafn fróðleiks um náttúrulegar lækningar. Þeim er ekki ætlað að koma í stað tilmæla eða ráðgjafar fagfólks í heilbrigðisþjónustunni. Sjúklingar á lyfjum, einkum séu þeir haldnir alvarlegum sjúkdómum ættu að ráðfæra sig við lækni áður en þeir hefja neyslu bætiefna.
Senda á Facebook