Heilsuhúsið

Verslanir
  • Laugavegur s. 552 2966
  • Lágmúla s. 578 0300
  • Kringlunni s. 568 9266
  • Smáratorgi s. 564 5666
  • Selfossi s. 482 3915
  • Akureyri s. 462 1889
  • Reykjanesbær s. 578 5560
Heilsumoli vikunnar
Baunir - suðutími

Suðutími bauna Magn miðast við 500 g af þurrum baunum Tegund Magn í dl Tími í bleyti, klst Tími í suðu, mín. Þyngd eftirsuðu í g Aduki baunir 5,5 12 30... Meira

Uppskrift mánaðarins
Linsusalat með sólþurrkuðum tómötum og ætiþistlum

170 g/2 dl linsur, Puy, þurrkaðar 80 g/11/2 dl sólþurrkaðir tómatar í kryddlegi 80 g/11/2 dl ætiþistlar marineraðir í olíu 4 tsk ólífuolía 1/2 dl  Balsamico, edik 1 tsk hvítlaukur eða hvítlauksmauk 1... Meira

Kalíum / e: Potassium

Kalíum er mikilvægt fyrir heilbrigt taugakerfi og reglulegan hjartslátt. Það er talið vinna gegn hjartaáföllum og hjálpa til við vöðvasamdrátt. Kalíum og natríum vinna saman að eðlilegu vökvajafnvægi í líkamanum. Kalíum er mikilvægt í efnahvörfum í frumum, hjálpar til við að viðhalda jöfnum blóðþrýstingi og flutning rafboða hjá frumum. Einnig stjórnar kalíum flutningi næringarefna í gegnum frumuhimnur. Sífellt fleiri rannsóknir benda til jákvæðra áhrifa kalíums og magnesíums gegn háþrýstingi og ýmis konar hjartasjúkdómum. Einnig leiddi rannsókn á fólki með síþreytu í ljós að neysla kalíums og magnesíums (1 g af hvoru á dag) dró úr einkennum þeirra.

Kalíum er helst að finna í grænmeti, sérstaklega grænu blaðgrænmeti, ávöxtum, fræjum, hnetum, kartöflum og korni. Bananar og avókadó eru einstaklega góð uppspretta af kalíum. Kaffi, tóbak, þvagræsilyf, sykur og áfengi eru gagnvirk kalíumi.

Skortur á kalíum er fremur óalgengur en kemur helst fram hjá fólki sem notar þvagræsandi lyf þar sem þau eyða kalíum úr líkamanum. Einkenni skorts lýsa sér sem bjúgur, blóðsykurskortur, háþrýstingur, þreyta, slen, vöðvaverkir, húðþurrkur, niðurgangur, harðlífi, skert starfsemi ósjálfráða taugakerfisins, taugaveiklun, þrálátur þorsti, hjartsláttaróregla, sykuróþol, svefnleysi, lágþrýstingur, og þrálátir höfuðverkir. Andleg og líkamleg streita eykur kalíumþörf líkamans.

Ráðlagðir dagsskammtar:
  • Ungbörn til 3 ára: 800 mg
  • Börn 3 til 6 ára: 1100 mg
  • Börn 7-10 ára: 2000 mg
  • Karlar frá 11 ára aldri: 3500 mg
  • Konur frá 11 ára aldri: 3100 mg
  • Konur á meðgöngu eða með barn á brjósti: 3100 mg


Upplýsingar þessar eru samansafn fróðleiks um náttúrulegar lækningar. Þeim er ekki ætlað að koma í stað tilmæla eða ráðgjafar fagfólks í heilbrigðisþjónustunni. Sjúklingar á lyfjum, einkum séu þeir haldnir alvarlegum sjúkdómum ættu að ráðfæra sig við lækni áður en þeir hefja neyslu bætiefna. Senda á Facebook