Heilsuhúsið

Verslanir
  • Laugavegur s. 552 2966
  • Lágmúla s. 578 0300
  • Kringlunni s. 568 9266
  • Smáratorgi s. 564 5666
  • Selfossi s. 482 3915
  • Akureyri s. 462 1889
  • Reykjanesbær s. 578 5560
Heilsumoli vikunnar
Baunir - suðutími

Suðutími bauna Magn miðast við 500 g af þurrum baunum Tegund Magn í dl Tími í bleyti, klst Tími í suðu, mín. Þyngd eftirsuðu í g Aduki baunir 5,5 12 30... Meira

Uppskrift mánaðarins
Linsusalat með sólþurrkuðum tómötum og ætiþistlum

170 g/2 dl linsur, Puy, þurrkaðar 80 g/11/2 dl sólþurrkaðir tómatar í kryddlegi 80 g/11/2 dl ætiþistlar marineraðir í olíu 4 tsk ólífuolía 1/2 dl  Balsamico, edik 1 tsk hvítlaukur eða hvítlauksmauk 1... Meira

Klórella / e: Chlorella

Chlorella (klórella) er smár einfrumungs-þörungur sem inniheldur gífurlegt magn af auðnýtanlegri blaðgrænu. Einnig inniheldur hann hátt hlutfall af prótíni (58%), kolvetni, öll B-vítamín, C og E vítamín, amínósýrur og sporefni. Chlorella grænþörungur er í raun fullfermi af vítamínum, steinefnum og öðrum nærandi efnum, auk þess að hjálpa til við úthreinsun eiturefna. Þessi þörungur inniheldur meira B-12 vítamín en lifur og allnokkuð af beta karótíni. Frumuveggur hans er hins vegar sterkur, þannig að erfitt er að komast að næringarefnunum. Því þarf að vinna hann áður en hægt er að nýta hann.

Blaðgrænan í klórella getur reynst góð hjálp til að hreinsa blóðrásina. Rannsóknir sýna að klórella er kjörinn prótíngjafi, einkum fyrir þá sem ekki geta borðað eða vilja ekki borða dýraprótín (kjöt og fisk).


Upplýsingar þessar eru samansafn fróðleiks um náttúrulegar lækningar. Þeim er ekki ætlað að koma í stað tilmæla eða ráðgjafar fagfólks í heilbrigðisþjónustunni. Sjúklingar á lyfjum, einkum séu þeir haldnir alvarlegum sjúkdómum ættu að ráðfæra sig við lækni áður en þeir hefja neyslu bætiefna. Senda á Facebook