Lapacho / e: Pau D´Arco / lat: Tabebuia impedignosa
Innri börkur lapacho trés er eitt algengasta og vinsælasta jurtameðal hjá innfæddum víða í Suður Ameríku. Þar er jurtin notuð jafnt við smitsjúkdómum og krabbameini. Því miður hefur jurtin lítið verið rannsökuð vísindalega, en þó er vitað að hún inniheldur 3 efni sem vísindin hafa mikinn áhuga á, lapachol, lapachone og isolapachone.
Á grundvelli hefðbundinnar notkunar jurtarinnar ráðleggja jurtalæknar stundum lapacho við krabbameini. Ekki er til neinar sannanir fyrir því að jurtin virki á slíkan illvígan sjúkdóm þó svo að efnið lapachone, sem er í innri berki trésins, geti drepið krabbameinsfrumur í tilraunaglösum. Hliðstæðar rannsóknir staðfesta einnig virkni jurtarinnar gegn sveppum og öðrum örverum í tilraunaglösum en ekki hefur sýnt fram á með rannsóknum að hún gagnist fólki við sjúkdómum af völdum þessara örvera. Reynsla fólks er engu að síður sú að jurtin virðist gefast vel við candida sveppasýkingu og er allnokkuð ráðlögð gegn þeim hvimleiða sjúkdómi.
Astmi er sjúkdómur sem stöðugt verður algengari. Ljóst er að með breyttum lífsháttum má hafa talsverð áhrif á sjúkdóminn. Breytt fæði, líkamsrækt og rétt bætiefni geta í mörgum tilvikum haft mjög jákvæð áhrif við astma. Breski jurtalæknirinn Susan Clark, sem meðal annars svarar spurningum fólks í breska stórblaðinu The Times, mælti fyrir nokkru síðan með berki af Lapachotrénu fyrir astmasjúklinga. Viðbröðgin létu ekki á sér standa. Margir lesenda The Times létu frá sér heyra og sögðu að eftir að þeir fóru að taka inn Lapacho hefði heilsa þeirra batnað verulega og dregið hefði úr astmaköstum. Algengast er að Lapacho sé drukkið sem te. Hér er um athyglisverðan kost að ræða fyrir astmasjúklinga og aðra þá sem þjást af öndunarfærasjúkdómum.
Upplýsingar þessar eru samansafn fróðleiks um náttúrulegar lækningar. Þeim er ekki ætlað að koma í stað tilmæla eða ráðgjafar fagfólks í heilbrigðisþjónustunni. Sjúklingar á lyfjum, einkum séu þeir haldnir alvarlegum sjúkdómum ættu að ráðfæra sig við lækni áður en þeir hefja neyslu bætiefna.
Senda á Facebook