Laxalýsi/Heilupósturinn 6.tlb.14.árg. 2009
Laxalýsið frá Solaray:
Öflugasta uppspretta Omega- 3 sem völ er á
Að mati margra vísindamanna er laxalýsi ein besta uppspretta Omega-3 fitusýra sem völ er á. Höfuðmáli skiptir að lýsið sé unnið úr holdi fiskjarins, því lýsið í holdi hans er hreinna og því minna unnið en lýsi unnið úr lifur. Lifrin er jú hreinsistöð flestra dýrategunda. Laxalýsið frá Solaray (Salmon oil) er unnið úr holdi laxfiska.
Laxalýsið inniheldur 130 mg EPA(eicosapentaenoic acid & 70 mg DHA(docosahexaenoic acid). Það er sérlega auðugt af Omega-3 fitusýrum sem hafa fjölþætta verkun á líkamann og stuðla m.a. að jafnvægi í framleiðslu á kólesteróli og –draga úr líkum á hjarta- og æðasjúkdómum.
Í raun teljast EPA) og DHA báðar til Omega-3 fitusýra. En ólíkt öðrum Omega-3, í öðrum uppsprettum, vaktar laxalýsið þrígrlýseríðið í blóðinu (venjulega er þríglýserið tengt stóraukinni hættu á hjartasjúkdómum). Þá forða EPA og DHA blóðinu frá því að hlaupa of fljótt í kekki.
Laxalýsi er bólgueyðandi. Í mörgum vísindalegum rannsóknum hefur verið staðfest að laxalýsi hjálpar fólki með allskyns bólgusjúkdóma, þar á meðal sjúklingum sem þjást af Chron-sjúkdóminum. Þá hjálpar fiskiolía fólki með t.d. nýrna- og lungnasjúkdóma. Sjúkdómar eins og geðklofi hefur líka verið tengdur afbrigðilegum efnaskiptum fitusýra og hafa bráðabirgðarannsóknir sýnt að fiskiolía getur verið gagnleg þeim sem þjást af þessum sjúkdómi.
Þekkt er að DHA er lífsnauðsynleg fyrir skýrleika ungabarna. Þá eru sterkar vísbendingar um að fiskiolíur geti komið í veg fyrir einhverjar tegundir krabbameina í mönnum en þær rannsóknir eru ennþá á frumstigi. Vísindalegar rannsóknir hafa hins sannað að fiskiolíur slá á hjartsláttartruflanir og það er alkunna að laxalýsi styrkir ónæmiskerfið.
Innihald – per belgur: E-vítamín (sem náttúrulegt d-Alpha Tocopherol) 5 IU; laxalýsi 1000 mg, þar af 200 mg af eftirfarandi omega-3 fitusýrum: EPA 130 mg og DHA 70 mg. Annað innihald: gelatín, glýserón, vatn (sem er efnið í belgnum).
Senda á Facebook