Heilsuhúsið

Verslanir
  • Laugavegur s. 552 2966
  • Lágmúla s. 578 0300
  • Kringlunni s. 568 9266
  • Smáratorgi s. 564 5666
  • Selfossi s. 482 3915
  • Akureyri s. 462 1889
  • Reykjanesbær s. 578 5560
Heilsumoli vikunnar
Baunir - suðutími

Suðutími bauna Magn miðast við 500 g af þurrum baunum Tegund Magn í dl Tími í bleyti, klst Tími í suðu, mín. Þyngd eftirsuðu í g Aduki baunir 5,5 12 30... Meira

Uppskrift mánaðarins
Linsusalat með sólþurrkuðum tómötum og ætiþistlum

170 g/2 dl linsur, Puy, þurrkaðar 80 g/11/2 dl sólþurrkaðir tómatar í kryddlegi 80 g/11/2 dl ætiþistlar marineraðir í olíu 4 tsk ólífuolía 1/2 dl  Balsamico, edik 1 tsk hvítlaukur eða hvítlauksmauk 1... Meira

Línolía / e: Flaxseed oil

Línolía er unnin úr hörfræjum eða línfræjum. Hún er ein af fáum olíum úr jartaríkinu sem inniheldur omega-3 fitusýrur og er því oft ráðlögð sem bragðbetri kostur í stað lýsis. Nauðsynlegt er hins vegar að átta sig á að omega-3 fitusýrurnar í línolíu eru aðrar en þær sem við fáum úr lýsi. Línolía inniheldur alpha-línólen-sýru (ALA) en lýsi aftur á móti inniheldur eikósapentaenóiksýru (EPA) and dókósahexaenóiksýru (DHA) og getur því gagnsemi línolíu verið önnur en lýsis. Línolía inniheldur auk omega-3 einnig heilnæmar omega-6 fitusýrur.

Hlutverk þessara fitusýra er margþætt. Þær eru nauðsynlegar til að halda kólesteróli í jafnvægi og til myndunar hórmóna fyrir ónæmiskerfið og fyrir blóðþrýstinginn. Þær stuðla að langtímaþreki og betra úthaldi þar sem þær styðja við fyrir súrefnisnýtingu líkamans. Þær örva efnaskipti, meltingu og starfsemi heila. Í raun eru þetta megrandi fitusýrur þar sem þær örva fitubrennslu en draga úr vökvasöfnun og sætindafíkn. Fyrir húðina eru þessar fjölómettuðu fitusýrur eins konar innri snyrtivörur.


Upplýsingar þessar eru samansafn fróðleiks um náttúrulegar lækningar. Þeim er ekki ætlað að koma í stað tilmæla eða ráðgjafar fagfólks í heilbrigðisþjónustunni. Sjúklingar á lyfjum, einkum séu þeir haldnir alvarlegum sjúkdómum ættu að ráðfæra sig við lækni áður en þeir hefja neyslu bætiefna.
Senda á Facebook