Heilsuhúsið

Verslanir
  • Laugavegur s. 552 2966
  • Lágmúla s. 578 0300
  • Kringlunni s. 568 9266
  • Smáratorgi s. 564 5666
  • Selfossi s. 482 3915
  • Akureyri s. 462 1889
  • Reykjanesbær s. 578 5560
Heilsumoli vikunnar
Baunir - suðutími

Suðutími bauna Magn miðast við 500 g af þurrum baunum Tegund Magn í dl Tími í bleyti, klst Tími í suðu, mín. Þyngd eftirsuðu í g Aduki baunir 5,5 12 30... Meira

Uppskrift mánaðarins
Linsusalat með sólþurrkuðum tómötum og ætiþistlum

170 g/2 dl linsur, Puy, þurrkaðar 80 g/11/2 dl sólþurrkaðir tómatar í kryddlegi 80 g/11/2 dl ætiþistlar marineraðir í olíu 4 tsk ólífuolía 1/2 dl  Balsamico, edik 1 tsk hvítlaukur eða hvítlauksmauk 1... Meira

Magnesíum

Magnesíum er ásamt kalki og fosfór nauðsynlegt fyrir heilbrigð og sterk bein. Það er hvati til myndunar ýmissa ensíma í líkamanum, sérstaklega þeirra sem stjórna orkumyndun. Það er náttúrulega vöðvaslakandi, einnig nauðsynlegt fyrir starfsemi tauga. Skortur á magnesíum hefur áhrif á taugaboð og vöðvasamdrátt. Rannsóknir benda til hærri tíðni hjarta- og æðasjúkdóma hjá þeim sem hafa lítið af magnesíum í blóði.

Á sumum svæðum í heiminum hafa rannsóknir bent til að samband geti verið milli hárrar tíðni hjartaáfalla og lítils magnesíums í neysluvatni og svo hins vegar lágrar tíðni og mikils magnesíums í vatni eins og t d. á Grænlandi þar sem hjartasjúkdómar eru fátíðir. Einnig er algengt að einstaklingar sem neyta mikils magns af áfengi t.d. áfengissjúklingar séu með magnesíumskort þar sem áfengið rænir því úr líkamanum.

Magnesíum er að finna í tofu, grænmeti, fræjum, hnetum, heilkorni, þara, sojabaunum, hýðishrísgrjónum og grænu laufguðu blaðgrænmeti. Einnig í fersku kryddi svo sem papriku, steinselju og piparmyntu. Þvagræsilyf, getnaðarvarnarlyf og áfengi eru gagnvirk magnesíumi.

Einkenni magnesíumskorts geta m.a. lýst sér í minna mótstöðuafli gegn sjúkdómum, háþrýstingi, nýrnasteinum, fyrirtíðarspennu, þreytu og beinþynningu. Þá geta skotið upp kollinum vandamál tengd taugum og vöðvum, einnig lystarleysi, hraður hjartsláttur, flogaköst og krampar, þannig virðist sinadráttur t.d. tengjast magnesíumskorti.


Ráðlagðir dagsskammtar eru:
  • ungbörn 0-6 mánaða: 50 mg
  • ungbörn 6-12 mánaða: 80 mg
  • börn 1-3 ára: 85 mg
  • börn 4-6 ára: 120 mg
  • börn 7-10 ára: 200 mg
  • karlar 11-14 ára: 280 mg
  • karlar 15 ára og eldri: 350 mg
  • konur 11 ára og eldri: 280 mg
  • þungaðar konur: 280 mg
  • konur með barn á brjósti: 280 mg

Upplýsingar þessar eru samansafn fróðleiks um náttúrulegar lækningar. Þeim er ekki ætlað að koma í stað tilmæla eða ráðgjafar fagfólks í heilbrigðisþjónustunni. Sjúklingar á lyfjum, einkum séu þeir haldnir alvarlegum sjúkdómum ættu að ráðfæra sig við lækni áður en þeir hefja neyslu bætiefna. Senda á Facebook