Ölger / e: Brewers yeast
Í Bætefnabókinni segir svo um ölger: Gersveppir (Brewer´s yeast) eru einfrumungar sem geta fjölgað sér afar hratt á skömmum tíma. Gersveppir innihalda mikið af vítamínum, þar á meðal tíamín, ríbóflavín, nikótínsýru, pantótensýru, bíótín og fólínsýru. Ennfremur er töluvert af steinefnum og snefilefnum í gersveppum, aðallega króm og selen. Önnur innihaldsefni gersveppa eru t.d. kjarnsýrur.
Til eru nokkrar tegundir gersveppa og eru hlutföll innihaldsefnanna nokkuð mismunandi eftir tegundum. Þannig er til að mynda mun minna af krómi og seleni í gersveppi sem kallast torula en öðrum. Því hefur lengi verið haldið fram að gersveppir séu góðir fyrir húðina og geti verið gagnlegir við eksemi. Meðal áhugaverðra efnasambanda sem hafa verið einangruð úr gersveppum er svokallaður húðöndunarefnisþáttur (skin respiratory factor; SRF). Þessi efnisþáttur hefur verið notaður í læknisfræðilegum tilgangi í meira en 40 ár. Rannsóknir á SRF sem fram fóru við Kaliforníuháskóla í San Francisco leiddu í ljós að SRF örvar kollagenmyndun í húð og hraðar græðslu sára hjá rottum og kanínum. Nýlegar rannsóknir hafa sýnt af ef sjúklingum með brunasár er gefið SRF gróa sár þeirra mun fyrr en ella. SRF virðist því lofa góðu í meðhöndlun á brunasárum og ýmsum öðrum sárum.
Annar efnisþáttur í gersveppum sem talinn er örva græðslu sára er glúkan sem er fjölsykrusamband. Ýmsar kenningar haf verið uppi um aðrar verkanir gersveppa. Til að mynda eiga þeir að vera gagnlegir við hjartatruflunum, kvíða og þreytu. Hugsanlega eiga þessar kenningar sér einhverja stoð en enn sem komið er er þetta órannsakað að mestu.
Upplýsingar þessar eru samansafn fróðleiks um náttúrulegar lækningar. Þeim er ekki ætlað að koma í stað tilmæla eða ráðgjafar fagfólks í heilbrigðisþjónustunni. Sjúklingar á lyfjum, einkum séu þeir haldnir alvarlegum sjúkdómum ættu að ráðfæra sig við lækni áður en þeir hefja neyslu bætiefna.
Senda á Facebook