Heilsuhúsið

Verslanir
  • Laugavegur s. 552 2966
  • Lágmúla s. 578 0300
  • Kringlunni s. 568 9266
  • Smáratorgi s. 564 5666
  • Selfossi s. 482 3915
  • Akureyri s. 462 1889
  • Reykjanesbær s. 578 5560
Heilsumoli vikunnar
Baunir - suðutími

Suðutími bauna Magn miðast við 500 g af þurrum baunum Tegund Magn í dl Tími í bleyti, klst Tími í suðu, mín. Þyngd eftirsuðu í g Aduki baunir 5,5 12 30... Meira

Uppskrift mánaðarins
Linsusalat með sólþurrkuðum tómötum og ætiþistlum

170 g/2 dl linsur, Puy, þurrkaðar 80 g/11/2 dl sólþurrkaðir tómatar í kryddlegi 80 g/11/2 dl ætiþistlar marineraðir í olíu 4 tsk ólífuolía 1/2 dl  Balsamico, edik 1 tsk hvítlaukur eða hvítlauksmauk 1... Meira

PABA

PABA er stytting á nafninu para-aminó-bensósýra. PABA myndar einn af grunnefnisþáttum fólínsýru og er þáttakandi í nýtingu á pantótensýru. Það verkar sem hjálparhvati við efnaskipti prótína sem og annarra efnaskipta og framleiðslu blóðkorna.
Meðal fæðutegunda sem eru auðugar af PABA eru ölger, lifur, nýru, mjólk, egg, jógúrt, hrísgrjón og síróp svo eitthvað sé nefnt. Gagnvirk PABA eru súlfalyf, pensilín, áfengi, estrógen, kaffi og allir kóladrykkir. Talið er að gagnvirkni súlflyfja við PABA geti valdið skorti á fólín- og pantótensýru.

Rannsóknir mismunandi aðila á gildi PABA sem sólarvarnar benda til hæfni þess til að vernda húðina gegn útfjólubláum geislum sólar. Þegar það er borið á húðina binst það henni og veitir því áframhaldandi sólarvörn þrátt fyrir svita eða stuttar sundferðir.

Dagsþörf PABA hefur ekki verið ákveðin. Það er vatnsleysanlegt og er yfirleitt í B-vítamín töflum og fjölvítamín töflum.


Upplýsingar þessar eru samansafn fróðleiks um náttúrulegar lækningar. Þeim er ekki ætlað að koma í stað tilmæla eða ráðgjafar fagfólks í heilbrigðisþjónustunni. Sjúklingar á lyfjum, einkum séu þeir haldnir alvarlegum sjúkdómum ættu að ráðfæra sig við lækni áður en þeir hefja neyslu bætiefna. Senda á Facebook