Heilsuhúsið

Verslanir
  • Laugavegur s. 552 2966
  • Lágmúla s. 578 0300
  • Kringlunni s. 568 9266
  • Smáratorgi s. 564 5666
  • Selfossi s. 482 3915
  • Akureyri s. 462 1889
  • Reykjanesbær s. 578 5560
Heilsumoli vikunnar
Baunir - suðutími

Suðutími bauna Magn miðast við 500 g af þurrum baunum Tegund Magn í dl Tími í bleyti, klst Tími í suðu, mín. Þyngd eftirsuðu í g Aduki baunir 5,5 12 30... Meira

Uppskrift mánaðarins
Linsusalat með sólþurrkuðum tómötum og ætiþistlum

170 g/2 dl linsur, Puy, þurrkaðar 80 g/11/2 dl sólþurrkaðir tómatar í kryddlegi 80 g/11/2 dl ætiþistlar marineraðir í olíu 4 tsk ólífuolía 1/2 dl  Balsamico, edik 1 tsk hvítlaukur eða hvítlauksmauk 1... Meira

Propolis

Propolis er kvoðukennt vax sem býflugur hafa notað í milljónir ára til að styrkja bú sín og halda örverum í skefjum. Propolis er grískt orð sem merkir “fyrir framan borgina” og vísar til þess að býflugurnar hafa þetta vax fyrir framan innganginn að býkúpunni og þarf hver býfluga að fara í gegnum þetta propolishlið til að komast inn í búið. Vaxið drepur skaðlegar bakteríur og sveppi sem býflugurnar gætu hafa komist í tæri við á ferðalögum sínum í náttúrunni. Þannig eru íbúar býkúpunnar varðir gegn sjúkdómum.
Propolis hefur verið notað til lækninga frá fornöld. Um 400 f. Krist var það kynnt af Grikkjanum Herodot sem mælti með vaxinu í smyrsl á sár og ígerðir. Á 1. öld e. Krist skýrði Rómverjinn Herodot Gajus Plinius í sínu fræga riti “Historia naturalis" frá þeim mörgu læknandi eiginleikum sem propolis hefur.

Rannsóknir benda til þess að propolis styrki ónæmiskerfið, flýti fyrir myndum mótefna, auki hæfni fruma til að eyða bakteríum, auki hæfni líkamans til að mynda nýjan og heilbrigðan vef. Einnig benda rannsóknir til þess að það geti gagnast gegn bólgum.


Upplýsingar þessar eru samansafn fróðleiks um náttúrulegar lækningar. Þeim er ekki ætlað að koma í stað tilmæla eða ráðgjafar fagfólks í heilbrigðisþjónustunni. Sjúklingar á lyfjum, einkum séu þeir haldnir alvarlegum sjúkdómum ættu að ráðfæra sig við lækni áður en þeir hefja neyslu bætiefna.
Senda á Facebook