Heilsuhúsið

Verslanir
  • Laugavegur s. 552 2966
  • Lágmúla s. 578 0300
  • Kringlunni s. 568 9266
  • Smáratorgi s. 564 5666
  • Selfossi s. 482 3915
  • Akureyri s. 462 1889
  • Reykjanesbær s. 578 5560
Heilsumoli vikunnar
Baunir - suðutími

Suðutími bauna Magn miðast við 500 g af þurrum baunum Tegund Magn í dl Tími í bleyti, klst Tími í suðu, mín. Þyngd eftirsuðu í g Aduki baunir 5,5 12 30... Meira

Uppskrift mánaðarins
Linsusalat með sólþurrkuðum tómötum og ætiþistlum

170 g/2 dl linsur, Puy, þurrkaðar 80 g/11/2 dl sólþurrkaðir tómatar í kryddlegi 80 g/11/2 dl ætiþistlar marineraðir í olíu 4 tsk ólífuolía 1/2 dl  Balsamico, edik 1 tsk hvítlaukur eða hvítlauksmauk 1... Meira

Selen

Selen er snefilefni sem m.a. fyrirbyggir að fita oxist eða þráni. Selen er mikilvægt andoxunarefni sérstaklega með E-vítamíni, en þau eru samvirk. Saman hjálpa þau meðal annars við framleiðslu mótefna og til að viðhalda heilbrigði hjarta og lifrar. Selen verndar ónæmiskerfið með því að koma í veg fyrir myndun sindurefna sem vinna skemmdir á frumum líkamans. Selen er nauðsynlegt starfsemi briskirtilsins og fyrir teygjanleika vefja.
Sé jarðvegur selensnauður þar sem matvæli eru ræktuð þá getur skort selen í annars selenrík matvæli. Þetta getur valdið selenskorti hjá fólki sem borðar mat af slíkum svæðum, mat sem í raun ætti að innihalda nægilegt magn selens.

Selen er helst að finna í tómötum, spergilkáli, túnfiski, hveitikími og klíði. Það er einnig að finna í parahnetum, ölgeri, kjúklingum, hvítlauki, þara, lifur, lauki, laxi, sjávarfangi og ýmsu grænmeti. Mikil vinnsla matvæla eru gagnvirk seleni.

Einkenni selenskorts lýsa sér með úthaldsmissi fyrir aldur fram, ýmiskonar hjarta- og vöðvasjúkdómum, hækkaðri tíðni krabbameins og skertu ónæmi gegn sjúkdómum. Þá verður vart við þreytu, hækkun kólesteróls, sýkingar, lifrarsjúkdóma og ófrjósemi í tengslum við skort á seleni.

Ráðlagðir dagsskammtar eru mældir í míkrógrömmum (µg):
  • ungbörn 0-6 mánaða: 10 µg
  • ungbörn 6-12 mánaða: 15 µg
  • börn 1-3 ára: 20 µg
  • börn 4-6 ára: 25 µg
  • börn 7-10 ára: 30 µg
  • karlar 11-14 ára: 40 µg
  • karlar 15 ára og eldri: 50 µg
  • konur 11 ára og eldri: 40 µg
  • þungaðar konur: 55 µg
  • konur með barn á brjósti: 55 µg

Upplýsingar þessar eru samansafn fróðleiks um náttúrulegar lækningar. Þeim er ekki ætlað að koma í stað tilmæla eða ráðgjafar fagfólks í heilbrigðisþjónustunni. Sjúklingar á lyfjum, einkum séu þeir haldnir alvarlegum sjúkdómum ættu að ráðfæra sig við lækni áður en þeir hefja neyslu bætiefna. Senda á Facebook