Heilsuhúsið

Verslanir
  • Laugavegur s. 552 2966
  • Lágmúla s. 578 0300
  • Kringlunni s. 568 9266
  • Smáratorgi s. 564 5666
  • Selfossi s. 482 3915
  • Akureyri s. 462 1889
  • Reykjanesbær s. 578 5560
Heilsumoli vikunnar
Baunir - suðutími

Suðutími bauna Magn miðast við 500 g af þurrum baunum Tegund Magn í dl Tími í bleyti, klst Tími í suðu, mín. Þyngd eftirsuðu í g Aduki baunir 5,5 12 30... Meira

Uppskrift mánaðarins
Linsusalat með sólþurrkuðum tómötum og ætiþistlum

170 g/2 dl linsur, Puy, þurrkaðar 80 g/11/2 dl sólþurrkaðir tómatar í kryddlegi 80 g/11/2 dl ætiþistlar marineraðir í olíu 4 tsk ólífuolía 1/2 dl  Balsamico, edik 1 tsk hvítlaukur eða hvítlauksmauk 1... Meira

Spatone

Náttúrulegur járngjafi sem veldur ekki meltingarvandamálum
Spatone er stórmerkilegur náttúrulegur járngjafi sem á uppruna í Trefiw Wells heilsulindinni í Snowdonia. Talið er að leyndardómur þessa járnríka vatns hafi fyrst verið uppgötvaður á tímum Rómaveldis. Árið 1874 var stofnuð heilsulind á Snowdonia sem nú er afar eftirsótt. Dæluhús var einnig tekið í notkun sem varð til þess að þetta náttúrulega járnaríka vatn var í fyrsta sinn selt almenningi og hefur það síðan notið fádæma vinsælda.
Fjölmargar rannsóknir til margra ára styðja að Spatone er afar góður járngjafi. Það er vísindalega sannað að Spatone frásogast afar vel og nýtist það því líkamanum framúrskarandi vel. Ólíkt mörgum járngjöfum er Spatone 100 % náttúrulegt og inntöku þess fylgja því hvorki meltingartruflanir né höfuðverkur. Um það vitna líka fjölmargir neytendur Spatone til hundruða ára.

Af hverju járn?
Járn er nauðsynlegt til þess að framleiða hemóglópín eða það sem við þekkjum sem blóðrauða. Líkami fullorðinnar manneskju inniheldur um 4. gr af járni sem er að finna í ýmsum próteinum en um 2/3 hluti fer í framleiðslu blóðrauða. Blóðrauðinn sér um að flytja súrefni um líkamann, frá lungum til vefja. Umframbirgðir geymast í lifrinni, miltanu, beinmergnum og vöðvunum þar sem það er til taks þegar til þarf, líkt og vöðvaglópín í vöðvum líkamans.

Járnskortur veldur þreytu og slappleika og almennu úthaldsleysi. Ef skorturinn verður enn meiri veldur hann andnauð, svima, höfuðverk, lystarleysi, sljóleika og meltingartruflunum ásamt pirringi í fótum og dofa í fingrum og tám. Í versta falli veldur járnskortur háum púlsi og hjartsláttartruflunum. Allt þetta er tengt því að ekki berst nægt súrefni um líkamann. Í ungum börnum getur járnskortur valdið hægari vexti og jafnvel geðrænum erfiðleikum. Það er því ljóst að skortur á járni getur verið afar alvarlegt heilsufarsvandamál.


Þeir sem þurfa aðgæta járnið sérstaklega?
Þeir sem eru í mestri hættu á járnskorti eru; þungaðar konur en þekkt er að 30 prósent þeirra þjást af járnskorti á meðgöngu; þeir sem orðið hafa fyrir slysum og áföllum; fólk með nýrnavandamál; fólk með meltingarvandamál eða þeir sem eiga erfitt með að vinna úr fæðunni; börn sem nærast ekki nógu vel en það hefur verið vísindalega sannað að tengsl eru á milli járnskorts/blóðleysis í börnum og vitsmunaþroska; fyrir eldra fólk gerir það oft gæfumuninn að taka inn járn gegn lystarleysi.

Spatone fyrir grænmetisætur og íþróttafólk!
Þá er þekkt að grænmetisætur þurfa oft að verða sé úti um auka járn og þar sem Spatone er fullkomleganáttúrulegt hentar það grænmetisætum vel. Félög grænmetisæta um allan heim hefur það á listum sínum sem einn besta járngjafann sem völ er á.
Þá má geta þess að íþróttamenn sem þurfa á öllu sínu að halda eru afar hrifnir af Spatone og segja það gefa sér aukaorku, járnið sér jú um að flytja súrefni um líkamann.
Konur með börn á brjósti eru hrifnar af Spatone og segja það hafa góð áhrif á börnin ekki síður en sig.
Algengt er að heilbrigðir karlmenn og konur séu blóðgjafar en margt af þessu fólki hefur látið vel af Spatone og segja það hjálpi sér fyrr að ná upp góðri orku efir blóðgjöf.
Breskir læknar og hjúkrunarfræðingar mæla með Spatone.

Hvernig er best að taka inn Spatone?
Best er að taka inn Spatone á fastaandi maga með ávaxtasafa þar sem C-vítamín hjálpar til við frásog járns. Ekki er ráðlagt að taka inn járn með mjólkurvörum þar sem þær trufla frásogið.
Mælt er með að konur taki inn 2 mg af járni á dag og karlmenn og börn frá 1 til 1.5 mg. Börn frá 2ja ára aldri mega taka inn Spatone. Spatone er eins og áður sagði 100% náttúrulegt og laust við öll aukaefni.

Ps: Heilbrigðir karlmenn eiga almennt ekki við járnskort að stríða en þeir sem eru stressaðir með ónot í maga og orkulausir ættu að huga að hvort járnskortur gæti verið vandamálið.

Sjá nánar á www.spatone.co.uk  

Senda á Facebook