Augað líkist linsu. Það safnar ljósi saman og beinir því að bakhlið sinni, þar sem það fellur á nethimnu augans. Hún samanstendur af miklum fjölda ljósnæmra fruma, kallaðar viðtakendur og móttakarar.
Til eru tvær gerðir viðtakenda - stafir og keilur - . Stafur er ljósnæm skynfruma í sjónu augans, nemur svarthvítt ljós og keila er litnæm skynfruma í sjónhimnu augans. Stafir og keilur eru tengd sjóntauginni sem flytur taugaboð til heilans.
Þegar ljós fer gegnum augað og verður við það á vegi viðtakenda, kemur það af stað ljósefnafræðilegu ferli sem er stjórnað af litarefni, sjónpurpura, sem er til staðar í viðtakendunum. Sjónpurpuri sem er ljósnæmt litarefni í stöfum sjónu, sundrast þegar ljós fellur á stafinn. Þegar ljósið sundrar sjónpurpuranum, hefur það örvandi áhrif á taugaboð sem eru flutt til heilans eftir sjóntauginni. Sjónpurpuri er nauðsynlegur fyrir sjónina.
Bjart ljós sundrar sjónpurpura og dregur þannig úr ljósnæmi augans, skært ljós og ofbirta hraða sundruninni.
Anthósýanosíðar
Lengi hefur verið vitað að bláber innihalda anthocyanosíða, efni sem eykur ljósnæmi augans og hjálpar því að aðlagast breytingu á ljósmagni. Anthocyanosíðar bæta sjón í myrkri og styrkja þreytt augu. Þegar á tímum seinni heimsstyrjaldarinnar fengu flugmenn í breska flughernum bláberjasultu til þess að bæta sjón þeirra í myrkri.
Anthocyanosíðar auka framleiðslu augans á sjónpurpura í nethimnu, en hann sundrast vegna áhrifa frá ljósi. Þegar maður vinnur í björtu ljósi, t.d. við tölvuskjá, þreytast augun fljótt því sjónpurpurinn sundrast hratt. Uppbygging hans er afar hægvirkt ferli, andstætt sundrunarferlinu. Hins vegar geta anthocyanosíðar hraðað þessari uppbyggingu. Annar athyglisverður eiginleiki anthocyanosíða eru styrkjandi áhrif þeirra á hina örsmáu háræðaveggi augans.
Síðan 1964 hafa komið fram fjölmargar skýrslur sem lýsa því hvernig sjón þreyttra augna hefur batnað við notkun anthocyanosíða.
Annað ómissandi náttúruefni fyrir sjónina er pró-vítamín A, beta-karotín, sem líkami okkar breytir í A-vítamín. Það er nauðsynlegt fyrir aðlögunarhæfni augans gagnvart ljósi og langvinnur skortur á því getur valdið skertri sjón.
Strix er framleitt undir ströngu gæðaeftirliti úr stöðluðu bláberja-þykkni. Það inniheldur einnig pró-vítamín A, betakarotín. Strix er virkast 4 klst. eftir að það er tekið inn, en anthocyanosíðarnir hverfa úr líkamanum á sólarhring.
Anthocyanosíðar hraða og auka myndun sjónpurpura í nethimnu, en hann er nauðsynlegur fyrir skýra og góða sjón. Sjónpurpuri sundrast þegar hann verður fyrir ljósi. Strix bætir því einnig sjón í myrkri.
Upplýsingar þessar eru samansafn fróðleiks um náttúrulegar lækningar. Þeim er ekki ætlað að koma í stað tilmæla eða ráðgjafar fagfólks í heilbrigðisþjónustunni. Sjúklingar á lyfjum, einkum séu þeir haldnir alvarlegum sjúkdómum ættu að ráðfæra sig við lækni áður en þeir hefja neyslu bætiefna.
Senda á Facebook