Heilsuhúsið

Verslanir
  • Laugavegur s. 552 2966
  • Lágmúla s. 578 0300
  • Kringlunni s. 568 9266
  • Smáratorgi s. 564 5666
  • Selfossi s. 482 3915
  • Akureyri s. 462 1889
  • Reykjanesbær s. 578 5560
Heilsumoli vikunnar
Baunir - suðutími

Suðutími bauna Magn miðast við 500 g af þurrum baunum Tegund Magn í dl Tími í bleyti, klst Tími í suðu, mín. Þyngd eftirsuðu í g Aduki baunir 5,5 12 30... Meira

Uppskrift mánaðarins
Linsusalat með sólþurrkuðum tómötum og ætiþistlum

170 g/2 dl linsur, Puy, þurrkaðar 80 g/11/2 dl sólþurrkaðir tómatar í kryddlegi 80 g/11/2 dl ætiþistlar marineraðir í olíu 4 tsk ólífuolía 1/2 dl  Balsamico, edik 1 tsk hvítlaukur eða hvítlauksmauk 1... Meira

Tea Tree Oil



Sæfari að nafni James Cook og menn hans nefndu þetta hávaxna tré “Tea Tree” þar sem þeir notuðu lauf þess í te og til að bragðbæta bjór. Tréð vex í Ástralíu og Asíu, er grænt allt árið, börkur þess er svampkenndur en olían er unnin úr laufunum. Áströlsku frumbyggjarnir notuðu laufin við sárum og sýkingum í húðinni með því að kreista úr þeim safann og bera beint á húðina. Á meðan fyrri heimsstyrjöldin geysaði notuðu ástralskir hermenn olíuna sem sótthreinsi og leiddi það til mikillar eftirspurnar eftir henni.

Í olíunni er fjöldi af efnum sem kallast terpeníðar. Ástralir ákváðu stuðul fyrir einn þeirra, terpínen-4-ól, sem þarf að vera a.m.k. 30% af endanlegri framleiðslu olíunnar svo hún gagnist. Annað efni, cineole, má ekki vera meira en 15% af olíunni, ætti helst að vera í kringum 2,5% svo olían sé sem tærust. Olían vinnur á sveppum og bakteríum, jafnvel þeim sem eru ónæmir fyrir sýklalyfjum.1,2 Í rannsókn á unglingabólum var sýnt fram á að staðbundin notkun á olíu sem innihélt aðeins 5% tea tree hafði jafn mikil áhrif og bensóýlperoxíð með minni aukaverkunum.3

Í tvíblindri rannsókn á sveppum í tánöglum (onychomycosis), þar sem notuð var 100% tea tree olía, var sýnt fram á að hún hafði jafn góð áhrif og sveppalyfið clotrimazole.4 Í annarri tvíblindri rannsókn á fótasveppi, þar sem notað var krem með 10% tea tree olíu, löguðust einkennin við notkunina en það eyddi ekki sveppinum alveg. Í þriðju tvíblindu rannsókninni hvarf þruska í munni hjá eyðnisjúklingum eftir notkun á 15 ml (1 msk) af upplausn með tea tree olíu sem munnskol fjórum sinnum á dag. Upplausnir sem nota á fyrir kvilla í munni eða koki ættu hins vegar ekki að innihalda meira en 5% tea tree.

Notkun:
Hreina tea tree olíu (70-100%) skal bera sparlega á sýkt svæði en ef borið er á stærri svæði, s.s. við meðferð á bólum, ætti upplausnin innihalda um 5-15% tea tree. Vitað er til að konur hafi notað olíuna við sveppasýkingu í leggöngum, t.d. með því að setja 2-3 dropa í bindi en þar sem olían er mjög sterk og getur valdið sviða skal gera þetta sparlega og helst í samráði við lækni eða grasalækni. Tea tree olía hentar ekki til innvortis notkunar en eins og fyrr segir er hægt að nota hana fyrir kvilla í munni og koki, ýmist sem munnskol eða 1 dropi settur í brauðmola og látið renna í munni.

Þar sem olían er mjög sterk getur hún við langvarandi notkun valdið þurrki og jafnvel bruna í húðinni og ætti því að forðast að hún berist í augu eða nef. Sumir geta fundið fyrir ofnæmisviðbrögðum við notkun á tea tree (s.s. kláða og útbrotum) og er því öllum ráðlagt að nota lítið af henni til að byrja með.


Heimildir:
  1. Carson CF, Riley TV. Antimicrobial activity of the essential oil of Melaleuca alternifolia—A review. Lett Appl Microbiol 1993;16:49–55.
  2. Carson CF, Cookson BD, Farrelly HD, Riley T. Susceptibility of methicillin-resistant Staphylococcus aureus to the essential oil of Melaleuca alternifolia. J Antimicrobial Chemother 1995;35:421–4.
  3. Bassett IB, Pannowitz DL, Barnetson RS. A comparative study of tea-tree oil versus benzoylperoxide in the treatment of acne. Med J Austral 1990;153:455–8.
  4. Buck DS, Nidorf DM, Addino JG. Comparison of two topical preparations for the treatment of onychomycosis: Melaleuca alternifolia (tea tree) oil and clotrimazole. J Garm Pract 1994;38:601–5.

Upplýsingar þessar eru samansafn fróðleiks um náttúrulegar lækningar. Þeim er ekki ætlað að koma í stað tilmæla eða ráðgjafar fagfólks í heilbrigðisþjónustunni. Sjúklingar á lyfjum, einkum séu þeir haldnir alvarlegum sjúkdómum ættu að ráðfæra sig við lækni áður en þeir hefja neyslu bætiefna. Senda á Facebook