Tiger Balm
Tiger Balm eða tígris smyrsl er lang þekktasta og mest selda hitasmyrsl í heiminum. Saga þess hófst fyrir um 100 árum þegar kínverski jurtalæknirinn Aw Chu Kin setti saman þessa blöndu af rokgjörnum olíum og hóf að nota hana á sjúklinga sína. Þetta smyrsl reyndist svo vel að synir hans, Aw Boon Haw og Aw Boon Par, hófu að framleiða og selja það í stórum stíl. Þar með lögðu þeir grunninn að fyrirtækinu Haw Par Brothers International sem varð að stóru viðskiptaveldi í Singapore og dreifir vörum sínum um heim allan.
Bæði smyrslið og olían eru fyrst og fremst notuð á meiðsl svo sem íþróttameiðsl og vöðvabólgur og bólgur og eymsli í liðum. Við kvefi má rjóða örlítið af smyrslinu við nasirnar. Einnig hefur bæði olía og smyrsl gagnast við höfuðverki, en þá er örlitlu magni smurt á enni og gagnaugu. Einnig getur verið gott við sleni vegna umgangspestar, t.d. kvefs eða flensu, að setja 20-30 dropa í vel heitt bað og ná að svitna vel áður en lagst er til hvíldar.
Tiger Balm inniheldur, kamfóru, mentól, piparmyntu olíu, kajaput olíu, kassíukanil olíu og negul olíu. Tiger olían inniheldur sömu olíur.
Upplýsingar þessar eru samansafn fróðleiks um náttúrulegar lækningar. Þeim er ekki ætlað að koma í stað tilmæla eða ráðgjafar fagfólks í heilbrigðisþjónustunni. Sjúklingar á lyfjum, einkum séu þeir haldnir alvarlegum sjúkdómum ættu að ráðfæra sig við lækni áður en þeir hefja neyslu bætiefna.
Senda á Facebook