True Food bætiefni
Hvað er True Food® bætiefnalínan? Það leikur enginn vafi á því að True Food® bætiefnalínan markar tímamót í framleiðslu vítamína. Á meðan önnur bætiefni nýta sér sértæk vítamín notast True
Food® við þá flóknu samsetningu bætiefna sem finna má í mat og líkaminn þekkir betur. Sem dæmi um þetta er C-vítamínið í True Food® línunni en það er þannig samansett að í blöndunni fljóta einnig með þess eðlilegu ferðafélagar sem eru lífræn mólekúl (en ekki bara askorbínsýran). Með þeim hætti er líkaminn okkar vanur að vinna úr C-vítamíni. Þannig mælist True Food® C-vítamínið í líkamanum í yfir átta klukkustundir eftir inntöku þess og er það líka merki um hversu miklu ríkara það er af andoxunarefnum en aðrar tegundir C-vítamína.
Bio-Transformation™ er svo skrásett heiti á mjög sérhæfðri gerjunaraðferð sem True Food® bætiefnalínan nýtir sér og markar þessi aðferð einnig tímamót í vinnslu bætiefna.
True Food® bio-transformed™ vítamín og steinefni eru gerjuð með sérstakri ræktun sem heldur þeim fullkomlega lífrænum.
Þá hafa True Food® bio-transformed™ vítamínin og steinefnin svo að segja verið formelt með ensímum úr Papaya ávextinum sem gerir það að verkum að þau eru auðmeltari og frásogast sérlega vel. Það þýðir að þau nýtast líkamanum betur og engin þekkt dæmi eru um ofnæmisviðbrögð.
Sjálfstæðar vísindalegar rannsóknir háskóla og rannsóknarstofa hafa sýnt að True Food® bio-transformed™ vítamín og steinefni eru virkari en vítamín sem hafa verið einangruð. Það þýðir líka að ekki þarf að taka inn jafn mikið magn af True Food® bætiefnum og öðrum bætiefnum.
Þær tegundir True Food® bio-transformed™ vítamína sem fást í Heilsuhúsinu eru B6-vítamín og B-complex, betakarótin, kalk og magnesíum blanda, Maxi Q10, SuperPotency Soygen®, Supernutrition Plus sem er fjölvítamínblanda, auðmelt járn, sink, magnesíum, C-vítamín og náttúrulegt E-vítamín.
Upplýsingar þessar eru samansafn fróðleiks um náttúrulegar lækningar. Þeim er ekki ætlað að koma í stað tilmæla eða ráðgjafar fagfólks í heilbrigðisþjónustunni. Sjúklingar á lyfjum, einkum séu þeir haldnir alvarlegum sjúkdómum ættu að ráðfæra sig við lækni áður en þeir hefja neyslu bætiefna.
Senda á Facebook