23.7.2010 00:00:00
Allir í sund Aubrey Organics

Sumir, þá sérstaklega konur, veigra sér við að fara í sund vegna þess hve klórinn fer illa með hárið. En nú hefur fyrirtækið Aubrey Organics, sem framleiðir einhverjar hreinustu og ómenguðustu snyrtivörur sem völ er á í dag, séð við því. Vörurnar sem um ræðir heita einfaldlega Swimmer's Normalizing Shampoo for Active Lifestyles og Swimmer's Normalizing Conditioner for Active Lifestyles. Það má útleggja sem sjampó og næringu fyrir athafnafólk sem kemur hárinu í eðlilegt horf.
Auk þess að vernda hárið gegn hinum hvimleiða klór er það nauðsynlegt á sólarströndina þar sem vörurnar vernda hárið einnig gegn salti og sól.
Fyrir utan þann næringargrunn sem Aubrey Organics er þekkt fyrir að nota í sínar hársnyrtivörur hefur sjampóið og hárnæringin meðal annars að geyma beiska möndluolíu og ásamt sérstöku náttúrulegu amínósýru efnasambandi sem gerir gæfumuninn. Sjampóið er bæði ætlað konum og körlum.
Sjá nánari upplýsingar á
www.aubrey-organics.com
Senda á Facebook