Heilsuhúsið

Verslanir
  • Laugavegur s. 552 2966
  • Lágmúla s. 578 0300
  • Kringlunni s. 568 9266
  • Smáratorgi s. 564 5666
  • Selfossi s. 482 3915
  • Akureyri s. 462 1889
  • Reykjanesbær s. 578 5560
Heilsumoli vikunnar
Biotta Digestive

Sveskjur og fíkjur eru þekktar fyrir að vera mild en afar áhrifarík áhrif hjálp til að hraða fæðunni í gegnum meltingarfærin. Biotta Digestive er sveskjusafi blandaður fíkjuþykkni ásamt epla- og þrúgu... Meira

Uppskrift mánaðarins
Bragðsterkur engifer-lax

1 kg laxaflak (flök) 1 dl hrásykur 1 dl Maldon hafsalt 4 msk rifinn engifer rifinn börkur af lífrænt ræktaðri sítrónu 1 rauður chili belgur, skorinn í þunna strimla Blandið öllum kryddefnum saman. Le... Meira

30.12.2011 00:00:00

Rakadrægasta yngingarsameind náttúrunnar



Náttúrulega hyaluronic-sýran í Heilsuhúsinu slær í gegn:

Rakadrægasta yngingarsameind náttúrunnar - hið náttúrulega botox

„Hyaluronic-sýra er ein áhugaverðasta yngingarsameindin á markaðnum í dag,” segir Dr. L. Stephan Coles læknir í merkilegri bók, The Hyaluronic Acid Miracle en hann er einn af virtustu vísindamönnum samtímans. Margir vísindamenn af hans stærðargráðu taka undir orð hans og eftir áratuga rannsóknir og reynslu er komið að þeim tímamótum að almenningur fær að njóta þessa framúrskarandi góða efnis. Í Heilsuhúsinu fæst nú náttúruleg hyaluronic-sýra frá Episilk í formi sermis, sem við þekkjum betur sem serum og er fyrir andlit og háls.

Fyrir þá sem ekki vita er hyaluronic-sýra kolvetni, en sérhæft kolvetni, nánar tiltekið slímfjölsykra (mucopolysaccharide), samsett úr fjölda samtengdra tvísykrunga. Vegna einstaks þéttleika virkar hyaluronic-sýran ákaflega vel á vefi líkamans, sem þýðir jafnframt að hún er afar góð fyrir húðina. Vísindamenn segja þessa fjölsykrusameind eina rakadrægustu sameind náttúrunnar og því er hún skilgreind með réttu sem náttúrulegur rakagjafi. Af allri hyaluronic-sýru líkamans liggur 50% í húðinni og húðþekjunni. Þegar nóg er til staðar af henni flytur hún næringu til húðarinnar og heldur henni stöðugt rakri. Með aldrinum minnkar hyaluronic-sýran í húðinni og jafnframt næringarupptaka húðarinnar en það er ein af aðalástæðum þess að við eldumst, fáum hrukkur, ellibletti og slappa húð. Það má því fullyrða með góðri samvisku að hyaluronic-sýran sé í eðli sínu hið náttúrulega botox!

 

Hyaluronic Serum Heilsuhússins:

Episilk sermin sem fást í Heilsuhúsinu eru frá hinu virta bandaríska heilsuvörufyrirtæki Hyalogic, sem  er leiðandi í vinnslu hyaluronic-sýrunnar í heiminum dag. Fyrirtækið vinnur sýruna EKKI úr dýrum (hanakömbum) eins og algengast er, heldur úr jurtum í gegnum einstakt gerjunarferli, og útkoman eru sterkar hyaluronic-sameindir. Þar sem hyaloronic-sýran í mannslíkamanum er rík af eðlisþungum sameindum er varan þeirra það einnig. Þess vegna er Episilk sermið eins virkt og raunin er og útkoman í samræmi við það.

Athugið að þótt heitið „sýra“ sé í nafni þessa undraefnis er fátt mýkra og basískara frá náttúrunnar hendi.

Hér má sjá úrval Episilk sermanna sem fæst í Heilsuhúsinu:

 

Q-10 Serum – það er ekki hægt að biðja um öflugri vörn gegn öldrun!

Þetta sermi (serum) er sett saman úr hyaluronic-sýru og hinu kraftmikla andoxunarefni Q-10 með það fyrir augum að gefa húðinni í senn djúpan raka, næringu og yngri áferð. Það er engum blöðum um það að fletta að þessi blanda er einhver öflugasta “öldrunarvörnin“ sem völ er á.

PHA Serum er hrein hyaluronic-sýra

PHA semirin er hrein hyaluronic-sýra sem býr yfir ákaflega miklum raka sem dregur verulega úr öldrunareinkennum, þ.e. fínum línum og hrukkum, teygir úr húðinni og mýkir hana.

 

IFL Serum – tafarlaus húðstrekking

Þetta sermi inniheldur blöndu af hyaluronic-sýru og svokölluðu Pepha-Tight, sem er einstakur kraftur úr grænþörungi sem hefur þykkjandi eiginleika. Húðin verður því silkimjúk og fínar línur hverfa. Myndar eins konar húðlag gegn skaðlegum sindurefnum.

FRS Serum – róar húðina

Þetta sermi er blanda af hyaluronic-sýru og Argurline, sem er hexapeptíð-8 og er þekkt fyrir að sefa húðina og draga úr streitulínum og hrukkum sem gjarnan myndast á enni og í kringum augu.

 

ASL Serum – dregur úr öldrunarblettum

Blanda sem inniheldur hyaluronic-sýru í bland við Gigawhite, sem er þekkt samsetning úr sjö alpajurtum. Blanda er hönnuð með það í huga að auka raka húðarinnar og sefa hana um leið og hún dregur úr öldrunarblettum.

 

DCL Serum – dregur úr baugum

DCL sermið er áhrifamikil blanda hyaluronic-sýru og Eyeseryl og Regu-Age, sem eru blöndur hannaðar með það fyrir augum að draga úr baugum og gefa húðina góðan raka. Eyseryl og Regu-Age eru einkaleyfisblöndur sem báðar hafa verið rannsakaðar vísindalega með góðum árangri.

 

Ítarlegari upplýsingar um Episilk Sermin og stórmerka sögu að baki frekari uppgötvun á henni má finna á: www.heilsuhusid.is og
http://episilkserum.com/ingredients.html 

 

Senda á Facebook
Letur A +A
Vildarklúbbur Íbúar Heilsuhússins !