Heilsuhúsið

Verslanir
  • Laugavegur s. 552 2966
  • Lágmúla s. 578 0300
  • Kringlunni s. 568 9266
  • Smáratorgi s. 564 5666
  • Selfossi s. 482 3915
  • Akureyri s. 462 1889
  • Reykjanesbær s. 578 5560
Heilsumoli vikunnar
Biotta Digestive

Sveskjur og fíkjur eru þekktar fyrir að vera mild en afar áhrifarík áhrif hjálp til að hraða fæðunni í gegnum meltingarfærin. Biotta Digestive er sveskjusafi blandaður fíkjuþykkni ásamt epla- og þrúgu... Meira

Uppskrift mánaðarins
Bragðsterkur engifer-lax

1 kg laxaflak (flök) 1 dl hrásykur 1 dl Maldon hafsalt 4 msk rifinn engifer rifinn börkur af lífrænt ræktaðri sítrónu 1 rauður chili belgur, skorinn í þunna strimla Blandið öllum kryddefnum saman. Le... Meira

30.12.2011 00:00:00

Mjúkar varir með Hráfæðisvarasalva


Hurraw!

Mjúkar varir með hráfæðisvarasalva
 

Ekki of mjúkir, ekki klístraðir, ekki of sætir, ekki of glansandi, ekki of ilmríkir, ekki kornóttir. Sem betur fer, heldur mjög nærandi, mýkjandi og endingargóðir. Þannig má lýsa nýju Hurraw “hráfæðis varasalvanum” sem nú fæst í Heilsuhúsinu. Annar góður kostur við Hurraw er að lítið mál er að geyma hann í buxnavasa allan daginn án þess að hann bráðni eða verði að mauki.
Það tók framleiðendur Hurraw mörg ár og mikla þolinmæði að byggja upp og þróa rétta varasalvann og svo vel hefur tekist til að hann hefur allt sem prýðir góðan varasalva og gott betur.
 
Hurraw er auðvitað lífrænt vottaður, hann flokkast undir hráfæði (við jú borðum hann alltaf á endanum) og veganar eða jurtaætur leggja líka blessun sína yfir hann, þ.e. engar dýraafurðir er að finna í Hurraw.
Uppistaðan í Hurraw eru kaldpressaðar og lífrænt vottaðar hnetu- og fræolíur og þar sem um hráfæðisvöru er að ræða er hann uppfullur af lífsnauðsynlegum næringarefnum og ensímum. Vaxið í Hurraw er úr candelilla jurtinni sem hefur þann frábæra kost að bráðna ekki fyrr en við 70°hita. Að öðru leyti er í Hurraw að finna möndluolíu, kókosolíu, kakósmjör, jojoba olíu, ólífuolíu, laxerolíu. Allt hráefnið í hann kemur frá viðurkenndum og vottuðum bændum og söluaðilum. Sama er að segja um bragðið sem kemur allt úr hreinum ilmkjörnum. Og svo eru umbúðirnar að sjálfsögðu endurvinnanlegar.
Hurraw fæst í nokkrum tegundum og eru bæði ætlaðir konum og köllum, stelpum og strákum. Þá er líka hægt að fá með smá lit í, ef vill.


Senda á Facebook
Letur A +A
Vildarklúbbur Íbúar Heilsuhússins !