Heilsuhúsið

Verslanir
  • Laugavegur s. 552 2966
  • Lágmúla s. 578 0300
  • Kringlunni s. 568 9266
  • Smáratorgi s. 564 5666
  • Selfossi s. 482 3915
  • Akureyri s. 462 1889
  • Reykjanesbær s. 578 5560
Heilsumoli vikunnar
Biotta Digestive

Sveskjur og fíkjur eru þekktar fyrir að vera mild en afar áhrifarík áhrif hjálp til að hraða fæðunni í gegnum meltingarfærin. Biotta Digestive er sveskjusafi blandaður fíkjuþykkni ásamt epla- og þrúgu... Meira

Uppskrift mánaðarins
Bragðsterkur engifer-lax

1 kg laxaflak (flök) 1 dl hrásykur 1 dl Maldon hafsalt 4 msk rifinn engifer rifinn börkur af lífrænt ræktaðri sítrónu 1 rauður chili belgur, skorinn í þunna strimla Blandið öllum kryddefnum saman. Le... Meira

6.12.2011 00:00:00

Birna Ásbjörns hómópati í Heilsuhúsinu í Lágmúla




Mælir fæðuóþol og ójafnvægi í meltingu, næringu, hormónakerfi, efnaskiptum og taugaboðefnum

Heilsuhúsið hefur fengið frábæran liðsauka því Birna Ásbjörnsdóttir hómópati hefur nú tekið sér bólfestu í  Lágmúlanum.   Birna býður upp á ráðgjöf í næringarþerapíu ásamt óþols- og næringarefnamælingu.   Mælingarnar eru gerðar með svokölluðum SCIO hugbúnaði sem er  fullkomnasti sinnar tegundar á markaðnum í dag (sjá nánar á www.quantumenergywellness.com ).

Með ákveðinni tíðni mælir þessi merkilegi hugbúnaður  ójafnvægi í líkamanum. Hægt er með einföldum hætti að mæla  m.a. fæðuóþol og annars konar óþol og ofnæmi, ójafnvægi í næringarbúskap líkamans,  meltingu, hormónakerfi, efnaskiptum og í taugaboðefnum, svo fátt eitt sé talið.

Höldum blóðsykrinum jöfnum um jólin
Í tilefni komandi jóla notuðum við tækifærið og spurðum Birnu hvernig væri best að “haga” sér frammi fyrir jólamatnum: “Desember getur reynst erfiður mánuður fyrir marga, sérstaklega ef maður er í næringarlegu ójafnvægi. Það sem er hvað mikilvægast er að borða alltaf kjarngóðan morgunverð og borða svo reglulega yfir daginn.  Þannig höldum við blóðsykrinum jöfnum.  Ef við erum að sleppa úr máltíðum fer blóðsykurinn að falla og þá föllum við fyrir freistingum, sem eru allstaðar í desember, og þá er voðinn vís. Ef við fáum góða fitu, góð prótein og grófmeti þá erum við á grænni grein með orku og jafnan blóðsykur.”
Birna bendir líka á að gott sé að forðast eða nota mjög sparlega salta og reykta fæðu. “Það er í lagi að smakka en enginn ætti að borða sig saddan af hangikjöti, svínahamborgarahrygg og þess háttar fæði,” segir hún. “Til að halda meltingunni góðri, forðast alla tregðu eða jafnvel að stíflast, þá eru það einnig grófmetið og trefjarnar.  Þarna sláum við tvær flugur í einu höggi, en blóðsykur og melting njóta góðs af. Eins er mikilvægt að drekka nóg af vatni.  Við þornum í streitu. Það er líka mikilvægt að fá nægan vökva til að trefjar virki sem skyldi. Ef ekki fæst nægilegt magn af trefjum úr fæði þá er um að gera að bæta þeim við og setja út í hristing, drykk eða grauta. Annað sem gæti hjálpað okkur er steinefnið magnesíum.  Það er mjög gott fyrir meltinguna, hefur losandi áhrif og er slakandi.  Gott að taka inn um 800 gr. fyrir nóttina.  Magnesíum citrate hefur komið vel út.”

Margt getur farið úrskeiðs án góðra fitusýra
Birna nefnir líka að  olíur séu einnig afar mikilvægar fyrir meltinguna.  “Ef okkur skortir góðar og nauðsynlegar fitusýrur þá getur ansi margt farið úrskeiðis.  Sem dæmi má nefna þá sækjum við frekar í slæma fitu,  og  sætindi og blóðsykurinn fer úr skorðum.   Einnig er mikilvægt að muna að borða vel af ávöxtum, grænmeti, hnetum og fræjum til að fá góðar trefjar sem hafa góð áhrif á blóðfitu.
Síðan er bara að fara hóflega í sætindin og ef við erum í góðu jafnvægi næringarlega séð þá veljum við okkur að fá okkur smá sætindi en sætindin velja okkur ekki!  
Við höfum stjórn á okkur og njótum betur.”

Birna er sem fyrr segir menntaður hómópati eða smáskammtalæknir frá The College of Practical Homeopathy, London. Hún hefur einnig menntað sig í næringarþerapíu (Nutritional therapy), einstaklingsráðgjöf (Counseling) og mannspekilækningum.

Birna hefur þegar hafið starfsemi sína í Lágmúlanum en hægt er að panta tíma hjá henni í síma:
898 2804 og birna@jorth.is

Sjá nánar um Birnu á jorth.is


Senda á Facebook
Letur A +A
Vildarklúbbur Íbúar Heilsuhússins !