Heilsuhúsið

Verslanir
  • Laugavegur s. 552 2966
  • Lágmúla s. 578 0300
  • Kringlunni s. 568 9266
  • Smáratorgi s. 564 5666
  • Selfossi s. 482 3915
  • Akureyri s. 462 1889
  • Reykjanesbær s. 578 5560
Heilsumoli vikunnar
Biotta Digestive

Sveskjur og fíkjur eru þekktar fyrir að vera mild en afar áhrifarík áhrif hjálp til að hraða fæðunni í gegnum meltingarfærin. Biotta Digestive er sveskjusafi blandaður fíkjuþykkni ásamt epla- og þrúgu... Meira

Uppskrift mánaðarins
Bragðsterkur engifer-lax

1 kg laxaflak (flök) 1 dl hrásykur 1 dl Maldon hafsalt 4 msk rifinn engifer rifinn börkur af lífrænt ræktaðri sítrónu 1 rauður chili belgur, skorinn í þunna strimla Blandið öllum kryddefnum saman. Le... Meira

5.1.2012 00:00:00

Bættar neysluvenjur á nýju ári að hætti Ingu Kristjáns



Fullyrða má að Inga Kristjánsdóttir sé einn vinsælasti og virtasti næringarþerapisti landsins enda hefur mikla reynslu og miðlar fólki á öfgalausan máta. Hér ráðleggur Inga þeim sem vilja bæta neysluvenjur sínar á nýju ári og minnir á að bætt heilsa er langhlaup, ekki spretthlaup. Hér koma ráðleggingar Ingu!
Margir, já sennilega flestir kannast við það, að hafa veitt sér heldur mikið í mat eða drykk yfir hátíðarnar. Það er ekkert óeðlilegt og fullkomlega mannlegt að detta aðeins í óhollustuna á þessum árstíma. Vitur maður sagði einu sinni að það skipti svosem engu máli hvað borðað er milli jóla og nýárs en öllu skipti hvað borðað er milli nýárs og jóla. Í þessum orðum liggja mikil sannindi enda skiptir litlu máli óhóf fárra daga, en aftur á móti því meiru hvernig mataræðið og lifnaðurinn er restina af árinu. Þegar kemur að bættum neysluvenjunum, þá er þetta langhlaup en ekki spretthlaup.

Gefum okkur að óhollustan hafi verið full fyrirferðarmikil yfir hátíðarnar, hvað getum við þá gert til að kippa þessu í lag og detta ekki í langtíma niðursveiflu?

Hér eru nokkur góð ráð til þess, sem ég veit að virka:

1
Mest er um vert að sættast við orðinn hlut, sleppa því að skamma sig fyrir óhófið og fyrirgefa sér. Annars er líklegt að við höldum bara áfram að sullast í jólaöli og súkkulaði, því við erum svo ömurleg hvort sem er og eins gott að halda bara áfram! Það fara allir út af sporinu, áttið ykkur á því, þannig er það bara.

2 Þetta hljómar klisjukennt en að drekka nóg af hreinu vatni hefur heilmikið að segja. Margir safna á sig bjúg yfir hátíðarnar og það að tryggja líkamanum nægan vökva er mikilvægt. Það er líka hægt að fá vatnslosandi te og jurtablöndur til að hjálpa uppá þetta. Mikil kaffidrykkja er slæm, drekkið frekar grænt te, það hefur miklu betri áhrif á líkamann.

3 Hreina loftið verður seint ofmetið og það að fara út og anda virkilega djúpt, bætir hressir og kætir. Góður göngutúr er málið.

4 Líkamsræktin er lykilatriði. Ef þið hafið dottið út af sporinu á þeim vettvangi eða hafið hugsað ykkur að byrja að hreyfa ykkur, þá er dagurinn í dag bestur til að byrja!

5
Það er um að gera að minnka sykurátið hressilega og mörgum finnst best að kippa honum bara alveg út. Borðið allavega frekar ávexti og sætindi sem innihalda hollari sykur en þann hvíta. Til dæmis hrásykur, agave eða pálmasykur.

6 Hvíta hveitið má gjarnan fjúka, borðið grófmeti sem aldrei fyrr. Gróft brauð, hrökkbrauð, heilkornapasta og slíkt.

7 Aukið við grænmetisneysluna og það er um að gera að skella í græna drykki sem innihalda til dæmis spínat, avocado, ávexti, fræ og hnetur.

8 Reynið að hafa það að leiðarljósi að halda ykkur frá mat sem veldur ykkur vanlíðan og óþolseinkennum. Uppblásinn kviður og meltingarvandamál eru oft fylgifiskur stórhátíða. Ef einkennin vilja ekki víkja eftir að mataræðið hefur verið tekið í gegn, þá er mál að athuga hvort þurfi að aðstoða meltinguna aðeins með góðum gerlum (Probiotics, acidophilus) eða hreinsa enn frekar út fæðu sem veldur einkennum.

9 Farið varlega í svokallaða „detox“ kúra. Þeir eiga fullkomlega rétt á sér en athugið þá að slíka kúra þarf að undirbúa vel og fá góða hjálp í fyrstu skiptin. Slíkir kúrar eiga að hafa þann tilgang að hreinsa og endurnæra en þeir eru ekki og eiga aldrei að vera megrunarkúrar!

10 Takið upp þráðinn með inntöku bætiefna ef sá þáttur hefur dottið út yfir jólin.
Gangi ykkur allt í haginn, með heilsukveðju, Inga næringarþerapisti.

Ókeypis ráðgjöf, Inga Kristjánsdóttir veitir ókeypis ráðgjöf í Heilsuhúsinu sem hér segir frá kl. 13. til 17.

Heilsuhúsið Lágmúla fimmtudaginn 5. janúar
Heilsuhúsið Laugavegi fimmtudaginn 12. janúar
Heilsuhúsið Kringlunni fimmtudaginn 19. janúar
Heilsuhúsið Smáratorgi fimmtudaginn 26. Janúar

Námskeið og einkatímar með Ingu:
Næstu námskeið með Ingu verða svo haldin í Heilsuhúsinu Lágmúla þriðjudaginn 17. janúar og þriðjudaginn 7. febrúar. Nánari upplýsingar og skráning er í síma 8995020 eða á inga@inga.is. Þar má líka panta hjá henni einkatíma.
Senda á Facebook
Letur A +A
Vildarklúbbur Íbúar Heilsuhússins !