14 mikilvæg minnisatriði um D-vítamín
D-vítamín (Cholecalciterol (D3))
14 mikilvæg minnisatriði um D-vítamín
- D-vítamín er líklega vatnmetnasta vítamín veraldar
- D-vítamín myndast við inntöku sólarljóss í gegnum útfjólubláa geisla frá náttúrulegri sólinni.
- Þú færð ekki D-vítamín í gegnum gler, hvorki í gegnum bílrúðu né gluggana heima hjá þér
- Það er nánast ógerningur að fá nægt magn D-vítamíns í gegnum mat. Eingöngu er hægt að reiða sig á sólina til þess að fá nægt D-vítamín.
- Fólk sem drekkur jafnvel upp í 10 mjólkurglös á dag fær ekki nema brotabrot af því D-vítamíni sem líkaminn þarfnast.
- Því lengra sem þú býrð frá miðbaug því meira þarftu á sólinni að halda til að fá D-vítamín. Það vita allir hversu Ísland er langt frá miðbaug, en það gildir einnig um lönd eins og Kanada, mörg ríki Bandaríkjanna og Bretland.
- Þrálátan D-vítamínskort er ekki hægt að lækna á einni nóttu, það tekur mánuði að fylla á tóma tanka og endurbyggja beinin, vefina og taugakerfið, annað hvort með bætiefni eða sólarljósi en helst hvoru tveggja.
- Skortur á D-vítamíni í líkamanum hefur alvarleg áhrif á upptöku kalks í meltingarveginum. Án nægjanlegs D-vítamíns nær líkaminn ekki að frásoga kalk. Þá nýtist kalkneysla ekki.
- Jafnvel veik sólarvörn (spf=8) dregur úr hæfni líkamans til að frásoga D-vítamín um allt að 95%. Sólarvarnir geta í raun valdið sjúkdómum sem verða af völdum skorts á D-vítamíni.
- Það er ömögulegt að fá D-vítamín eitrun af sólinni. Líkaminn er svo fullkominn að hann nýtir einungis það sem hann þarf.
- Ef þú finnur til þegar þú ýtir ákveðið á bringuna á þér er líklegt að þú þjáist af langvinnum D-vítamín skorti.
- D-vítamín verður virkt í gegnum nýrun og lifrina áður en það nýtist líkamanum að fullu. Það þýðir jafnframt að ef þú þjáist af lifrar- eða nýrnasjúkdómi dregur það verulega úr hringrás þessa vítamíns.
- Sólvarnarbransinn neitar að horfast í augu við það að líkami þinn þarfnist sólar án varnar því sú staðreynd myndi draga verulega úr sölu sólvarna.
- Og jafnvel þótt D-vítamín sé eitt öflugasta vítamínið fyrir líkamann býr líkaminn það til algjörlega ókeypis þegar sólar nýtur við og við njótum hennar óvarin.
Skortseinkenni – gott að vita
Hjá börnum er helsta einkenni D-vítamínskorts beinkröm, tannskemmdir og kyrkingslegur vöxtur. Einkenni hjá fullorðnum eru m.a. lystarleysi, þróttleysi, vöðvaslappleiki, önuglyndi, ótímabær öldrun og beinþynning. Þegar skorturinn er kominn á alvarlegt stig verða beinin mjúk og aflagast. Skortur á D-vítamíni er talinn gera karla veikari fyrir krabbameini í blöðruhálskirtli og ristli en konur veikari fyrir brjóstakrabbameini. Enn fleiri staðreyndir eru að líta dagsins ljós.
Heimild:Byggt á viðtali við Dr. Michael Holick höfundar www.uvadvantage.com
Senda á Facebook