Heilsuhúsið

Verslanir
  • Laugavegur s. 552 2966
  • Lágmúla s. 578 0300
  • Kringlunni s. 568 9266
  • Smáratorgi s. 564 5666
  • Selfossi s. 482 3915
  • Akureyri s. 462 1889
  • Reykjanesbær s. 578 5560
Heilsumoli vikunnar
Baunir - suðutími

Suðutími bauna Magn miðast við 500 g af þurrum baunum Tegund Magn í dl Tími í bleyti, klst Tími í suðu, mín. Þyngd eftirsuðu í g Aduki baunir 5,5 12 30... Meira

Uppskrift mánaðarins
Linsusalat með sólþurrkuðum tómötum og ætiþistlum

170 g/2 dl linsur, Puy, þurrkaðar 80 g/11/2 dl sólþurrkaðir tómatar í kryddlegi 80 g/11/2 dl ætiþistlar marineraðir í olíu 4 tsk ólífuolía 1/2 dl  Balsamico, edik 1 tsk hvítlaukur eða hvítlauksmauk 1... Meira

Áhugaverðasta yngingarsameindin á markaðnum í dag



Náttúruleg hyaluronic-sýra er nú loksins fáanleg á almennum markaði:

„Áhugaverðasta yngingarsameindin á markaðnum í dag“

„Hyaluronic-sýra er ein áhugaverðasta yngingarsameindin á markaðnum í dag og er nú fáanleg á almennum markaði. Hyaluronic-sýra er tafarlaus andlitslyfting, yngingarundur sem færir milljónum manna um allan heim uppbyggileg skilaboð um áhrifaríka, örugga og nærandi vörn gegn tímans tönn, reista á traustum vísindalegum grunni.“
Þannig kemst Dr. L. Stephan Coles læknir að orði í bókinni The Hyaluronic Acid Miracle en hann er einn af virtustu vísindamönnum heims og einn stofnenda og stjórnandi Gerontology Research Group. Margir virtir vísindamenn taka undir orð hans og nú loks er komið að þeim tímamótum að almenningur fær að njóta þessarar framúrskarandi góðu „yngingasameindar“. Í Heilsuhúsinu fæst nú náttúruleg hyaluronic-sýra frá Episilk í formi sermis, sem við þekkjum betur sem serum og er fyrir andlit og háls. Einnig er hyaluronic-sýra í Liðaktíni undir merkjum Gula miðans, sem reynst hefur mörgum sem þjást af liðvandamálum afar vel.
Þótt meira en hálf öld sé liðin síðan menn uppgötvuðu tilvist -hyaluronic sýrunnar hófst meðferð með henni ekki fyrr en árið 1987, í Japan og á Ítalíu, en annars staðar í Evrópu árið 1995 og í Bandaríkjunum árið 1997. Með árunum hefur fjölgað sífellt þeim rannsóknum sem sýna fram á margháttaða virkni sýrunnar. Íslenskir læknar hófu að nýta sér hyaluronic-sýru gegn slitgigt fyrir um fimm árum með góðum árangri.

Eins og í lygasögu
Ekki eru nema nokkur ár síðan sjónir manna fóru að beinast að Yuzuri Hara, bænum sem í dag er kallaður „Bær hinna langlífu“. Bærinn er í tveggja klukkustunda fjarlægð frá Tokýo og þar þykir ekkert fréttnæmt þótt bæjarbúar komist á tíræðisaldur, jafnvel án nokkurra teljandi ummerkja um Elli kerlingu. Tíu prósent bæjarbúa hafa náð meira en 85 ára aldri sem er tífalt meira en víðast hvar annars staðar í heimunum. Íbúarnir í Yuzuri Hara eru afar heilsuhraustir, jafnvel þótt margir þeirra hafi tileinkað sér ýmsa ósiði, eins og t.d reykingar. Eftir því var t.d. tekið að 93ja ára bóndi, sem unnið hafði berskjaldaður fyrir sólinni í meira en 50 ár, var enn með silkimjúka og slétta húð. Sjúkdómar eins og krabbamein, sykursýki og Alzheimersjúkdómur þekkjast varla í þessum litla bæ.
Nú eru liðin fimm ár síðan vísindamenn fóru að tengja þetta við matarvenjur íbúanna. Þar sem Yuzuri Hara er fjallahérað er aðalfæða íbúanna ekki hrísgrjón. Fólkið reiðir sig á mjölvaríkt rótargrænmeti sem vísindamenn vita í dag að geymir gnótt af hyaluronic-sýru. Rótargrænmetið sem hér um ræðir eru: satsumaimo, sem er sérstök tegund sætrar kartöflu, satoimo, sem er límkennd hvít kartafla, konyaku, sem er hlaupkennd samsuða rótargrænmetis, og imoji, sem er kartöflurót. Við rannsóknir hefur komið í ljós að íbúar þessa fjallahéraðs hafa meiri hyaluronic-sýru í líkamanum en gengur og gerist. Þetta er eiginlega of gott til að vera satt, því staðreyndin er sú að sumir íbúa Yuzri Hara sýna svo gott sem engin „eðlileg“ merki öldrunar: sjón þeirra er með ólíkindum skörp, þeir eru sjaldan veikir og allflestir sinna störfum sínum langt fram eftir áttræðisldri.
Já, þetta hljómar eins og í lygasögu.

„Ég hef aldrei séð neinn þurfa að takast á við húðkrabbamein hér“
Dr. Toyosuke Komori er bæjarlæknir í Yuzuri Hara og hefur skrifað tíu bækur þar sem hann veltir fyrir sér langlífinu í heimabæ sínum. Hann hefur framar öðru beint rannsóknum sínum að rótargrænmetinu sem fólkið í bænum hefur neytt um árabil. Nú hefur hann margar vísindalegar rannsóknir að styðjast við sem sýna að sú fæða ýtir undir framleiðslu líkamans á hyaluronic-sýru, sem vindur í bókstaflegri merkingu ofan af öldrunarferlinu. Þetta kemur til af því að frumur líkamans dafna og varðveitast í raka hyaluronic-sýrunnar, sem heldur liðunum smurðum, húðinni mjúkri og teygjanlegri og verndar sjónhimnuna: „Ég hef aldrei séð neinn þurfa að takast á við húðkrabbamein hér,“ segir Komori og bætir við: „Hér hef ég líka hitt fyrir konur á tíræðisaldri sem eru lausar við alla ellibletti.“
Þótt Komoro hafi upplifað mörg kraftaverkin segist hann líka hafa séð vestræna matarmenningu herja á bæjarbúa, en það gerðist fyrir fáeinum árum síðan, og í beinu framhaldi hafi hjartasjúkdómar tvöfaldast. En sem betur fer er nú heimurinn þannig í dag að óþarfi er að flytja til Yuzuri Hara til að njóta þess besta sem bærinn hefur upp á að bjóða. Nú hefur hyaluronic-sýran borist um allan heim.
Það sem þegar er vitað um hyaluronic-sýru er að hún kemur að mjög góðu gagni bæði innvortis og útvortis, enda yngir hún ekki síst upp húðina.

Rakadrægasta sameind náttúrunnar
En hvað er hyaluronic-sýra nákvæmlega ?
Hyaluronic-sýra er kolvetni, en sérhæft kolvetni, nánar tiltekið slímfjölsykra (mucopolysaccharide), samsett úr fjölda samtengdra tvísykrunga. Slímfjölsykra kemur víða fyrir í náttúrunni og er eitt þeirra efna sem má finna í talsverðu magni í mannslíkamanum. Þegar hyaluronic-sýra binst vatni verður hún hlaupkennd. Það er staðreynd að þessi langkeðja sameind sækist mjög eftir samneyti við vatn og þess vegna er þetta efni jafn gott fyrir líkamann og raunin er. Í dag er þetta seigfljótandi gel, slímfjölsykran, að verða eitt hið mest rannsakaða í vísindaheiminum, einkum í tengslum við augnaðgerðir og bæklunarlækningar, og niðurstöðurnar eru að hún veitir framúrskarandi vörn fyrir liði og sjónhimnu. Vegna einstaks þéttleika virkar hyaluronic-sýran einnig ákaflega vel á vefi líkamans, sem þýðir jafnframt að hún er framúrskarandi góð fyrir húðina. Vísindamenn segja þessa fjölsykrusameind eina rakadrægustu sameind náttúrunnar og því er hún skilgreind með réttu sem náttúrulegur rakagjafi. Af allri hyaluronic-sýru líkamans liggur 50 % í húðinni og húðþekjunni. Þegar nóg er til staðar af henni flytur hún næringu til húðarinnar og heldur henni stöðugt rakri. Með aldrinum minnkar hyaluronic-sýran í húðinni og jafnframt næringarupptaka húðarinnar og það er ein af aðalástæðum þess að við eldumst, fáum hrukkur, ellibletti og slappa húð. Það má því fullyrða með góðri samvisku að hyaluronic-sýran sé í eðli sínu hið náttúrulega botox!

Hyaluronic Serum Heilsuhússins:
Episilk sermin sem fást í Heilsuhúsinu eru frá hinu virta bandaríska heilsuvörufyrirtæki Hyalogic, sem fullyrða má að sé leiðandi í vinnslu hyaluronic-sýrunnar í heiminum dag. Fyrirtækið vinnur sýruna EKKI úr dýrum (hanakömbum), eins og algengast er, heldur úr jurtum í gegnum einstakt gerjunarferli, og útkoman er sterkar hyaluronic-sameindir. Þar sem hyaloronic-sýran í mannslíkamanum er rík af eðlisþungum sameindum er varan þeirra það einnig. Þess vegna er Episilk sermið eins virkt og raunin er og útkoman í samræmi við það.

Fyrir þá sem ekki vita stendur „sermi“ fyrir þá dýpstu rakavörn sem hægt er að fá, en sermavökvinn fer mun dýpra inn í húðina en venjulegt andlitskrem. Hér er listi yfir úrvalið hjá Heilsuhúsinu og þar ætti hver að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Athugið að þótt heitið „sýra“ sé í nafni þessa undraefnis er fátt mýkra og basískara frá náttúrunnar hendi.

Við mælum sérstaklega með þessari blöndu!

Q-10 Serum – það er ekki hægt að biðja um öflugri vörn gegn öldrun!

Þetta sermi (serum) er sett saman úr hyaluronic-sýru og hinu kraftmikla andoxunarefni Q-10 með það fyrir augum að gefa húðinni í senn djúpan raka, næringu og yngri áferð. Það er engum blöðum um það að fletta að þessi blanda er einhver öflugasta “öldrunarvörnin sem völ er á.
Inniheldur: Vatn, hyaluronicsýru, Q-10, jojoba, vantsrofið hveitiprótein, jurtaglýseról, ascorbic sýru (C-vítamín), glukósa, lactoperoxidase og glúkósaoxidase.

Þessar eru líka frábærar!

PHA Serum er hrein hyaluronic-sýra
PHA semirin er hrein hyaluronic-sýra sem býr yfir ákaflega miklum raka sem dregur verulega úr öldrunareinkennum, þ.e. fínum línum og hrukkum, teygir úr húðinni og mýkir hana.
Inniheldur: Vatn og hyalronic-sýru.

IFL Serum – tafarlaus húðstrekking
Þetta sermi inniheldur blöndu af hyaluronic-sýru og svokölluðu Pepha-Tight, sem er einstakur kraftur úr grænþörungi sem hefur þykkjandi eiginleika. Húðin verður því silkimjúk og fínar línur hverfa. Myndar eins konar húðlag gegn skaðlegum sindurefnum.
Inniheldur: Vatn: Pepha-Tight, hyaluronic-sýru, sink glyconate, xathan gum, jurtaglýseról, A-vítamín, sítrussýru, lactoperoxidase og glúkósaoxidase.

FRS Serum – róar húðina
Þetta sermi er blanda af hyaluronic-sýru og Argurline, sem er hexapeptíð-8 og er þekkt fyrir að sefa húðina og draga úr streitulínum og hrukkum sem gjarnan myndast á enni og í kringum augu.
Inniheldur: Vatn, argireline, jurtaglýseról, hyaluronic-sýru, xhantan gum, lactoperoxidase, glúkósaoxidase , vantsrofið hveitiprótein, asískt gingseng, og echinacea.

ASL Serum – dregur úr öldrunarblettum
Blanda sem inniheldur hyaluronic-sýru í bland við Gigawhite, sem er þekkt samsetning úr sjö alpajurtum. Blanda er hönnuð með það í huga að auka raka húðarinnar og sefa hana um leið og hún dregur úr öldrunarblettum.
Inniheldur: Vatn, jurtaglýseról, jurtirnar alva sylvertis, primula versi, alchillea mileforlium ásamt hyaluronic-sýru, xanthan gum, silicate, kamillu, grænu tei, glúkósa, lactoperoxidase og glúkósaoxidase.

DCL Serum – dregur úr baugum
DCL sermið er áhrifamikil blanda hyaluronic-sýru og Eyeseryl og Regu-Age, sem eru blöndur hannaðar með það fyrir augum að draga úr baugum og gefa húðina góðan raka. Eyseryl og Regu-Age eru einkaleyfisblöndur sem báðar hafa verið rannsakaðar vísindalega með góðum árangri.
Inniheldur: Vatn, jurtaglýseról, Acetyl Tertrapeptíð-5, vatnsorfið hrísgrjónaprótein, sojaprótein, oxido reductases, hyaluronic-sýra, xantham gum, kamilla, grænt te, glúkósi, lactoperoxidase og glúkósaoxidase.

Hvert þessara serma er það sem kallað er „spa tested“, sem merkir að þau eru mjög basísk og eru að sjálfsögðu án parabena. Ítarlegar upplýsingar um Episilk Serum má finna hér: http://episilkserum.com/ingredients.html 
 
Texti: Guðrún Kristjánsdóttir
Helstu heimildir:
The Hyaluronic Acid Miracle. Höf: Dr. Chris Meletis og David Rousett. Útg: Freedom Press, US 2010.
http://www.naturalnews.com/032283_hyaluronic_acid_skin.html  
http://episilkserum.com/  
www.hyalogic.com  

Senda á Facebook