Heilsuhúsið

Verslanir
  • Laugavegur s. 552 2966
  • Lágmúla s. 578 0300
  • Kringlunni s. 568 9266
  • Smáratorgi s. 564 5666
  • Selfossi s. 482 3915
  • Akureyri s. 462 1889
  • Reykjanesbær s. 578 5560
Heilsumoli vikunnar
Baunir - suðutími

Suðutími bauna Magn miðast við 500 g af þurrum baunum Tegund Magn í dl Tími í bleyti, klst Tími í suðu, mín. Þyngd eftirsuðu í g Aduki baunir 5,5 12 30... Meira

Uppskrift mánaðarins
Linsusalat með sólþurrkuðum tómötum og ætiþistlum

170 g/2 dl linsur, Puy, þurrkaðar 80 g/11/2 dl sólþurrkaðir tómatar í kryddlegi 80 g/11/2 dl ætiþistlar marineraðir í olíu 4 tsk ólífuolía 1/2 dl  Balsamico, edik 1 tsk hvítlaukur eða hvítlauksmauk 1... Meira

Andoxunarrík bætiefni til inntöku verða að öllum líkindum besta svarið gegn skaðlegum geislum sólarinnar í framtíðinni



Byggt á grein eftir Dr Pieris Nicola PhD BSc (Hons) Dip ION

Nýleg grein sem birtist í Sunday Times rennir sterkum stoðum undir það að húðina sé best að vernda með margskyns hætti. Flest húðsnyrtivörufyrirtæki eru nú farin að sjá kosti þess að fólk neyti andoxunarefna til að verja húðina gegn skaðlegum geislum sólarinnar. Snyrtivöruframleiðendur geti lært margt af framleiðendum heilsufæðis og bætiefna.
 
Flest okkar hafa orðið vör við hættuna af langvarandi veru í sól og nauðsyn þess að verja húðina gegn skaðlegum útfjólubláum (UV) geislum hennar. Flestir sóldýrkendur nota allskyns sólarkrem sem ýmist vernda húðina gegn UV eða drekka þá í sig. Ekki er hægt að útiloka alla UV geisla sólarinnar sama hversu mikla sólarvörn fólk ber á sig. Vísindamenn hafa nú bent á að til séu fleiri leiðir til varnar sólinni en sólarkrem. Þessi vörn er í formi bætiefnataflna sem innihalda andoxunarefni og veitir jafnvel betri og dýpri vörn
Vísindamenn hafa verið að rannsaka hvað býr að baki því að sumir UV geislar sólarinnar eru skaðlegri en aðrir og hafa komist að því að ofgnótt UV geisla bæla að öllum líkindum niður varnir líkamans og dragi úr eiginleikum hans til þess að verjast krabbameinum. Þetta eykur einnig líkurnar á framleiðslu skaðlegra sindurefna sem koma af ýmsum stærðum og gerðum. Sindurefni geta eyðilegt stærri sameindir líkamans eins og prótein og fitu og geta breytt erfðafræðilegri byggingu DNA þráðanna, sem geta hugsanlega stuðlað að húðskemmdum, öldrun um aldur fram og krabbameini. Vandamálið er ennfremur bundið þeirri staðreynd að UV geislar sólarinnar hafa einnig áhrif á ensím sem ýta undir vöxt og viðgang krabbameinsfrumna.

Andoxnarefni sem vernda húðina
Húðþekjan (sýnilegi hluti húðarinnar) býr yfir tvenns konar UV varnarbúnaði. Það eru undirlagið sem endurkastar verulegum hluta UV geislanna en geymir jafnframt andoxandi ensím; og melanín og mólíkúl sem frásoga UV geisla. Sýnt hefur verið fram á að andoxunarefni, sem fólk tekur inn, safnast fyrir í undirlagi húðarinnar og gegna mikilvægu hlutverki í að vernda okkur gegn eyðandi sindurefnum UV. Þetta er stutt af rannsókn sem sýndi að regluleg neysla ávaxta og grænmetis dregur úr líkum á húðkrabbameini.
Andoxunarefni og víxlverkun þess við sindurefni hefur verið helsta umræðuefnið í tengslum við vaxandi áhuga í þróun áætlana í baráttunni gegn húðskemmdum af völdum UV geisla. En einmitt þetta hefur gefið “sólvarnarpillunni” byr undir báða vængi, sem væri þá blanda fjölbreyttra jurtaandoxunarefna sem hefði það hlutverk að vernda húðina innan frá.
Sýnt hefur verið fram á að fjöldi jurtanæringarefna í formi áhrifaríkra andoxunarefna hafa mikla getu til þess að vernda húðina gegn skemmdum af völdum UV geisla. Þau helstu eru meðal annars jurtaþykkni úr grænu tei, curcumóníðar (sem finnast í turmeriki), jurtanæringarefni úr aðalbláberjum, procyanidins (úr vínþrúgum), oleuropein (úr ólífulaufum), alfa-lípó-sýra og karótenóíð.

Karótenóíðin Lycopene og astaxanthin
Bæði lycopene og astaxanthin eru karótenóíð sem búa yfir mikilli getu til að vernda húðina fyrir UV sólarskemmdum. Lycopene, er skærrautt litarefni og afar öflugt andoxunarefni sem finnst bæði í grænmeti og ávöxtum og hefur þann eiginleika að geta hlutleyst eða “kæft” eyðandi sindurefnum. Nýleg rannsókn frá Háskólunum í Newcastle og Manchester, sem birt var í British Journal of Dermatology (riti um húðsjúkdómafræði) sýndi að dagleg neysla á lycopene ríku tómatmauki bætir merkjanlega varnir húðarinnar til að verjast UV geislum. Í samanburði við viðmiðunarhóp kom í ljós að þátttakendurnir sem höfðu borðað tómatpastað höfðu 33% meiri varnir gegn sólbruna. Þá kom í ljós að lycopene sýndi líka marktæka aukningu á svokölluðu pro-kollageni, sem er byggingasameind húðarinnar og hægir á öldrun hennar og verndar jafnframt svokallað mitochondrial DNA (sem er staðsett í frumulíffærum) gegn skaðlegum áhrifum UV. Skemmdir á mitcohondiral DNA hefur verið tengt aukinni öldrun húðarinnar.

Astaxanthin, sem er bleikt/appelsínugult að lit er aðallitarefni sjávarskeldýra. Það finnst m.a. í laxi og nokkrum tegundum fugla, þar á meðal í flamengóum og myndast einnig í grænþörungnum Haematococcus pluvialis. Astaxanthin geymir öfluga geislavörn og býr yfir miklum andoxunareiginleikum. Skráð hefur verið af vísindamönum að astaxanthin sé 10 sinnum öflugra en þau karótenóíð sem hafa verið rannsökuð, þar er átt við lútín, zeaxanthin, cabtahaxabthin og beta-karótón.

Einnig er það talið allt að 550 sinnum til 1000 öflugra en Alpha-tocopherol? sem er ákveðið form af E-vítamíni. Vísindamenn og húðsjúkdómalæknar hafa sýnt með rannsóknum að astaxanthin virkar líkt og svampur sem sogar í sig UV geislana. Talið er líklegt að það dragi einnig úr verkjum og bólgum í tengslum við sólbruna. En hitt er líka vitað að axtaxanthin hefur góð áhrif á þrótt þeirra sem stunda mikla líkamsrækt.

Aðalatriði andoxunarefna og verndar gegn UV
Á heildina litið benda niðurstöður rannsóknir eindregið til þess að neysla á náttúrulegum andoxunarefnum, sem eiga rætur sínar í jurtum, dragi úr húðskemmdum af völdum sólar. Mark Birch-Machin, prófessor í sameindar og húðlæknisfræðum við Háskólann í Newcastle mælir frekar með náttúrulegum andoxunarefnum en sólarvörn og segir framtíðina einbeita sér að bætiefnum til inntöku gegn skaðsemi sólarinnar. Hann segir orðrétt: “Við þurfum að finna betri leið til þess að ná þeim (andoxunarefnunum) inn í húðina og bætiefni verða svarið.”
Engu að síður segja vísindamenn töflur ekki koma algerlega í stað sólarvarna, en verði þó undirstaða gegn skaðlegum geislum sólarinnar. Þetta þýðir með öðrum orðum að andoxunarefni eru á góðri leið með að verða hið náttúrulega “húðnæringarlyf” framtíðarinnar.


Heimildir:

1. Birket M, Birch-Machin MA. The T414G mitochondrial DNA point mutation accumulates in a photoaging-dependent manner in human skin. Ageing Cell 2007;6:557-64.
2. Krinsky N.I. Antioxidant functions of carotenoids. Free Radic Biol Med 1989;7:617–635.
3. Naguib Y.M. Antioxidant activities of astaxanthin and related carotenoids. J Agric Food Chem 2000;48:1150–1154.
4. Rizwan M, Rodriguez-Blanco I, Harbottle A et al. Tomato paste rich in lycopene protects against cutaneous photodamage in humans in vivo: a randomized controlled trial. Br J Dermatol 2011;164:154-62. 5. Suganuma K, Nakajima H, Ohtsuki M et al. Astaxanthin attenuates the UVA-induced up-regulation of matrix-metalloproteinase-1 and skin fibroblast elastase in human dermal fibroblasts. J Dermatol Sci 2010;58:136-42.


 


 

Senda á Facebook