Heilsuhúsið

Verslanir
  • Laugavegur s. 552 2966
  • Lágmúla s. 578 0300
  • Kringlunni s. 568 9266
  • Smáratorgi s. 564 5666
  • Selfossi s. 482 3915
  • Akureyri s. 462 1889
  • Reykjanesbær s. 578 5560
Heilsumoli vikunnar
Baunir - suðutími

Suðutími bauna Magn miðast við 500 g af þurrum baunum Tegund Magn í dl Tími í bleyti, klst Tími í suðu, mín. Þyngd eftirsuðu í g Aduki baunir 5,5 12 30... Meira

Uppskrift mánaðarins
Linsusalat með sólþurrkuðum tómötum og ætiþistlum

170 g/2 dl linsur, Puy, þurrkaðar 80 g/11/2 dl sólþurrkaðir tómatar í kryddlegi 80 g/11/2 dl ætiþistlar marineraðir í olíu 4 tsk ólífuolía 1/2 dl  Balsamico, edik 1 tsk hvítlaukur eða hvítlauksmauk 1... Meira

Bætiefni sem vinnur gegn miðeyrabólgu barna


Bætiefni sem vinnur gegn miðeyrnabólgu barna


Animal Parade® tuggutöflurnar, sem ætlaðar er börnum sem þjást af kvillum í innra eyra, innihalda einhverja áhugaverðustu uppgötvun á sviði probiotics mjólkursýrugerla síðan menn áttuðu sig á magnaðri virkni lactobacillius acidophilus mjólkursýrugerlanna. Töflurnar geyma kraft K12 probiotics mjólkursýrugerlanna, sem hafa þann eiginleika að vinna á meinum í innra eyra og hálsi, einmitt þar sem börn eru hvað viðvæmust fyrir sýkingum. Þar að auki eru töflurnar með náttúrulegu kirsuberjabragði og eru algert lostæti.
Með Animal Parade tuggutöflunum fyrir börn með vandamál í innra eyra (líka þekkt sem miðeyrnabólga) geta foreldrar fært sér í nyt hjálp billjóna lifandi probiotics mjólkursýrugerla sem tryggja bestu mögulegu eyrnaheilsu barna.
Töflurnar eru styrktar með kælandi, róandi og sefandi eiginleikum kamillu og krafti úr kóngaljósi (mullein). Í Animal Parade töflunum er að finna fullkomna samsetningu probiotics mjólkursýrugerla fyrir börn með vandamál í innra eyra.

Þróuð að ósk foreldra
Þessi blanda er þróuð að ósk fjölda foreldra sem kjósa aðeins bestu fáanlegu næringarefni fyrir börnin sín. Þessi sérvalda, vinveitta probiotics bakteríuflóra inniheldur lifandi og vinveitta K12 gerla, sem hindrar breiðan hóp skaðlegra og eyðanda baktería. K12 er sömu tegundar og jógúrtgerillinn salvarius v. themophilus – en býr þó yfir einstökum eiginleikum.

Allir þekkja eyrnavandamál íslenskra barna og þá þrautagöngu sem foreldrar þurfa að ganga til þess að fá bót meina barna þeirra. Sama vandamál herjar á börn víða á Vesturlöndum. Í Bandaríkjunum valda kvillar í innra eyra því að 5 milljón skóladagar tapast á ári, útheimta 15 til 30 milljónir heimsókna til lækna og kosta á bilinu 3 til 4 billjónir Bandaríkjadala í læknis- og lyfjakostnað.

Það er staðreynd að miðeyrnabólga er algengasta bakteríusýkingin meðal ungra barna. Það á bæði við hér og víða erlendis. Meinvirk baktería gerir áras á innra eyrað í gegnum kokhlustina, sem veldur þrýstingi á milli innri eyrna og munnhols. Margir læknar og vísindamenn eru þeirrar skoðunar að þetta vandmál, sem er algengast hjá börnum á aldrinum 1 til 4 ára, verði til vegna þess að kokhlustin, höfuðið og munnvefirnar þroskast ójafnt. Þetta veldur því að kokhlustin nær aldrei að þorna upp og verður því upplögð gróðastía fyrir meinvirkar bakteríur.

Rannsóknir fóru fram úr vonum
Vísindamenn hafa m.a. rannsakað hinar ýmsu tegundir vinveittra baktería og vita nú hver þeirra hentar meltingunni best, en það er lactobacillius acidophilus. Í sama tilgangi rannsökuðu þeir hvort einhver þessarra vinveittu baktería hefði betri áhrif á eyru, nef og háls en önnur. Vísindamenn komust að því að streptococcus salivarius væri sú baktería, en hún er ein tveggja sem er nauðsynleg í jógurt, í raun er ólöglegt að kalla jógurt jógúrt ef þessa vinveittu bakteríu er ekki að finna í jógúrtblöndunni. En því miður reyndust ekki allir s.salivarius henta til þess að ráða niðurlögum miðeyrnabólgu. Við frekari skoðun reyndust þessar vinveittu bakteríur virka best með lífefninu bacteriocin salivarcin A., sem sýnt hefur verið fram á að dragi úr streptococcus pyogenes, örverunni sem er helsti valdurinn að miðeyrnasýkingu og hálsbólgu hjá skólabörnum.
Bacteriocins er sýkladrepandi prótein sem myndast fyrir tilstilli bakteríu sem framleiðir efni sem drepur skyldar bakteríur en ekki stofninn sjálfan. Það þýðir að hún er ónæm fyrir bacteriocin. Hugtakið bacteriocin-lík hamlandi efni er notað til þess að lýsa bakteríuframleiðslu sem hafa hamlandi áhrif á bacteriocin. Streptococcus salvarius K12 stofninn framleiðir meiri K12 sýkladrepandi bacteriocin-lík hamlandi efni en nokkur annar stofn sem rannsakaður hefur verið.

Rannsóknir í Kanada, Bretlandi og Nýja Sjálandi hafa sýnt að bacteriocin-lík hamlandi efnið K12 fór langt fram úr væntingum hvað varðaði hæfileika til að framleiða bacteriocin-lík hamlandi efni sem geta ráðið niðurlögum baktería sem safnast fyrir í kokhlustinni og valda sýkingu. Rannsóknirnar sýndu jafnframt að K12 gegnir lykilhlutverki í að eyða bólgum og endurbyggja eðlilega virkni frumna í breiðum hópi mikilvægra mannsfrumna, þar á meðal í þeim frumum sem finnast í öndunarfærunum. Margt annað óvænt hefur komið á daginn. Mikilvæg rannsókn var birt í European Journal of Cinical Microbiology & Infection Diseases, sem sýndi jafnframt að langtímaáhrif koma fram í efri öndunarvegi (eyrum, nefi og hálsi) með K12 strax eftir skammt af sýklalyfjum. Einnig var ályktað að þegar K12 væri tekið inn í gegnum munn gæti jafnvel dregið úr hálsbólgu hjá börnum, ekki bara sýkingu í kokhlust. Það er vegna þess að K12 stofninn í ungum börnum getur flutt sig úr munnholi í nefhols- og hálssvæðið, þar sem sýklarnir sem valda eyrnabólgu og sýkingu í miðeyra hreiðra um sig.
Það er því ljóst að hér er á ferðinni ein merkasta uppgötvun síðari ára á sviði vinveittra mjólkursýrugerla.

Fyrir utan K12 er eftirfarandi bætiefni að finna í Animal Parade Inner ear blöndunni sem ætluð er ungum börnum:

L. acidophilus
– Í náttúrunni finnast s. salvarius mjóklursýrugerillinn og l. acidophilus saman. Beggja þessara gerla er raunar krafist í jógúrt svo hún geti talist sem slík. Það er alltént vitað að aðstæður sem draga úr öðrum þeirra draga líka úr hinum. Til dæmis þurrka sýklalyf ekki aðeins út s. salvarius gerilinn heldur útrýma líka l. acidophilus. Af þessum sökum er viturlegra fyrir foreldra sem vilja koma líkamsflóru barna sinna í samt lag að hafa þá báða til taks.

Kamilla hefur verið notuð í aldir við ýmis konar kvillum og gegn streitu. Ekki er langt síðan vísindamenn á Bretlandi fundu nýjar vísbendingar um að kamilla létti á alls kyns kvillum, þar með talið kvefi og sýkingum. Þessi rannsókn var birt 26. janúar í American Chemical Society’s Journal of Agricultural and Food Chemistry.

Kóngaljós (Mullein Leaf) er vinsæl og örugg jurt sem hefur verið notuð um langan aldur til þess að vinna gegn m.a. annars asma, þrálátum bronkítis, þurrum hósta og barkabólgu. Hún er líka mikið notuð gegn miðeyrnabólgu vegna bólgu- og sýklaeyðandi áhrifa.

Xylitol – Þrátt fyrir xylitol sé alla jafna ekki skilgreint sem hitaeininga- eða næringarrík afurð er hún það í þessu tilfelli vegna einstakra eiginleika til þess til þess að kljást við miðeyrnabólgu. Það er löngu vitað að xylitol inniheldur streptococcus mutans, sem kemur í veg fyrir skemmdir í tönnum. Margar rannsóknir styðja þetta og efnið er því gjarnan notað í tyggigúmmí. Sett hefur verið fram rannsóknartilgáta þess efnis að sumir sýklar, þar með talinn s. mutans, frásogi xylitol á sama hátt og hvert annað næringarefni. En þegar þeir reyna að melta það reynist xylitol ómeltanlegt og hindri útbreiðslu bráðrar miðeyrnasýningar um 30 til 40% í ungum börnum. Vísindamennirnir hafa dregið þá ályktun að xylitol búi yfir sýklaeyðandi eiginleikum gegn streptococcus pneumoniae og haemophilus influenzae.

Upplýsingar þessar eru samansafn fróðleiks um náttúrulegar lækningar. Þeim er ekki ætlað að koma í stað tilmæla eða ráðgjafar fagfólks í heilbrigðisþjónustunni. Sjúklingar á lyfjum, einkum séu þeir haldnir alvarlegum sjúkdómum ættu að ráðfæra sig við lækni áður en þeir hefja neyslu bætiefna.

Senda á Facebook