Heilsuhúsið

Verslanir
  • Laugavegur s. 552 2966
  • Lágmúla s. 578 0300
  • Kringlunni s. 568 9266
  • Smáratorgi s. 564 5666
  • Selfossi s. 482 3915
  • Akureyri s. 462 1889
  • Reykjanesbær s. 578 5560
Heilsumoli vikunnar
Baunir - suðutími

Suðutími bauna Magn miðast við 500 g af þurrum baunum Tegund Magn í dl Tími í bleyti, klst Tími í suðu, mín. Þyngd eftirsuðu í g Aduki baunir 5,5 12 30... Meira

Uppskrift mánaðarins
Linsusalat með sólþurrkuðum tómötum og ætiþistlum

170 g/2 dl linsur, Puy, þurrkaðar 80 g/11/2 dl sólþurrkaðir tómatar í kryddlegi 80 g/11/2 dl ætiþistlar marineraðir í olíu 4 tsk ólífuolía 1/2 dl  Balsamico, edik 1 tsk hvítlaukur eða hvítlauksmauk 1... Meira

Baggu bag í stað plastpoka



Ódýrar og fallegar innkaupatöskur orðnar hátískuvara


Heilsuhúsið hefur haft um tíma í sölu á hina litríku og fallegu Baggubag pokum sem slegið hafa í gegn, ekki bara í tískuheiminum heldur líka meðal þeirra sem annt er um umhverfi sitt.
Fyrirtækið sem framleiðir Baggubag samanstendur af litlum hópi framúrskarandi hönnuða og frumkvöðla sem hafa þá hugsjón að leiðarljósi að góð hönnun eigi í senn að vera nothæf, falleg og á skaplegu verði. Markmið þeirra er að skapa fallega nytjavöru sem megi nota á margbreytilegan máta og jafnvel eiga í fleiri en einum lit.
Hópurinn leggur áherslu á fallega og bjarta liti, hátískuhönnun, gæðaefni sem auðvelt er að þvo og hagkvæma notkun.
Í raun er hugmyndin um hönnunina byggð á hinum hefðbundna plastpoka en ólíkt umhverfisspillandi plastpokum eru Baggubag pokarnir umhverfisvænir á allan hátt.
Þar sem Baggubag eru bæði endurnýtanlegir og hægt að nota á margan hátt draga þeir úr almennri sóun. Þótt stórir séu eru þeir í raun mjög fyrirferðalitlir og því má léttilega kippa þeim með í hverskonar erindagerðir og síðast en ekki síst eru þeir svo fallegir að margir kjósa þá sem hluta af heildarstíl sínum.
Vert er að geta þess að notkun á Baggubag í stað plastpoka í eitt ár kemur í staðinn fyrir sóun á allt að 300 til 700 einnota og óendurnýjanlegum plastpokum á mann. Þetta sýnir enn og aftur að ef margir leggjast á eitt getur margt smátt gert eitt stórt.

Á meðfylgjandi myndum má sjá fjölbreytta litaflóru Baggubag en þessir vinsælu fjölnota pokar hafa verið vinsælt umfjöllunarefni á síðum erlendu tískublaðanna að undanförnu og margar kvikmyndastjörnur hafa mært þá. Baggubag má nota hvort sem er sem innkaupapoka, sundtösku, undir skólabækurnar, á fundinn eða hvaðeina sem hverjum dettur í huga. Og það er um að gera að eiga poka í nokkrum litbrigðum.

Sjá nánar á baggubag.com


Senda á Facebook