Gerir fólki kleift að takast á við lífið sem aldrei fyrr
Ef almenningur þekkti eiginleika brenninetlunnar sem lækningajurtar væru allir garðar fullir af netlurunnum.
Auk þess myndu flestir fylla geymslur sínar af þurrkaðri brenninetlu til þess að eiga nægar vetrarbirgðir. Brenninetlan er að öllum líkindum vanmetnasta lækningajurt veraldar, jurt sem litið hefur verið fram hjá allt of lengi. Öll jurtin, hvort sem er stilkurinn, blöðin, ræturnar eða blómin, býr yfir miklum lækningamætti. Það má líklega þakka fyrir að það svíður undan snertingu við hana, annars væri löngu búið að nýta hana upp til agna af mönnum jafnt sem öðrum dýrum.
Grikkir til forna notuðu brenninetlu til hreinsunar líkamans en brenninetla er bæði þvagræsandi og örvandi fyrir meltinguna. Í dag búa menn yfir enn meiri vitneskju um þessa jurt en áður og fullyrt er að hún geti unnið á sykursýki og jafnvel komið í veg fyrir einhverjar tegundir krabbameina.
Sjö barna móðir lýsti því fyrir skömmu hvernig hún læknaðist af sífelldum höfuðverk og exemi með því einu að drekka einn bolla af brenninetlutei daglega. Þetta stafar af því að brenninetlan er blóðhreinsandi og þannig hreinsast exemið innan frá. Rannsóknir sýna að brenninetla er mest blóðhreinsandi jurt sem fyrirfinnst og hreinsar m.a. briskirtilinn. Þá er líka vitað að neysla á brenninetlu lækkar blóðsykur.
Brenninetla hefur líka bólgueyðandi eiginleika og vinnur gegn þvagfærasýkingum, en langbest er að neyta hennar fyrst á morgnanna eða fyrir fyrstu máltíð dagsins. Mælt er með að fólk drekki bolla á dag í mánuð í senn tvisvar á ári. Það framkallar mikla orku og geri fólki kleift að takast á við lífið sem aldrei fyrr.
Eiginleikar brenninetlujurtarinnar
Svo margt gott hlýst af því að neyta brenninetlu að það er nær ógerningur að telja það allt upp. Hún er þvagræsandi, vinnur gegn blóðleysi og er jafnframt notuð gegn margs konar gigt, þar með talið liðagigt. Brenninetla dregur úr exemi, astma, ennis- og kinnholuvandamálum og nefkvefi. Þá vinnur hún á margs konar húðvandamálum og eins og áður sagði hreinsar hún briskirtilinn og minnkar líkurnar á kvefi. Kannski segir það meira en mörg orð um brenninetluna að hún er eitt besta meðalið gegn algengum garðplágum.
Hér eru nokkur fleiri dæmi um lækningamátt brenninetlunnar: Hún vinnur gegn hárlosi, nýrnasteinum, ofnæmi og frjókornaofnæmi, slitgigt, inn- og útvortis blæðingum, blóðnösum og magablæðingum, sem og stækkun milta, sykursýki, röskun á innkirtlastarfsemi, of háum magasýrum, niðurgangi, blóðsótt, lungnavandmálum og nokkrum tegundum krabbameina og hægir á öldrun, en þar að auki er brenninetla notuð sem hressingarlyf. Og þar sem hún er blóðhreinsandi kemur hún líka að góðum notum til þess að græða sár. Brenninetla hefur líka reynst góð við eymslum í vöðvum og vöðvaverkjum.
Eiginleikar brenninetlurótarinnar:
Rót brenninetlunnar vinnur á þvaglátsvandamálum tengdum blöðruhálskirtli, þar með talið því að þurfa að pissa á nóttinni. Hún dregur úr sársauka tengdum þvagláti og sýkingum í þvagblöðru. Hún vinnur á liðvandamálum. Rótin er í senn þvagræsandi og samandragandi.
Ráð David Wolfe um hvernig búa á til brenninetlute:
Margir kannast við David Wolfe, sem kom hingað til lands og hélt fyrirlestur um heilsu og ofurfæðu við góðar undirtektir. Í nýlegu viðtali við Kevin Gianni mærði Wolfe gæði brenninetlunnar og sagði m.a: “Brenninetlu var neytt meðal drúída í Bretlandi í þúsundir ára og var ein mikilvægasta fæðutegund þeirra.” Hann segir að hægt sé að meðhöndla jurtina á margan máta, m.a. búa til safa úr henni eða þurrka til notkunar í te.
Wolfe bender á að brenninetla sé rík af kísil. Til frekari fróðleiks má geta þess að franski vísindamaðurinn Loius Curvan, sem í tvígang hefur verið tilnefndur til Nóbelsverðlaunanna, hefur skrifað fimm bækur um samspil kalks og kísils, en þar sem Curvan skrifar á frönsku hafa bækur hans ekki náð til enskumælandi lesenda nema að litlu leyti.
Einnig má benda á afar vandaðan og góðan Salus brenninetlusafa frá heilsuvörufyrirtækinu Flora, sem fæst í Heilsuhúsinu. Um hann hefur verið sagt: “ Salus netlusafinn hefur umfram allt áhrif á líkamsþyngd. Það kemur til að því að hann örvar efnaskipti, afeitrar og er þvagræsandi. Og þar sem hann er þvagræsandi losar hann einnig út eiturefni. Að auki dregur hann úr fitusöfnun í galli og lækkar kólesteról.”
Frjókorna- og ofnæmisremedía:
Hvað eru ofnæmisútbrot? Það er rauðar rákir eða bólgur sem fólk klæjar gjarnan í. Þetta er samskonar útbrot og fólk fær þegar það kemst í snertingu við brenninetlu. Brenninetla, sem vex villt hér á landi sem og víðast hvar annarsstaðar, getur stundum, en þó alls ekki alltaf, kallað fram ofnæmisútbrot þegar fólk kemst í snertingu við hana.
Eftirfarandi getur kallað fram ofnæmisútbrot:
1. Egg, hveiti, jarðarber og nokkrar aðrar tegundir fæðu.
2. Frjókorn og sveppagró
3. Lyf, fúkalyf, bólgueyðandi lyf
4. Skordýrabit
5. Vírusar, bakteríur eða aðrar sýkingar
6. Brenninetla
Það merkilega við brenninetlu er að ólíkt öðru getur hún í senn valdið ofnæmi og læknað margs konar ofnæmi. Dr. Andrew Weil, náttúru- og grasalæknir, leggur eftirfarandi til: “Notið þurrkuð netlulauf til þess að meðhöndla bæði frjókornaofnæmi sem og annars konar ofnæmi. Þetta kann að hljóma óskynsamlegt en er það alls ekki. Þetta kemur til að því að jurtin geymir ekki það magn histamíns sem veldur vandamálinu. Á hinn bóginn geymir hún efni sem ráða bót á allskyns ofnæmi.”
Það stórkostlega við brenninetluna er að það er tvennt ólíkt að snerta hana og neyta hennar. Einnig er óvenjulegt að rótin búi yfir ennþá meiri lækningaeiginleikum en laufin. Komist þú í tæri við ferska brenninetlu mælum við eindregið með því að þú meðhöndlir hana af varkárni. Notið hana alla, ekki síst rótina. Þurrkið og notið í te.
Brenninetla til margskonar brúks:
Seyði: Setjið 1 msk af brenninetlulaufum í ½ lítra af vatni. Látið standa í 30 mínútur áður en þið drekkið.
Bað: Brenninetla er sérlega góð gegn þursabiti og öðum eymslum í skrokknum. Setjið mikið magn af jurtinni, þar á meðal rótinni, í kalt vatn og geymið yfir nótt. Sjóðið “bruggið” ásamt jurtunum og setjið svo í baðkarið. Látið húðina drekka í sig jurtirnar eins og lengi og þið viljið. Einnig frábært að nota í fótabað.
Sjampó: Setjið ½ bolla af brenninetlu í stóran pott, allt að fimm lítra. Látið sjóða við hægan hita í dágóða stund. Takið pottinn af hellunni og látið standa í 10 mínútur. Blandið saman við olífuolíusápu og leysið upp. Kælið og notið sem sjampó.
PS: Brenninetla er í dag álitin jafn mikilvægur hluti af eldhúsinu og kaldpressuð olífuolía, olífulauf og GSE eða greipaldinkjarnaþykkni. Hafir þú þetta allt innan seilingar máttu treysta því að fátt geti herjað á heilsu þína.
Helstu heimildir:
http://www.mariatrebenherbs.com/stining_nettle.htm
http://www.naturalnews.com/023761_calcium_health_food.html
http://healthmad.com/alternative/eight-health-benefits-of-stinging-nettle/
Þessi grein birtis í Heilsufrétttum í janúar 2010
Senda á Facebook