Heilsuhúsið

Verslanir
  • Laugavegur s. 552 2966
  • Lágmúla s. 578 0300
  • Kringlunni s. 568 9266
  • Smáratorgi s. 564 5666
  • Selfossi s. 482 3915
  • Akureyri s. 462 1889
  • Reykjanesbær s. 578 5560
Heilsumoli vikunnar
Baunir - suðutími

Suðutími bauna Magn miðast við 500 g af þurrum baunum Tegund Magn í dl Tími í bleyti, klst Tími í suðu, mín. Þyngd eftirsuðu í g Aduki baunir 5,5 12 30... Meira

Uppskrift mánaðarins
Linsusalat með sólþurrkuðum tómötum og ætiþistlum

170 g/2 dl linsur, Puy, þurrkaðar 80 g/11/2 dl sólþurrkaðir tómatar í kryddlegi 80 g/11/2 dl ætiþistlar marineraðir í olíu 4 tsk ólífuolía 1/2 dl  Balsamico, edik 1 tsk hvítlaukur eða hvítlauksmauk 1... Meira

Chia-fræin eru á allra vörum í heilsuheiminum í dag

  

Meðal 10 öflugustu ofurfæðutegunda heims

Hér á landi eru enn ekki margir sem þekkja chia-fræin, en þau teljast í hópi 10 öflugustu ofurfæðutegunda heims, m.a. að mati hins virta heilsusérfræðings David Wolfe, sem flutt hefur fyrirlestra hér á landi. Chia-fræin eru á allra vörum í heilsufræðunum um þessar mundir, sérstaklega hjá þeim sem langt eru komnir inn á heilsusamlegar brautir.  Chia-fræin eru oft kölluð ofurfæða 21. aldarinnar en jafnframt eitt best geymda leyndarmálið í sögu næringarfræðinnar.

 

Hvað eru chia-fræ?

Chia-fræin koma af  jurtinni Salvia hispanica, eða salvíu, sem tilheyrir ætt myntujurta. Fræin eru einstaklega rík af omega-3 fitusýrum og fullyrða sérfræðingar að þau séu besta uppspretta omega 3 sem völ er á, jafnvel betri en lax og hörfræ. Það þýðir með öðrum orðum að fræin eru frábær fyrir hjartað og vinna gegn bólgum í líkamanum.
Chia-fræin má nýta með margvíslegum hætti til matargerðar en einnig  borða beint. Chia-fræ voru hluti af hefðbundinni fæðu Azteka á öldum áður og vaxa í Mexíkó, Argentínu, Bólivíu, Ecvador og Guatemala. Einn virtasti næringarfræðingur heims, Dr. Andrew Weil, segir að sérstaða chia-fræjanna felist í því að þau geta dregið sig allt að 12 sinnum þyngd sína af vökva og eru því lengi að fara í gegnum meltingarveginn. Hann segir jafnframt frá því á vefsíðu sinni, www.drweil.com, að fyrir tíma Kolumbusar í Ameríku hafi chia-fræin verið helsta fæðubót Azteka og Maya indijána, og hafi m.a. verið gefin stríðsmönnum Azteka í miklum mæli: „Svo virðist sem 1 msk dugi sem næring fyrir einstakling í 24 tíma. Aztekar notuðu einnig chia-fræ til lækinga, m.a.  til að örva munnvatnsmyndun, laga liðverki og græða sár á húð,“ segir Dr. Andrew Weil.

Sólveig Eíríksdóttir á Gló segir um chia-fræin: „Þetta er algjör ofurfæða sem inniheldur rosalega góðar omega sýrur og um 30% prótein. Þessi fræ hægja á upptöku sykurs og sterkju út í blóðrásina.“

 

Og hér eru 10 ástæður fyrir því að þú ættir neyta chia-fræja:

1. Ef þú hefur óslökkvandi löngun í mat, veldu chia-fræ!
Þarna er líkaminn þinn að segja þér eitthvað, líklega að hann skorti vítamín og steinefni. Í stað þess að finna réttu næringuna er líklegt að þú gerir þér ferð í eldhúsið og fáir þér allt annað en það sem líkaminn þarfnast. Ef þig skortir kalk, eins og marga hér á landi, stráðu þá chia-fræjum yfir matinn þinn. Auk kalks innihalda þau bór, magnesium, járn, zink og fjölda snefilefna sem hjálpa til við frásog annarra næringarefna.

2. Ertu þreyttur? Það er mataræðið!
Það sama gildir um þreytu og óslökkvandi löngun í mat, þú ert að öllum líkindum að borða ranga fæðu. Marga skortir góð prótein. Chia-fræin eru ein besta náttúrulega lausnin gegn próteinskorti. Í þeim er hárfínt jafnvægi margra efna sem ýta við orkunni án þess að valda verulegum sveiflum. Það breytir því þó ekki að nauðsynlegt er að neyta einnig alhliða hollrar fæðu.

3. Berst gegn eyðandi sindurefnum!
Andoxunarefni eru afar mikilvæg til þess að koma í veg fyrir að sindurefni skaði líkama okkar.  Þetta “glæpahyski” getur haft margs konar slæm áhrif á líkama okkar sem leiða til allskyns kvilla og bólgusjúkdóma og láta okkur eldast um aldur fram. Þess vegna þurfum við á öflugum andoxunarefnum að halda. Chia-fræin eru sérlega rík af andoxunarefnum á borð við quercetin, sem er sérlega bólgueyðandi, og myricetin, sem er talið vinna gegn kransæðasjúkdómum og krabbameini.  Þessi tvö andoxunarefni nýtast líkamanum mjög auðveldlega. Þar að auki geymast chia-fræin vel og halda næringu sinni þótt þau séu geymd við stofuhita.

4. Losar okkur við hungurverki!
Nú getur þú loksins létt þig án þess að berjast við hungurverki.  Það kemur til vegna þess að þegar þú blandar chia-fræjum saman við vatn þenjast þau út og verða hlaupkennd. Þannig verða þau fylling fyrir magann svo tímunum skiptir og um leið hitaeiningasnauð næring.

5. Omega-3!
Mörgum okkar þykir fiskur góður en erum þó ekki tilbúin að borða hann daglega. Svo eru þeir sem eingöngu borða grænmeti og eiga erfitt með fá nægilegt magn af omega 3 fitusýrum. Góðu fréttirnar eru þær að chia-fræin, sem eru úr jurtaríkinu, eru ríkulegasta uppspretta omega 3 fitusýra sem völ er á, en þekkt er að omega 3 lækkar kólesterólið í líkamanum. Langtíma vísindalegar rannsóknir hafa sýnt að næg inntaka  omega 3 hjálpar fólki að minnka líkamsþyngd.

6. Forðastu rússíbana!
Eru orkusveiflur hluti af þínu daglega lífi? Það tengist blóðsykrinum og slíkar sveiflur leiða því miður oft til sykursýki 2. Chia-fræin gera það að verkum að fæðan fer hægt í gegnum meltingarveginn og nýtist líkamanum að fullu í orku og næringu. Fræin innihalda hvort sem er uppleysanlegar og óuppleysanlegar trefjar sem verða hlaupkenndar í meltingarveginum. Það ferli lækkar blóðsykurinn og mýkir meltinguna svo um munar.

7. Berst gegn sjúkdómum!
Þar sem við erum oft að flýta okkur neytum við alltof of oft  unninnar fæðu, hvort sem er úr dósum, gleri, plasti eða öðru. Við borðum líka alltof mikið af hreinsuðu mjöli. Þetta leiðir af sér trefjaskort, sem getur leitt til ristilsepa og/eða –poka, sem annar hver Bandaríkjamaður þjáist af. Flest þurfum við að bæta meltinguna og þar eru trefjar besti kosturinn. Í því tilliti þurfum bæði við á uppleysanlegum og óuppleysanlegum trefjum að halda. Í chia-fræjunum leynast uppleysanlegar trefjar en þær eru húðaðar með þeim óuppleysanlegu. Þær óuppleysanlegu halda meltingunni á hreyfingu og stuðla að því að fæðan skili sér allan meltingarveginn. Hlaupkennd áferð fræjanna sér til þess að allt gangi vel og skilmerkilega fyrir sig.

8. Sparið peninga!
Jú, chia fræin kunna að virðast dýr. Sú er þó alls ekki raunin þegar upp er staðið því þau draga úr matarlyst og næringin nýtist betur. Gætið þess um að fjárfesta í lífrænum chia-fræjum, t.d. frá Puritan´s Pride, sem fást í Heilsuhúsinu. Það má hvort sem er taka mikið eða lítið magn af chia-fræjum án þess að þau valdi skaða. Fræin eru fullkomlega laus við öll eiturefni.

9. Bragðbætir mat!
Hér er ein skemmtileg staðreynd; þegar bleytt er upp í chia-fræjum bæta þau bragð fæðunnar sem þú stráir þeim út á. Þetta kemur sér vel ef þú vilt krydda bragðdaufan mat. Það er í raun undursamlegt hvað chia-fræ, sem eru nær bragðlaus, geta gert fyrir nánast hvaða mat sem er. Og þau draga aldrei úr bragðgæðunum. Stráðu þeim yfir morgun-, hádegis- og kvöldmatinn.

10. Kemur í stað fitu og varðveitir bragð!
Ef þú ert mjög áhugasamur/söm um matreiðslu munu chia-fræin verða þér uppspretta margra áhugaverðra hluta í matargerð, t.d. ef þig vantar hráefni sem inniheldur góða fitu. En af hverju að velja chia-fræ? Maturinn mun bragðast eins og þú þarft ekki að breyta uppskriftinni. Minnkaðu olíuna um helming og notaðu chia fræ sem hafa legið í vatni í staðinn. Chia-fræin hafa líka þann eiginleika að halda matnum lengur ferskum. Skiptu út chia-fræjum fyrir hvort sem er olíu eða smjör.

Chia fræ innihalda lífsnauðsynlegar omega-3 fitusýrur í formi Alpha Linoleic sýru (ALA) og omega-6 fitusýrur í formi Linoleic Acid (LA).

Heimildir:
Byggt á grein eftir Nancy Desjardins, heilsuráðgjafa á www.healthlady.com. Aðrar heimildir: Chia Seed e. Diana Allen, MS, CNS. Útg: Woodland Publishing, www.naturalnews.com, www.davidwolfe.com, www.drweil.com, www.heilsubankinn.is

 

 

 

Senda á Facebook