Heilsuhúsið

Verslanir
  • Laugavegur s. 552 2966
  • Lágmúla s. 578 0300
  • Kringlunni s. 568 9266
  • Smáratorgi s. 564 5666
  • Selfossi s. 482 3915
  • Akureyri s. 462 1889
  • Reykjanesbær s. 578 5560
Heilsumoli vikunnar
Baunir - suðutími

Suðutími bauna Magn miðast við 500 g af þurrum baunum Tegund Magn í dl Tími í bleyti, klst Tími í suðu, mín. Þyngd eftirsuðu í g Aduki baunir 5,5 12 30... Meira

Uppskrift mánaðarins
Linsusalat með sólþurrkuðum tómötum og ætiþistlum

170 g/2 dl linsur, Puy, þurrkaðar 80 g/11/2 dl sólþurrkaðir tómatar í kryddlegi 80 g/11/2 dl ætiþistlar marineraðir í olíu 4 tsk ólífuolía 1/2 dl  Balsamico, edik 1 tsk hvítlaukur eða hvítlauksmauk 1... Meira

CoCowell kókoshnetuvatn er svalandi sumardrykkur


Frábært fyrir heilsuna og ímyndunaraflið

Cocowell er hreint kókoshnetuvatn sem pressað er úr ungum grænum kókoshnetum og því stundum kallað jómfrúrkókóshnetuvatn. Kókoshneturnar í Cocowell drykknum koma úr vottaðri lífrænni ræktun enda drykkurinn bæði sérlega hollur og bragðgóður, og margir fullyrða að hann sé sá besti á markaðnum í dag.

Hollusta Cocowell kókoshnetuvatnsins er óumdeild. Það inniheldur nauðsynleg sölt og steinefni í sömu hlutföllum og líkaminn. Það hefur því þann eiginleika að geta endurhlaðið líkamann af sömu efnum og tapast við svita og vegna kröftugra æfinga.
Þessi fitulausi lágkolvetna (aðeins 20 kaloríur eru í hverjum 100 ml) hreini næringardrykkur er frábær kalíumgjafi. 237 ml af þessum "lífsvökva" inniheldur meira kalíum en banani og um það bil 15 sinnum meira magn en flestir íþróttadrykkir.
Jómfrúarkókóshnetuvatn getur einnig bætt meltinguna, jafnað sýrustig líkamans, örvað efnaskiptin og komið í veg fyrir ofþornun. Þetta er því frábær drykkur til að bæta líkamanum upp nauðsynlegan vökva.
Mörgum þykir gott að drekka kókoshnetuvatnið ískalt, eins og það kemur fyrir, enda sérlega svalandi en aðrir kjósa að nota það sem grunn í margskonar drykki. Mjög vinsælt er að blanda saman kókosvatni og spínati. Þessi samsetning er sögð hafa svipað innihald og blóðplasma. Einnig vilja margir bæta við nýtíndum bláberjum sem eykur enn á næringarinnihaldið. Kóksvatn er einnig góður grunnur í allskyns smoothies, m.a. kakósmoohies en þá er bara að nota ímyndunaraflið og skoða hvað manni finnst fara best með kókosvatni og lífrænu kakói, t.d. chili, mynta, ber...
Rotvörnin í Cocowell kókoshnetuvatninu er Ascorbic sýra (C-vítamín). Semsagt þetta kókoshnetuvatn er úr fullkomlega lífrænni og óerfðabreyttri ræktun og án rotvarnarefna.

Senda á Facebook