Dekur í hæsta gæðaflokki
Húðmaskarnir frá Aubrey Organics
Fáar snyrtivörur eru jafn hreinar og ómengaðar og línan frá Aubrey Organics, sem býr að 40 ára reynslu af húðumhirðu. Nú er svo komið að áhuginn á hreinum og vönduðum snyrtivörum hefur aldrei verið meiri. Í krafti víðtækrar reynslu og rannsókna hefur Aubrey meðal annars tekist að blanda afar kröftug jurtaseyði sem henta hverri húðtegund fyrir sig og bjóða nú upp á magnaða andlitsmaska sem innihalda þessi seyði. Maskarnir eiga það allir sameiginlegt að endurbyggja, næra og hreinsa húðina og ljá henni ljóma. Þeir hafa allir fengið frábærar umsagnir og í mörgum tilfellum fimm stjörnur. Maskarnir frá Aubrey Organics eru sannkallað dekur með hækkandi sól.
Jojoba Meal & Oatmeal with Rosa Mosqueta® Mask & Scrub.
Fyrir þurra húð er mælt með maska úr Jojobamjöli og haframjöli með Rosa Mosqueta, sem er í senn andlitsmaski og skrúbb. Þessi maski er ríkur af nærandi fitusýrum og raka, sem og styrkjandi C-vítamíni sem endurnýjar húðina.
Green Tea & Green Clay Rejuvenating Mask.
Eðilegri húð hentar best leirmaski með grænum leir og grænu tei. Maskinn inniheldur lífrænt, grænt Matcha-te, sem er afar andoxunarefnaríkt og bæði mýkir og verndar. Græni leirinn hreinsar óhreinindi og laðar fram það fallegasta í húðinni. Inniheldur einnig postulínsleir og ávaxtasýrur í hárfínu jafnvægi.
Sea Buckthorn & Cucumber with Ester-C® Moisturizing Mask.
Þeir sem eru með blandaða þurra húð ættu að nota rakamaska með hafþyrni (e. Sea Buckthorn), sem er kröftugt andoxunarefni, agúrku sem er frábær rakagjafi og ester C-vítamíni, sem er sérlega nærandi. Margir nota þennan maska daglega með afskaplega góðum árangri og segja húðina ljóma sem aldrei fyrr.
Blue Green Algae with Grape Seed Extract Soothing Mask. Þeir sem eru með blandaða, feita húð ættu að halla sér að maska með blágrænum þörungum og þrúgukjarnaþykkni. Þessi maski er ríkur af andoxunarefnum og ensímum sem fjarlægja dauðar húðfrumur. Hann inniheldur einnig postulínsleir, sem fjarlægir óhreinindi. Margir segjast geta notað þennan maska allt að þrisvar í viku án þess að hann þurrki húðina.
Vegecol with Aloe & Oatmeal Soothing Mask.
Mýkjandi maski með fjallagrösum, aloe vera og haframjöli, fyrir feita húð.
Senda á Facebook