Heilsuhúsið

Verslanir
  • Laugavegur s. 552 2966
  • Lágmúla s. 578 0300
  • Kringlunni s. 568 9266
  • Smáratorgi s. 564 5666
  • Selfossi s. 482 3915
  • Akureyri s. 462 1889
  • Reykjanesbær s. 578 5560
Heilsumoli vikunnar
Baunir - suðutími

Suðutími bauna Magn miðast við 500 g af þurrum baunum Tegund Magn í dl Tími í bleyti, klst Tími í suðu, mín. Þyngd eftirsuðu í g Aduki baunir 5,5 12 30... Meira

Uppskrift mánaðarins
Linsusalat með sólþurrkuðum tómötum og ætiþistlum

170 g/2 dl linsur, Puy, þurrkaðar 80 g/11/2 dl sólþurrkaðir tómatar í kryddlegi 80 g/11/2 dl ætiþistlar marineraðir í olíu 4 tsk ólífuolía 1/2 dl  Balsamico, edik 1 tsk hvítlaukur eða hvítlauksmauk 1... Meira

Engifer besta ráðið gegn bílveiki



Bílveiki er ein tegund svokallaðra ferðaveiki, sem fólk getur fundið fyrir þegar það ferðast hvort sem er með bíl, skipi, flugvél eða fundið fyrir í tívolítæki. Í vægum tilfellum birtist hún sem órói og höfuðverkur en í alvarlegri tilfellum sem ógleði, uppköst, með óeðlilegri svitamyndun, munnvatnsrennsli eða í formi svima, kvíða og fölva.
Margar vísindalegar rannsóknir benda til þess að besta meðalið gegn ferðaveiki sé engifer en á meðan flest ógleðilyf virka í gegnum heilann og innra eyra, virkar engifer aðeins á magann. Önnur jurt sem líka slær á einkenni ferðaveiki er piparmynta sem vinnur með svipuðum hætti og engifer.
Hægt er að fá engifer í margskonar formi. Sem bætiefni, te og gosdrykk en langbest er að koma við á Heilsubar Heilshússins og fá sér hreint engiferskot áður en lagt er atlögu við vegi landins. Engfer fóðrar magann og kemur í veg fyrir að þar myndist órói. Einnig er gott að grípa með sér bætiefni eða te í ferðalagið.
Senda á Facebook