Heilsuhúsið

Verslanir
  • Laugavegur s. 552 2966
  • Lágmúla s. 578 0300
  • Kringlunni s. 568 9266
  • Smáratorgi s. 564 5666
  • Selfossi s. 482 3915
  • Akureyri s. 462 1889
  • Reykjanesbær s. 578 5560
Heilsumoli vikunnar
Baunir - suðutími

Suðutími bauna Magn miðast við 500 g af þurrum baunum Tegund Magn í dl Tími í bleyti, klst Tími í suðu, mín. Þyngd eftirsuðu í g Aduki baunir 5,5 12 30... Meira

Uppskrift mánaðarins
Linsusalat með sólþurrkuðum tómötum og ætiþistlum

170 g/2 dl linsur, Puy, þurrkaðar 80 g/11/2 dl sólþurrkaðir tómatar í kryddlegi 80 g/11/2 dl ætiþistlar marineraðir í olíu 4 tsk ólífuolía 1/2 dl  Balsamico, edik 1 tsk hvítlaukur eða hvítlauksmauk 1... Meira

Fagurt skart gætt djúpri merkingu beint frá bónda



 

Andi Kailash fangaður í  Heilsuhúsið:

Fagurt skart gætt djúpri merkingu beint frá bónda

Vörur frá tíbetska handprjónasambandinu og bændum í Nepal og gæddar djúpri merkingu prýða nú allar verslanir Heilsuhússins. Hér er um að ræða hálsfestar, eða svokölluð talnabönd, hálsmen með táknum í leðurbandi, armbönd og lyklakippur, skart sem ber vönduðu handbragði þessa framandi heims fagurt vitni.

Vörurnar koma frá versluninni Kailash í Hafnarfirði. Verslunin opnaði fyrir um ári síðan og nýtur bæði vinsælda og virðingar, enda sker hún sig úr fyrir að bjóða ekki upp á vestræna fjöldaframleiðslu á austrænum vörum vörur sem eru fluttar inn beint frá bændunum í Tíbet og Nepal.
Gaman er að segja frá því að Beggi Morthens, einn eigenda Kailash, varð þeirrar gæfu aðnjótandi í ágúst á síðasta ári að fá að fara í ævintýraferð til Nepal og Tíbet ásamt Tolla bróður sínum. Auk þess að koma við í grunnbúðum Everestfjalls fór hann í pílagrímagöngu í kringum hið helga fjall Kailash, en af því fjalli er nafn verslunarinnar dregið. Að því loknu héldu bræðurnir að Mansorova vatni, þar sem þeir böðuðu sig og núllstilltu karmað, en þar er trú manna að vatnið hreinsi burt gamlar syndir. Hvað sem því líður hafði hið fjarlæga austur djúpstæð áhrif á Begga, sem í kjölfarið opnaði verslun ásamt eiginkonu sinni,Helgu Einarsdóttur,  þar sem þau hafa náð að fanga þá fegurð sem blasti við Begga í ferðinni.

Táknin og merking þeirra

Það er afar forvitnilegt að kynna sér þetta aldagamla handverk og hér koma nokkur dæmi um vörur sem nú fást Heilsuhúsinu og hvaða táknin á skartinu merkja. Táknin, sem eru á leðurböndum um hálsinn og lyklakippum, standa ýmist ein og sér eða eru blanda af tveimur, þremur eða jafnvel öllum táknunum. Þau má ýmist rekja til sanskrít, hindúisma, tíbetsks búddisma eða alls þessa.

Om (Aum) er æðsta og helgasta mantra (hljóð) austrænnar speki. Deilt er um merkingu hennar í smáatriðum, en til að flækja ekki málin er hún einfaldlega tákn alls sem var, er og verður. Omið samanstendur að þremur atkvæðum sem tákna  jörðina, andrúmsloftið og himininn. Indverskir heimspekingar trúa því að Guð hafi í upphafi skapað þetta hljóð og að alheimurinn hafi vaxið af því.

Om Mani Padma Hum (eða Om Mani Padme Hum) mantran þýðir í grófum dráttum „blessaður sé innsti kjarni lótusblómsins“, eða með öðrum orðum „blessaður sé innsti kjarni okkar“.  Engum hefur tekist að þýða möntruna frá orði til orðs, jafnvel ekki í nokkrum setningum. Þó er hægt að upplýsa að mani þýðir gimsteinn eða demantur, sem vísar bæði til innsta kjarna okkar og alheimsins. Þessi mantra er jafnframt mjög hreinsandi og getur jafnvel losað okkur úr viðjum karmans.

Lótusblómið er tákn andlegs hreinleika eða uppljómunar, og er eitt af þekktustu táknum búddatrúar. Goðsagnir af fæðingu Siddharta prins Búdda segja frá því að sem nýfætt barn hafi hann staðið upp og gengið sjö skref fram á við og í hverju skrefi hafi sprottið lótusblóm. Jafnvel þótt ekkert lótusblóm vaxi í Tíbet er það eitt helgasta tákn tíbetsks búddisma. En það vex vissulega í Nepal og eins og svo margir vita gróa fegurstu lótusblómin gjarnan þar sem skíturinn er mestur.

Yin & yang eru hugtök sem margir Vesturlandabúar kannast við. Yang, karlorkan, er táknuð með ljósa fletinum og dökki flöturinn, kvenorkan, er yin. Hvort fyrir sig geymir fræ gagnstæða aflsins. Þegar táknið fer á hreyfingu sjást fletirnir ekki lengur sem aðskildir heldur sem ein heild. Þannig er samspil yin og yang í lífinu.

Elífðarfléttan er máttugt tákn í tíbetskum búddisma og til merkis um að allt sé samofin heild. Í því felst hringrás lífsins og hið andlega ferðalag, eilíft líf, eilíf náttúra, eilíf viska, eilíf ást og eilífur kærleikur.

DZI steininn er í stuttu máli afar dularfullur og dýrmætur verndargripur sem færir þeim sem hann ber gæfu, en hefur líka góð áhrif á líkamsstyrk.

 

Talnaböndin - malas
Talnaböndin, þekkt undir alþjóðaheitinu malas, eru alltaf með108 kúlur (sem minna á alla bresti mannsins). Þau eru hefðbundin með brúsk og fást í nokkrum fallegum litum, og jafnvel enn fallegri efnum. Efnin eru rósaviður , sem er talinn fjarlægja hindranir, hreinsa, auka blóðflæðið og styrkja áruna, sandalviður , sem ilmar einstaklega vel og er talinn umbreyta orku okkar til betri vegar og forða okkur frá freistingum , Bodhi-tré, sem er fíkjuviður en Búdda uppljómaðist undir Bodhi-tré og lituðum jakuxabeinum, sem efla jarðtengingu og raunar alla grundvallarlífsorku okkar . Athugið að þessi jakuxarnir eru aldrei drepnir til að búa megi til skartið, heldur er aðeins notast við jakuxabein sem til falla í náttúrunni.

En hvað sem allri merkingu líður er hér um að ræða afar fallega vöru. Alls fást sjö tegundir hálsmena í leðurbandi, nokkrar tegundir talnabanda, armbönd sem passa við talnaböndin og lyklakippur af ýmsum gerðum. Allt byggt þetta á sanngjörnum viðskiptum beint við bændur. Sjón er sögu ríkari.

 

 

 





Senda á Facebook