Heilsuhúsið

Verslanir
  • Laugavegur s. 552 2966
  • Lágmúla s. 578 0300
  • Kringlunni s. 568 9266
  • Smáratorgi s. 564 5666
  • Selfossi s. 482 3915
  • Akureyri s. 462 1889
  • Reykjanesbær s. 578 5560
Heilsumoli vikunnar
Baunir - suðutími

Suðutími bauna Magn miðast við 500 g af þurrum baunum Tegund Magn í dl Tími í bleyti, klst Tími í suðu, mín. Þyngd eftirsuðu í g Aduki baunir 5,5 12 30... Meira

Uppskrift mánaðarins
Linsusalat með sólþurrkuðum tómötum og ætiþistlum

170 g/2 dl linsur, Puy, þurrkaðar 80 g/11/2 dl sólþurrkaðir tómatar í kryddlegi 80 g/11/2 dl ætiþistlar marineraðir í olíu 4 tsk ólífuolía 1/2 dl  Balsamico, edik 1 tsk hvítlaukur eða hvítlauksmauk 1... Meira

Fellur í kramið hjá Hollywoodstjörnunum


Hin magnaða Mádara lína stækkar enn!

Fellur í kramið hjá Hollywoodstjörnunum


MÁDARA snyrtivörulínan, sem nýtur mikilla vinsælda í Heilsuhúsinu, kemur frá Lettlandi, en þar hefur tekist að vernda mörg ósnortin og villt svæði og mikla breidd blóma og jurta. Á þessum trausta grunni byggir vörulína Mádara sem býður upp á úrval fullkomlega náttúrulegra og lífrænna snyrtivara. Vegna þess hve vel er vandað til verka hafa Mádara vörunar vakið athygli víða um heim, ekki síst meðal Hollywoodstjarnanna. Meðal þeirra sem hafa bloggað um þær er leikkonan Gwyneth Paltrow, sem þykir ein sú meðvitaðasta í bransanum, en á vef sínum www.goop.com hælir hún Mádara í bak og fyrir. Ekki þykir verra þegar stílisti stjarnanna lofar þær í hástert, en Rachel Zoe, sem er þekktur stílisti vestanhafs, segist á vef sínum www.rachelzoe.com  hafa kolfallið fyrir Mádara, sérstaklega varagljáunum og sjampóunum. Þá segjast leikkonurnar Jennifer Love Hewitt og Golden Globe verðlaunahafinn Sally Hawkins kjósa Mádara, en sú síðarnefnda velur t.d. tingting-dagkremið til daglegra nota, enda sé það létt og gott og jafni húðlitinn.

Innihald Mádara er einkum lífrænt vottaðar blómstrandi jurtir og jurtaþykkni frá Eystrasaltslöndunum, en allt innihald er vottað samkvæmt hinum alþjóðlega ECOCERT staðli.
Þar sem Mádara línan er orðin afar fjölbreytt hentar hún öllum aldurshópum og umbúðirnar eru sérlega notendavænar, þ.e. kremin eru í pumpum sem tryggja að súrefni komist ekki að þeim. Ekki eru notuð rotvarnarefni í snyrtivörurnar og þær eru því viðkvæmar fyrir súrefni og þannig tryggja framleiðendurnir líka að ekki berist sýklar og gerlar af fingrum í kremin.
MÁDARA línan er kvenleg og falleg í dýpsta skilningi og við fögnum því að nú fást enn fleiri vörur frá þeim í Heilsuhúsinu.

Það sem hefur bæst við er:

Þrjár tegundir af sjampói og næringu: Mádara Nourish & Repair fyrir litað og mikið meðhöndlað hár, Mádara Colour & Shine, sem hentar þurru og hitaskemmdu hári, og Mádara Gloss & Vibrance, sem mýkir viðkvæman hársvörð, lagar hárenda og gefur heilbrigt og sterkt útlit.

Mýkjandi varagljái
(softening) fyrir þurrar og sprungnar varir og endurbætandi (regenerating) varagljái sem nærir og verndar og vinnur gegn öldrunareinkennum.

Rakagefandi augnkrem (eye repair), sem magnar kollagen framleiðslu húðarinnar, og frískandi augngel (firming eye), sem er létt og gott og dregur m.a. úr baugum.

Stinnandi (firming) líkamsolía, sem gott er að nudda vel inn í húðina til að vinna á sliti og appelsínuhúð, og mótandi (countouring) líkamskrem, sem bæði dregur saman húðina og gefur henni um leið teygjanleika og fallega áferð.

Hressandi sturtusápa (toning shower soap), sem einnig vinnur á appelsínuhúð og sliti og ýtir við efnaskiptum og þar með endurnýjun húðarinnar.

Djúpnærandi handáburður (deep moisture hand cream), sem bæði gefur raka og næringu og smýgur vel inn í húðina þannig að hendurnar verða silkimjúkar

Jurta svitalyktareyðir (herbal deodorant), sem heldur líkamslyktinni frísklegri allan daginn. Ber lykt af rós, salvíu, piparmyntu, kamillu og morgunfrú.

Hreinsimjólk fyrir viðkvæma húð (delicate cleansing milk), sem hentar vel til að hreinsa burt farða. Þurrkar hvorki húðina né veldur pirringi.

Mjög svo uppbyggjandi og andoxunarríkt næturkrem (regenerating night cream), sem ver húðina og endurnærir á meðan þú sefur. Vinnur gegn öldrunareinkennum, nærir húðina djúpt og viðheldur raka.

Þá hafa Moonkissed og Sunkissed varagljáarnir verið endurbættir í takt við tíðarandann. Þeir eru báðar mjög nærandi, en um leið í afar fallegum náttúrulegum litum.

Við viljum ítreka að Heilsuhúsið býður nú þegar upp á ýmis konar frábærar snyrtivörur úr Mádara línunni, svo sem mjög góð andlitskrem , létt dagkrem, húðhreinsikrem, nokkrar tegundir líkamskrema og margt, margt annað.

Senda á Facebook