Frábært og freyðandi baðsalt
Það er bæði ódýrt og bráðsnjallt að búa til eigið baðsalt. Margir vilja að baðsaltið freyði og þá er galdurinn sá að setja matarsóda í blönduna. Þessi uppskrift tryggir þér hollt og gott freyðibað og til að njóta þess til fullnustu mælum við með að þú sért í það minnsta 10 mínútur í baðinu. Eftir baðið er gott að þurrka sér vel og bera strax á sig gott rakakrem eða líkamsolíu til þess að þessi holla saltblanda nái að smjúga vel inn í húðina. Þessi baðsaltblanda dregur úr bjúgi og spennu í vöðvum.
Innihald:
4 bollar sjávarsalt
1 bolli Epsom-salt
1 bolli matarsódi
¼ bolli þurrkuð rósablöð, morgunfrú eða sítrónubörkur
1/ tsk kjarnaolía með bergamot eða greipaldin
Aðferð:
Blandið saman sjávarsalti, Epsom-salti og matarsóda.
Blandið einum bolla af saltblöndunni saman við kjarnaolíuna og hrærið síðan út í afganginn af saltblöndunni.
Bætið við rósablöðum, morgunfrú eða sítrónubörk.
Þessi uppskrift dugar í nokkra baðskammta.
Njótið!!
Senda á Facebook