Glútenlausar sælkeravörur af bestu gæðum í miklu úrvali
Margir hafa þá ranghugmynd að erfitt sé að matreiða glútenlausar gæðavörur eins og brauð, kökur og pasta. Vissulega þarf góða þekkingu og reynslu og nú hefur breska fyrirtækið Hale & Hearty tekist að þróa frábæra glútenlausa línu sem geymir kökur, brauð, morgunverðarkorn, pönnukökur, grunn í grænmetisbuff og fleira til. Hale & Hearty vörurnar hafa þegar slegið í gegn víða erlendis enda hugar fyrirtækið vel að næringargildi í vörunum sínum og reynir að hafa eins mikið af lífrænt ræktuðu hráefni og nokkur kostur er.
Glútenlausu vörurnar sem nú fást í Heilsuhúsinu eru 10 talsins, ýmist tilbúnar til neyslu eða blöndur sem eru því sem næst tilbúnar til þess að fara í ofninn eða á pönnuna.
Kínóaog bókhveitimjöl er mikið notað í uppskriftirnar. Engann hvítann sykur né soja er að finna í vörunum. Þá kemst ekkert erfðabreytt hráefni í tæri við innihaldið.
Hvað er glúten?
Glúten er próteinmólekúl sem finnst ekki aðeins i hveiti heldur líka höfrum, byggi, rúgkorni og spelti. Glúten er aðalnafnið yfir prólamín sem er próteinefni. Það eru allmargir með glútenofnæmi en enn fleiri með glútenóþol. Sumir sérfræðingar segja að allt frá 45 til 60% af hvíta kynstofninum og allt að 40% af hörundsdökku fólki séu með glútenóþol.
Orsakir glútenóþols eru ókunnar en afleiðingarnar geta verið alvarlegar. Þegar manneskja með glútenóþol innbyrðir glúten skemmist slímhúðin í þarmaveggjum smáþarmanna. Þarmatoturnar skaddast og visna og veldur það því að yfirborð þarmanna verður minna og frásog næringarefna að sama skapi of lítið.
Davíð Kristinsson heilsuþjálfari sem haldið hefur vinsæl næringar- og lífsstílsnámskeið í Heilsuhúsinu hefur mælt með því að hafi fólk grun um að vera með glútenóþol ætti það að sleppa öllu glúteni í 30 daga. Ef þú ert með glútenóþol munu einhver af eftirfarandi einkennum koma upp ef þú byrjar aftur að borða glúten:
- Útþaninn neðri kviður
- Höfuðverkir
- Magakrampar
- Vítamín- og steinefnaskortur (sérstaklega járn, kalk og fólínsýra)
- Langvinnur niðurgangur
- Vindverkir
- Máttleysi
- Þyngdaraukning / þyngdartap
- Hungurtilfinning
Hér kemur vöruúrvalið í Heilsuhúsinu frá Hail & Hearty:
Glútenlaust ljúffengt fjölkornabrauð
Multi Seed Bread er þurrefnablanda úr lífrænt ræktuðu hráefni fyrir sérlega heilnæmt fjölkorna brauð. Aðeins þarf að bæta vatni við þurrefnin og baka í næstum klukkustund. Þetta bragðgóða brauð er í senn glútenlaust, hveitilaust, laust við soja, ekki erfðabreytt og með lágt GI gildi. Auðvelt er að leika sér með þessa blöndu og bæta t.d. við ólívum, valhnetum, fleiri fræjum, sólþurrkuðum tómötum, eða hverju sem er.
Inniheldur: hrísgrjónamjöl úr hýðishrísgrjónum*, maísmjöl*, maís mjöl úr heilum maís*, kínóa súrdeig* (kínóa mjöl*, hrísgrjónamjöl*), sólblómakjarna*, hörfræ*, karób bauna hlaup*, sesamfræ*, sjávarsalt , lyftiefni (matarsódi, vínsteinn, maísmjöl*), xanthan hlaup*.*Lífræn ræktun og framleiðsla.
Glútenlausar kökur af ýmsu tagi:
Súkkulaðikaka (Classic Choco Cake) er glútenlaus súkkulaðikaka eins og þær gerast bestar. Aðeins þarf að bæta við eggjum og smjöri í kökuduftið. Súkkulaðið í kökunni kemur úr lífrænt ræktuðum kakóbaunum og hrásykur er aðeins notaður. Ljúffeng með rjóma eða lífrænni grískri jógúrt.
Brownie (Org Rich Coc.Brownie) er þurrefnablanda til að baka úr ljúffengar lífrænar súkkulaði brownies. Þú bætir í blönduna mjólk (eða soja-, möndlu, eða hrísmjólk), eggjum og smjöri, tekur 5 mínútur og svo er bakað í 25 mínútur. Er allt í senn lífrænt, hveitilaust, glútenlaust, soja laust, óerfðabreytt og hentar grænmetisætum. Eins og súkkulaðikakan inniheldur Brownie aðeins hrásykur, en einnig lífrænt kakóduft og kakódropa. Í báðar þessar súkkulaðiköku uppskriftir er einnig notast við ekta lífrænt ræktaða bourbon vanillu.
Af öðrum glútenlausu sætmeti má nefna klassíska vanillu svamptertu sem þarf aðeins að bæta við eggjum og smjöri og fjögurra korna pönnukökublöndu sem er gómsæt, trefjarík og uppfull af omega 3 fitusýrum.
Glútenlaust tilbúið morgunkorn:
Organics Honey Bee Pops eru brakandi næringarríkir morgunverðarhnoðrar úr rís, maís og kínóa með örlitlu lífrænu hunangi til að kitla bragðlaukana. Choco Jungle Pops eru brakandi skemmtilegar morgunverðarkúlur úr kínóa, maís og rís. Lífrænt súkkulaði gefur þeim sinn sérstaka tón.
Glútenlaus grunnur í grænmetisbuff eða pönnukökur:
Veggie Fritter Mix er ljúffeng glútenlaus blanda sem hentar vel sem grunnur í grænmetisbuff eða -pönnukökur. Blandið vatni við blönduna, söxuðu grænmeti og eggi (grænmetisætur geta sleppt því). Steikið á pönnu.
Sjá nánar á www.halenhearty.co.uk/
Senda á Facebook