Hinn fullkomlega samsetti hreinsikúr!
Biotta HEILSUVIKAN!
Hinn fullkomlega samsetti hreinsikúr!
Nú er einmitt rétti tíminn til að hreinsa líkamann. Því minnum við á Biotta Heilsuvikuna sem fæst í Heilsuhúsinu í einum handhægum pakka með hárnákvæmum leiðbeiningum. Mjög vel er látið af Heilsuvikunni enda þróuð með ráðgjöf reyndra næringarfræðinga. Þökk sé fábærri samsetingu lífrænt vottaðra grænmetis- og ávaxtasafa fær líkaminn öll nauðsynleg næringarefni á meðan fastað er í viku.
Hver pakki inniheldur 2 flöskur af Vita 7, 2 x Digest drink, 2 x Red Juice, 2 x Vegetable Juice Cocktail, 3x Wellness Drink, 100 gr. lífræn hörfræ og 75 gr lífrænt jurtate, sem og ítarlegan leiðbeiningabækling.
Allir Biotta safarnir eru framleiddir úr lífrænt ræktuðu grænmeti og ávöxtum og fer ferskt af akrinum beint í flöskuna. Notkun tilbúins áburðar og eiturefna hefur verið stranglega bönnuð á ræktunarsvæði Biotta svo áratugum skiptir. Biotta Heilsuvikan hentar öllum heilbrigðum, fullorðnum einstaklingum.
Senda á Facebook